Leikhúsveturinn
verður fjölbreytt og spennandi blanda af sprúðlandi stórsýningum, íslenskum og
erlendum kraftmiklum verkum og kynngi mögnuðum sýningum þar sem nándin við list
leikarans verður allsráðandi. Heimsfrumsýningar, ný íslensk barnaverk,
danssýningar, söngleikir og áleitnir einleikir. Nýtt og endurnýjað gestarými í
Kassanum mun mæta áhorfendum í haust og Kjallarinn festir sig enn betur í
sessi sem klassabúlla.
Stóra sviðið – söngleikir fyrir alla fjölskylduna, heimsfrumsýning á
þríleik eftir eitt fremsta leikskáld samtímans, glænýtt íslenskt verk og
verðlaunaverk síðasta árs
Sem á himni er
splunkunýr söngleikur sem leikur á allan tilfinningaskalann. Ægifögur tónlist,
litríkar og skemmtilegar persónur og hrífandi saga hafa nú þegar heillað fjölda
áhorfenda erlendis, og nýjar uppsetningar á verkinu eru væntanlegar víða.
(Frumsýnt 16. september). Unnur Ösp Stefánsdóttir leikstýrir verkinu, Jón
Ólafsson er tónlistarstjóri, í helstu hlutverkum er einvala hópur leikara og
söngvara og í gryfjunni er 13 manna hljómsveit.
Þjóðleikhúsið
stendur fyrir stórviðburði í íslensku leikhúslífi á Stóra sviðinu –
heimsfrumsýningu á glænýjum þríleik eftir Marius von Mayenburg, sem talinn er
eitt merkasta núlifandi leikskáld Evrópu. Hinn heimsþekkti leikstjóri Benedict
Andrews leikstýrir tveimur verkanna, Ellen B. og Ex, á
leikárinu 2022-23 og Marius von Mayenburg mun sjálfur leikstýra því
þriðja, Alveg sama, haustið 2023. Nina Wetzel hannar leikmynd og
búninga fyrir sýningarnar en hún er meðal eftirsóttustu leikhúshönnuða Evrópu
og er m.a. einn helsti samverkamaður leikstjórans Thomasar Ostermeier.
Það er mikill fengur fyrir íslenska leikhúsgesti og listafólk að fá þetta virta
leikhúslistafólk hingað til starfa. Leikritin eru afburðavel skrifuð og fjalla
um ástina og valdið í samtímanum, nútímafólk og nándina, af nístandi
hreinskilni og kolsvörtum húmor. Bitastæð hlutverkin eru öll í höndum
stórleikara. Ellen B. verður frumsýnt 26. desember og Ex í lok janúar.
Draumaþjófurinn eftir
Gunnar Helgason er glæný fjölskyldusýning sem byggir á geysivinsælli bók. Þar
er á ferð æsispennandi þroskasaga, með litskrúðugum og skemmtilegum persónum,
þar sem tekist er á við margt sem skiptir okkur svo miklu máli í dag! Frábær ný
tónlist eftir Þorvald Bjarna, Stefán Jónsson leikstýrir og fjöldi leikara og
dansara og hljómsveit taka þátt í sýningunni. (Frumsýnt í mars 2023).
Draumaþjófurinn eftir Gunnar Helgason fer á svið í Þjóðleikhúsinu í vetur
Til hamingju með að vera mannleg er nýtt íslenskt verk byggt á ljóðabók Sigríðar Soffíu Níelsdóttur sem hún skrifaði þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðferð í heimsfaraldri. Verkið fjallar um þrautseigju, um andlegan styrk og um samfélag kvenna sem standa hver með annarri. Ljóðin eru gædd lífi á sviðinu og hughrifin sem textarnir vekja túlkuð af hópi sjö kvenna með leik, upplestri, dansi, gríni og söng. Sannkallaður lofsöngur til lífsins. Verðlaunasýningar halda áfram. Sjö ævintýri um skömm, eftir Tyrfing Tyrfingsson, sópaði til sín Grímuverðlaunum síðasta vor, m.a. sem leikrit ársins. Sýningar halda áfram á Stóra sviðinu í október. Vertu úlfur, sigurvegari Grímuhátíðarinnar 2021, hefur nú sitt þriðja leikár og verður sýnd í 100. sinn í haust. Sýningar hefjast að nýju í september.
Kassinn – þrjú íslensk verk, drepfyndinn Shakespeare í nýjum fötum og
Jólaboðið
Nokkur augnablik
um nótt er glænýtt, kraftmikið verk eftir Adolf Smára Unnarsson en hann hefur
á undanförnum árum getið sér gott orð sem rithöfundur, leikskáld og leikstjóri;
hlaut meðal annars þrjár Grímutilnefningar árið 2021 fyrir óperuna Ekkert er
sorglegra en manneskjan. Leikstjóri er Ólafur Egill Egilsson. (Frumsýnt 7.
október í Kassanum). Þetta glænýja, kraftmikla verk er í senn vægðarlaus samtímaspegill
og bráðfyndin en ógnvekjandi svipmynd af þeim sem eiga og þeim sem vilja, þeim
sem sýnast og þeim sem eru. Þetta erum við – og þau.
Hvað sem þið
viljið er Shakespeare í splunkunýjum búningi, þar sem möguleikar leikhússins
eru nýttir á frjóan og ævintýralegan hátt og list leikarans er í forgrunni.
Verkið er byggt á skemmtilegasta gamanleik Shakespeares, As you like it en Karl
Ágúst Úlfsson hefur endurort texta skáldsins á léttleikandi nútímamáli í nýrri
leikgerð. Ágústa Skúladóttir leikstjóri er þekkt fyrir fjörugar, litríkar
og heillandi sýningar. Í helstu hlutverkum eru margir fremstu
gamanleikarar og tónlistarmenn landsins. (Frumsýnt í janúar í Kassanum).
Jólaboðið er bráðfyndin,
hlýleg og óvenjuleg sýning sem heillaði áhorfendur á aðventunni í fyrra! Við
fylgjumst við með sögu íslenskrar fjölskyldu í leikandi sviðsetningu, eins og
Gísla Erni Garðarssyni er einum lagið. Við gægjumst inn í stofu á
aðfangadagskvöld, reglulega, á einnar aldar tímabili! (Sýningar hefjast í
nóvember).
Jóðboðið sló í gegn á síðasta leik´ári
Leiksýningin Prinsinn var
frumsýnd í Frystiklefanum á Rifi í apríl og hélt síðan í leikferð um landið. Nú
er komið að sýningum í Þjóðleikhúsinu sjálfu. Hjartnæmt og fyndið nýtt íslenskt
leikrit, byggt á sönnum atburðum, sem talar beint til okkar. María Reyndal leikstýrir
verki sem hún skrifaði ásamt Kára Viðarssyni.
Litla sviðið – tvær nýjar íslenskar barnasýningar og tvö áleitin ný verk
fyrir fullorðna
Umskiptingur er ævintýralega
skemmtilegt barnaleikrit eftir einn af okkar ástsælustu höfundum, sem gerði
mikla lukku á liðnu leikári! Umskiptingur hlaut tilnefningar til Grímunnar og
Sagna á verðlaunahátíð barnanna sem barnasýning ársins. Sýningar hefjast strax
í ágúst á Litla sviðinu. Höfundur: Sigrún Eldjárn, ný tónlist: Ragnhildur
Gísladóttir, leikstjórn: Sara Martí Guðmundsdóttir.
Sýningar á
hugljúfu jólasögunni um Láru og Ljónsa seldust upp á
augabragði í fyrra, enda njóta bækur Birgittu Haukdal um vinina góðu ómældra
vinsælda hjá íslenskum börnum. Leikverkið hentar vel yngstu áhorfendunum og er
tilvalin skemmtun í aðdraganda jólanna. Birgitta Haukdal samdi ný lög fyrir
leiksýninguna en leikstjórn og handrit er eftir Góa. Sýningar hefjast í
nóvember á Litla sviðinu.
Lára og Ljónsi snúa aftur
Eyja er nýtt íslenskt
leikrit um ólíka menningarheima undir einu þaki, þrána eftir því að brjóta
múra, að tilheyra og mynda tengsl. Sviðslistahópurinn O.N., sem samanstendur af
heyrnarlausu og heyrandi listafólki, setur upp tvítyngdar sýningar, jafn
aðgengilegar fyrir þá sem hafa íslenskt raddmál og íslenskt táknmál að
móðurmáli. Eyja er fyrsta leiksýning sinnar tegundar sem sýnd er í
Þjóðleikhúsinu. Frumsýnt í nóvember í Kassanum. Leikstjórn: Andrea Elín
Vilhjálmsdóttir.
Íslandsklukkan birtist hér í
áleitinni sviðsetningu sem Þjóðleikhúsið hefur þróað á síðustu tveimur árum með
leikhópnum Elefant sem samanstendur af ungum íslenskum leikurum af blönduðum
uppruna. Í gegnum skapandi vinnu með Íslandsklukkuna rannsaka þau stöðu sína í
samfélaginu út frá Íslandssögunni, þjóðararfinum og menningarlegum uppruna
sínum, í samvinnu við Þorleif Örn Arnarsson leikstjóra.
Kjallarinn festir sig í sessi sem „klassabúlla“
Kjallarinn
birtist í nýjum búningi og með nýjum áherslum í fyrra og óhætt er að segja að
þessi klassabúlla hafi vakið lukku. Sama stefna er áfram við lýði þar sem
uppistand, kabarettar, drag-sýningar, sketsasýningar, hádegisleikhús og fleira
gleður leikhúsgesti.
Kjallarinn mun breytast í
kabarettklúbb á föstudagskvöldum í vetur. Ýmsir hópar taka yfir sviðið og leika
á als oddi: Dömur og herrar, Reykjavík Kabarett, Coney Iceland, Sóðabrók og
fleiri. Gógó Starr leiðir dragsýningar og Margrét Erla Maack býður upp á
kabaretthlaðborð. Þá mun okkar færasta draglistafólk í Drag-Súg syngja
sinn Svanasöng nú í haust. Kórinn Viðlag mun standa fyrir reglulegum
tónleikum á þriðjudagskvöldum í allan vetur.
Fullorðin er
sprenghlægilegur gamanleikur um það hlutskipti að verða fullorðin og
misheppnaðar tilraunir okkar til að sannfæra aðra um að við séum það. Sýningin
gekk fyrir fullu húsi á Akureyri síðasta vetur. Improv Ísland hefur kitlað
hláturtaugar áhorfenda í Kjallaranum um árabil og stór hluti áhorfenda kemur
aftur og aftur, enda er engin sýning eins. Jakob Birgis fer með gamanmál á
skotheldri kvöldstund í Kjallaranum. Leikhópurinn Kanarí vinnur glænýja og
bráðfyndna sketsasýningu í Kjallaranum á vormisseri. Á síðasta ári
frumflutti Sviðslistahópurinn Óður Ástardrykkinn – gamanóperu á íslensku í
Þjóðleikhúskjallaranum við frábærar undirtektir. Nú snýr hópurinn aftur með
Don Pasquale, í nýrri íslenskri þýðingu og með húmorinn að vopni.
Góðan daginn,
faggi sló sannarlega í gegn í Kjallaranum á liðnu leikári, með yfir 40
uppseldum sýningum, einróma lofi gagnrýnenda og Grímutilnefningum. Sýningar
halda áfram í Kjallaranum og auk þess fer sýningin í leikferð um landið þar sem
verður bæði boðið upp á sýningar fyrir almenning og einnig verða sérstakar
boðssýningar fyrir elstu bekki grunnskóla og yngstu bekki framhaldsskóla.
Sýninginn Góðan daginn faggi hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda
Hádegisleikhúsið í
endurnýjuðum Leikhúskjallara vakti mikla ánægju leikhúsgesta á síðasta leikári
og við höldum ótrauð áfram að bjóða upp á ný íslensk verk í hádeginu. Í
Hádegisleikhúsinu sjá gestir leiksýningu yfir léttum og ljúffengum hádegismat.
Erlent samstarf og leikhús í stórmarkaði
Þjóðleikhúsið
hefur stóraukið erlent samstarf með komu framúrskarandi erlendra listamanna til
landsins og með gestasýningum og erlendum samstarfsverkefnum
Complicité Fyrr á árinu var tilkynnt um viðamikið samstarf við Complicité, einn virtasta leikhóp heims á síðustu áratugum. Complicité þróar nú í samstarfi við Þjóðleikhúsið og nokkur önnur virt evrópsk leikhús glænýja sýningu sem byggð er á magnaðri skáldsögu eftir pólska Nóbelsverðlaunahafann Olgu Tokarczuk, Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu. Sýningin verður frumsýnd í Bretlandi í janúar 2023 en sýnd í Þjóðleikhúsinu í september sama ár eftir leikferð í mörg fremstu leikhús Evrópu.
Gestaleikur frá Póllandi Samstarfsleikhús Þjóðleikhússins í Póllandi, Stefan Żeromski leikhúsið, færir okkur eina af sínum rómuðustu leiksýningum, Splendor in the Grass í gestaleik sem sýndur verður í júní 2023. Gestaleikurinn er hluti af viðamiklu listrænu samstarfi Þjóðleikhússins og Stefan Żeromski leikhússins í Kielce í Póllandi. Sýnt verður á pólsku, með enskum texta.
Pussy Riot sýnir í Þjóðleikhúsinu Gjörningar Pussy Riot eru án efa einhver mikilvægustu pólitísku listaverk 21. aldarinnar. Ef einhverjir listamenn hafa gefið allt fyrir listina þá eru það þessir töffarar. Þungamiðjan í sýningunni er saga Möshu og lýsing hennar á helvítinu sem Rússland Pútins er. Glerhörð kvöldstund sem kýlir beint í magann og á sér í alvöru talað engan sinn líka.“
Pussy Riot hafa gefið allt fyrir list sína
Ragnar Kjartansson Þessi sýning Pussy Rioter sambland af tónleikum, gjörningalist og pólitískum viðburði. Sýningin var að hluta til æfð og þróuð í Þjóðleikhúsinu nú á vordögum rétt eftir að Masha Alyokhina forsprakki hópsins kom sér hingað undan klóm rússnesks óréttlætis. Sýningin er skipulögð í samhengi við fyrstu yfirlitssýningu Pussy Riot sem opnar í Kling & Bang í lok nóvember.
Aspas er nýlegt verk eftir Gianina Cărbunariu í leikstjórn Guðrúnar S. Gísladóttur. Verkið verður sviðsett í stórmarkaði og aðgangur verður ókeypis. Mörkin milli flytjenda og áhorfenda, leikhúsgesta og neytenda verða óljós og útkoman er leikhús þar sem allt getur gerst! Listrænn stjórnandi með Guðrúnu er Filippía I. Elísdóttir.
Viðamikil önnur starfsemi, fræðslustarf og þróun
Til viðbótar við
hið fjölbreytta úrval leiksýninga stendur Þjóðleikhúsið fyrir viðamikilli
annarri starfsemi. Fræðslu- og barnastarf Þjóðleikhússins er viðamikið en
leikhúsið býður ólíkum skólahópum í heimsókn í leikhúsið og fer í skóla víða um
land með sýningar og til að kynna töfraheim leikhússins. Jafnframt tekur
leikhúsið þrátt í þróun kennsluefnis, stendur fyrir námskeiðahaldi, styður við
áhugahreyfingu leikhúsfólks og stendur fyrir Þjóðleik í samstarfi við fjölda
skóla, leikfélaga og landshlutasamtaka. Þjóðleikhúsið stendur fyrir
námskeiðum og umræðum eftir sýningar, á eigin vegum og í samstarfi við aðra.
Fjölbreytt samstarf við Endurmenntun HÍ hefur skilað áhugaverðum námskeiðum sem
njóta vinsælda. Þjóðleikhúsið stendur að viðburðum í samvinnu við Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í tengslum við 400 ára afmæli Molières. Þjóðleikhúsið
stendur fyrir markvissri þróun leikverka og vinnustofa þar sem hugmyndir eru
þróaðar.
Græn stefna Þjóðleikhússins
Þjóðleikhúsið leggur áherslu á umhverfisvernd og loftslagsmál í starfsemi sinni og hefur markað sér græna stefnu sem felst í því að minnka kolefnisspor leikhússins. Af þeim sökum er Þjóðleikhúsblaðið nú prentað í mun minna upplagi en áður á sama tíma og tryggt er að allir áhugasamir geti fengið blaðið á því formi sem þeir kjósa. Á leikhusid.is er hægt að óska eftir að fá blaðið sent rafrænt eða í pósti. Jafnframt er öll prentun okkar með umhverfisvænum hætti og Svansvottuð.
Sigrún Edda Björnsdóttir fer með aðalhlutverkið í fyrstu frumsýningu vetrarins í Borgarleikhúsinu.
Almennt er sætabrauðið í erfidrykkjum að aukast á kostnað mæjónessins
Sigþrúður er ekkja, stundar blaðburð, garðyrkju og jarðarfarir af miklum móð. Hún er ein en ekki einmana – hún hefur alltaf þurft að treysta á sjálfa sig og er ljómandi góður félagsskapur ef út í það er farið. Fólkið hennar er allt horfið á braut – en hefur reyndar farið mislangt. Sigþrúður gerir sér litlar vonir enda hefur lífið kennt henni að slíkt hafi ekkert upp á sig en draumarnir hafa þó fylgt henni frá blautu barnsbeini og nú fá þeir loks byr undir báða vængi.
Á eigin vegum byggir á rómaðri skáldsögu metsöluhöfundarins Kristínar Steinsdóttur sem kom út árið 2006. Bókin var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og hlaut Fjöruverðlaunin árið 2007.
Úr sýningunni Blóðuga kanínan sem sýnd var í Tjarnarbíói
Tjarnarbíó og SL (Bandalag
sjálfstæðra leikhúsa) hafa sett af stað samfélagsmiðlaherferð til að
vekja athygli á að Tjarnarbíó, heimili sjálfstæðra sviðslista og helsta
sýninga- og vinnurými sjálfstætt starfandi atvinnuleikhópa, hafi ekki
lengur burði til að sinna allri senunni.
Fram kemur í tilkynningu að
á síðustu árum hafi sviðslistafólki fjölgað verulega á Íslandi og fjölbreytni
aukist. Óperuhópar, sirkuslistahópar, uppistandshópar, dansleikhópar,
improvhópar, kabaretthópar, drag-hópar og sviðlistahátíðir hafi bæst við
flóruna, þar sem fyrir voru leik- og danshópar.
„Lausnin er ekki langt undan.
SL og stjórn Tjarnarbíós leggja til að Reykjavíkurborg svari þessu kalli
listafólks með því að leggja þeim til húsnæðið við hliðina á Tjarnarbíói,
sem getur mætt öllum þörfum þessarar ört vaxandi senu, en í Tjarnarbíói
starfa í um 250 atvinnusviðslistamenn á þessu leikári,“ segir í tilkynningunni.
Stærra húsnæði Tjarnarbíós
myndi svara knýjandi þörf um eftirfarandi:
Æfingaaðstaða
Geymslupláss fyrir leikmyndir
Skrifstofurými fyrir starfsfólk
Stúdíórými fyrir listafólk til að þróa verk sín
Aðstaða til leiklistarkennslu fyrir börn og fullorðna
Bætt aðstaða fyrir leikhúsgesti
„Þessu til viðbótar er nauðsynlegt
að byggja annað svið yfir þessa ört stækkandi og sí fjölbreyttari senu. Þar
er hentug lausn að byggja yfir portið bak við Tjarnarbíó. Þar er kjörið rými
fyrir annað svið með 100 áhorfenda sal, sem ólíkt væri hinu sviði Tjarnarbíós
að stærð og lögun. Það myndi þjóna vel fjölda sviðsverka sem núverandi salur
hentar illa fyrir og gera Tjarnarbíói kleift að sinna hlutverki sínu með
sóma,“ segir einnig í tilkynningunni.
Karl Ágúst Úlfsson kveður leiksviðið með sýningunni Fíflið.
Karl Ágúst Úlfsson ætlar að ljúka sviðsferlinum með leiksýningu eftir sjálfan sig í Tjarnarbíói. Sýningin verður frumsýnd í byrjun september og heitir Fíflið.
Í viðtali í Vikulokunum á Rás1 um síðastliðna helgi
segir Karl Ágúst meðal annars: „Fíflið er fyrirbæri sem er orðið afgamalt í
mannkynssögunni, hirðfíflið. Sá sem veitir konungnum og valdhafanum aðhald.
Fíflið má segja hvað sem er svo framarlega sem það er fyndið. Þegar ég fór að
velta fyrir mér ferli mínum og hvernig ég vildi að þessu lyki þá leitaði þessi
hugmynd mikið á mig. Ég hef í raun og veru, ásamt félögum mínum, gengt
einhverskonar hliðstæðu hlutverki við fíflið við hirð konunga.“
HVORT VILTU HELDUR VERA KÓNGURINN EÐA FÍFLIÐ?
Það er vandasamt að hafa vald yfir öðru fólki. Þess vegna hafa allir konungar þurft á því að halda að einhver standi við hlið hásætisins og dragi þá sundur og saman í háði. Einhver þarf að gera völd konungsins hlægileg og minna hann á að þrátt fyrir allt er hann ófullkominn maður eins og við hin. Þetta er hlutverk hirðfíflsins. Og fíflinu leyfist að segja nánast hvað sem er í návist konungsins – svo framarlega sem það er fyndið.
Í sýningunni Fíflið kynnumst við hirðfíflum allra tíma og heimshluta og rýnum í samband fíflsins og valdsins. Eru það verstu harðstjórarnir sem ekki þola að skopast sé með þá? Er fíflinu bókstaflega ekkert heilagt? Getur fíflið haft raunveruleg áhrif á rás sögunnar og eru fíflið og kóngurinn ef til vill ein og sama persónan þegar allt kemur til alls?
Karl Ágúst Úlfsson hefur brugðið sér í allra kvikinda líki í íslensku menningarlífi og meðal annars gegnt hlutverki fíflsins við hirð þeirra sem stjórna samfélagi okkar. Í þessu verki setur hann eitt og annað í nýtt og óvænt samhengi, en þar kemur 40 ára reynsla hans sem samfélagsrýnir, höfundur og sviðslistamaður í góðar þarfir.
HANDRIT: Karl Ágúst Úlfsson LEIKSTJÓRN: Ágústa Skúladóttir TÓNLIST: Eyvindur Karlsson LEIKMYND OG BÚNINGAR: Guðrún Öyahals LÝSING: Ólafur Ágúst Stefánsson FLYTJENDUR: Karl Ágúst Úlfsson og Eyvindur Karlsson
Hamingjudagar verður frumsýnt 2. september í Hofi.
„Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að finnast lífið hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.
Hamingjudagar er um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar og er áreiðanlega lang skemmtilegasta leikrit nóbelshöfundarins sem lætur gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.
Samuel Beckett er fæddur í Dublin á Írlandi föstudginn 13. apríl árið 1906. Hann settist að í París árið 1937. Hamingjudagar var frumflutt í Cherry Lane-leikhúsinu í New York 17. september 1961 og frumsýnt á Íslandi í Lindarbæ í Reykjavík árið 1965 á vegum leikhópsins Grímu í leikstjórn Eyvindar Erlendssonar. Beckett hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1969. Hann lést í París árið 1989.
Höfundur Samuel Beckett
Þýðing Árni Ibsen
Leikarar Edda Björg Eyjólfsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson
Leikstjórn Harpa Arnardóttir
Leikmynd og búningar Brynja Björnsdóttir
Lýsing Ólafur Ágúst Stefánsson
Tónlist Ísidór Jökull Bjarnason
Þýðing yfirfarin Hafliði Arngrímsson
Act alone á Suðureyri fer fram dagana 4. – 6. ágúst
Engin veit hve haft hefur fyrr en höft hindra árlega gleði á borð við Actið. Það skapast eitthvað tómarúm og tilveran verður örlítið einsleitari. Í tvö ár hefur ekki verið neitt Act en nú loksins er haldið Act á ný á Suðureyri. Act alone á Suðureyri fer fram dagana 4. – 6. ágúst og er dagskráin einstaklega vegleg og um leið alþjóðleg. Eitthvað í boði fyrir alla en alveg einsog í gamla daga þá er ókeypis á Actið einsog verið hefur frá upphafi. Boðið verður uppá einstakar leiksýningar, tónleika, götulist, myndlist, ritlist, uppistand og dans. Að vanda er talan einn í aðalhlutverki á Actinu því aðeins verður boðið uppá viðburði með einum listamanni hverju sinni.
Einsog í gamla daga þá hefst Actið með veglegri fiskiveislu enda mikilvægt að næra magann áður en andinn er fóðraður með einstakri list. Að þessu sinni er alþjóðlegur blær yfir dagskrá ársins því boðið verður upppá viðburði frá Bandaríkjunum, Danmörku, Ítalíu og Parakúæ auk vitanlega fjölda innlendra viðburða. Frá Bandaríkjunum fáum við einleikina, Let It be Art með Ronald Rand sem fjallar um leikhúslistamanninn Harold Clurman og Pink Hulk með Valerie David sem er sjálfsævisöguleikur þar sem leikkonan segir á áhrifaríkan hátt fyrir glímu sinni við krabbamein. Frá Parakuæ koma tvær brúðulistakonur Carola Mazzotti og Tess Rivarola. Þær hafa hlotið alþjóðlega vikurkenningu fyrir list sína og verða bæði með brúðusleikýningar sem og brúðunámskeið fyrir börn. Danssýning ársins er Okkur hefur langað til að brotna í sundur með hinni dönsku Mathilde Mensink. Frá Ítalíu kemur svo trúðurinn Marco Borghetti.
Að vanda stígur fjöldi íslenskra listamanna á stokk á Actinu. Björn Thoroddsen slær fyrstu tóna ársins með einstökum konsert á opnunarkveldinu. Kveldið eftir stígur kollegi hans Herbert Guðmundsson á stokk. Daginn eftir, á laugardag, verða fjölskyldutónleikar með Dr. Gunna og um kveldið eru tónleikar með Kela. Af leiksýningum má nefna, Það sem er með Maríu Ellingsen og Síldarstúlkur með Halldóru Guðjónsdóttur. Þrír einleikir verða á fjölunum með leikaranemum úr Listaháskóla Íslands. Margt fleira mætti nefna m.a. verður Arnar Jónsson á eintali og Hrafnhildur Hagalín er skáld ársins.
Loks má geta þess að það verður einnig hægt að fara ókeypis á Actið, því langferðabifreið Actins gengur daglega millum Ísafjarðar og einleikjaþorpsins Suðureyri.
Hólmfríður Hafliðadóttir í einleiknum Flokkstjórinn
Útileikhús um unglinga og illgresi.
Illgresið er okkar óvinur. Þetta eru kraftmiklar og frekar plöntur sem ógna því gróðurfari sem þegar er til staðar. Þær geta spírað mjög snemma á vorin og því berum við ábyrgð á að uppræta illgresið áður en það nær að mynda fræið. En ræturnar ná oft djúpt ofan í jarðveginn, og þá þarf meira til en litlar skóflur, einfara og hrífur.
Leiksýningin „Flokkstjórinn“ byggir á reynslu Hólmfríðar sem flokkstjóri í unglingavinnu en starfið veitti innsýn í samskipti unglinga, eineltismenningu og hve grimm mannskepnan getur verið þegar hún þráir ekkert heitar en að tilheyra hópnum. Er til slæmt fólk? Eða einungis slæm hegðun? Þarf virkilega alltaf að stíga í spor karlmanna til að öðlast virðingu? Jafnvel óvæntasta fólk getur brotið þig niður, sama hversu mikil völd þú ert með í rýminu.
Einleikurinn er sýndur á hringleikahúsinu Grandahvarfi, Kópavogi í júlí. Verkefnið er hluti af Skapandi sumarstörfum í Kópavogi og er styrkt af Kópavogsbæ. Panta þarf miða á tix.is, en frítt er inn á sýninguna!
Sviðið er staðsett á horni Elliðahvammsvegar og Grandahvarfs. Strætó 28 stoppar hjá hringleikahúsinu, á biðstöð sem heitir Elliðahvammur. Einnig er nóg er af bílastæðum við sviðið. Verkið er sýnt utandyra, komið klædd eftir veðri. Áhorfendur sitja á grasþöktum tröppum. Sniðugt er að koma með pullur, tjaldstóla eða hvað annað sem þægilegt er að sitja á á meðan sýningunni stendur. Lengd: 40 mín.
Höfundar: Hólmfríður Hafliðadóttir og Magnús Thorlacius
Leikkona: Hólmfríður Hafliðadóttir
Leikstjóri: Magnús Thorlacius
Tónlist: Iðunn Einars
Aðstoð við plakat: Tómas Óli K. M.
Myndbönd: Hákon Örn Helgason
Sérstakar þakkir: Vinnuskólinn í Kópavogi, Starfsfólk Molans, Steinunn hjá Starfsleikni, Soffía hjá Kópavogsbæ, fyrrum flokkstjórar, vinir og allir unglingarnir
Leiklistarskóla BÍL var slitið í 25. sinn nú um helgina.
Leiklistarskóla
BÍL var slitið í 25 sinn um liðna helgi. Fjörutíu nemendur útskrifuðust af 3
námskeiðum en auk þeirra voru 11 höfundar í heimsókn að vinna að verkum sínum.
Haldin voru námskeiðin Leiklist I í stjórn Ólafs Ásgeirssonar, Leikstjórn II
sem Jenný Lára Arnórsdóttir stýrði og sérnámskeiðið Hvernig segjum við sögu? í
stjórn Ágústu Skúladóttur.
Dýrleif Jónsdóttir og Hrefna Friðriksdóttir hafa látið af störfum sem skólastýrur.
Þau tíðindi voru tilkynnt á lokakvöldi að skólastýrur til 15 ára, þær Dýrleif Jónsdóttir og Hrefna Friðriksdóttir myndu nú láta af störfum. Var þeim klappað lof í lófa og þær leystar út með gjöfum með þakklæti fyrir fórnfúst starf í þágu skólans í einn og hálfan áratug. Þá voru nýir skólastjórnendur kynntir til sögunnar en það eru þau F. Elli Hafliðason og Jónheiður Ísleifsdóttir.
Leikritið Sjö ævintýri um skömm fékk alls sex verðlaun á Grímunni í ár.
Leikritið Sjö ævintýri um skömm varð hlutskarpast á Grímunni í ár með fékk alls sex verðlaun og hlaut meðal annars verðlaun fyrir Leikrit og Leikara ársins í aðalhlutverki. Verðlaunin voru veitt í Þjóðleikhúsinu fyrir leiklistarárið 2022. Þetta er í tuttugastsa skipti sem íslensku sviðslistaverðlaunin eru veitt en hátíðin var fyrst haldin þann 16. júní árið 2003. Sýning ársins var 9 líf og hlaut leikritið alls þrenn verðlaun en Halldóra Geirharðsdóttir hlaut bæði verðlaunin Leikkona ársins í aðalhlutverki og Söngvari ársins. Sýningarnar Rómeó og Júlía og AIŌN hrepptu einnig þrenn verðlaun hvor og var Emil í Kattholti valin Barnasýning ársins. Heiðursverðlaun Sviðslistasambandsins hlaut Ólafur Haukur Símonarson fyrir ævistarf sitt. Vinningshafana má sjá hér að neðan.
Sýning ársins 9 Líf Eftir Ólaf Egil Egilsson Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Leikrit ársins Sjö ævintýri um skömm Eftir Tyrfing Tyrfingsson Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikstjóri ársins Stefán Jónsson Sjö ævintýri um skömm Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikari ársins í aðalhlutverki Hilmir Snær Guðnason Sjö ævintýri um skömm Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikari ársins í aukahlutverki Vilhjálmur B Bragason Skugga Sveinn Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar
Halldóra Geirharðsdóttir hlaut tvenn verðlaun á Grímunni í ár.
Leikkona ársins í aðalhlutverki Halldóra Geirharðsdóttir 9 líf Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Leikkona ársins í aukahlutverki Margrét Guðmundsdóttir Ein komst undan Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Leikmynd ársins Börkur Jónsson Sjö ævintýri um skömm Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Búningar ársins Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Sjö ævintýri um skömm Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Lýsing ársinsHalldór Örn Óskarsson Sjö ævintýri um skömm Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Tónlist ársins Anna Þorvaldsdóttir AIŌN Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands
Hljóðmynd ársins Salka Valsdóttir, Kristinn Gauti Einarsson Rómeó og Júlía Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Söngvari ársins Halldóra Geirharðsdóttir 9 líf Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Dansari ársins Shota Inoue Rómeó <3 Júlía Íslenski dansflokkurinn
Danshöfundur ársins Erna Ómarsdóttir AIŌN Íslenski dansflokkurinn & Sinfóníuhljómsveit Íslands
Dans- og sviðshreyfingar ársins Ernesto Camilo Aldazábal Valdés og Rebecca Hidalgo Rómeó og Júlía Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Barnasýning ársins Emil í Kattholti Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands 2022 Ólafur Haukur Símonarson
Sjö ævintýrir um skömm er líkleg til verðlauna í ár
Leiksýningin Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson hlaut flestar tilnefningar til Grímuverðlauna í dár með tólf tilnefningar. Þar á eftir kom sýningin 9 Líf eftir Ólaf Egil Egilsson með tíu tilnefningar.
Tilnefningarnar til íslensku sviðslistaverðlaunanna, Grímuverðlaunanna, voru kynntar í Þjóðleikhúskjallaranum í dag. Verðlaunahátíðin sjálf fer fram eftir viku, þriðjudagskvöldið 14. júní. Sýnt verður beint frá hátíðinni á RÚV.
Tilnefningar til Grímunnar 2022:
Sýning ársins:
9 líf
Eftir Ólaf Egil Egilsson
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
AIŌN
Eftir Ernu Ómarsdóttir og Önnu Þorvaldsdóttir
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn og Sinfoníuhljómsveit Íslands
BALL
Eftir Alexander Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn
Sjö ævintýri um skömm
Eftir Tyrfing Tyrfingsson
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikrit ársins:
9 líf
Eftir Ólaf Egil Egilsson
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Blóðuga kanínan
Eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur
Sviðsetning – Fimbulvetur í samastarfi við Murmur productions og Tjarnarbíó
Njála á hundavaði
Eftir Hjörleif Hjartarson
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Sjö ævintýri um skömm
Eftir Tyrfing Tyrfingsson
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikstjóri ársins:
Ólafur Egill Egilsson
9 líf
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Una Þorleifsdóttir
Ást og upplýsingar
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Stefán Jónsson
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Vala Ómarsdóttir
TÆRING
Sviðsetning – HÆLIÐ setur um sögu berklanna í samstarfi við LA
Agnes Wild
Tjaldið
Sviðsetning – Miðnætti í samstarfi við Borgarleikhúsið
Leikari í aðalhlutverki:
Almar Blær Sigurjónsson
Ásti og upplýsingar
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Björn Stefánsson
9 líf
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Gísli Örn Garðarsson
Ég hleyp
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Hilmir Snær Guðnason
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Sigurbjartur Sturla Atlason
Rómeó og Júlía
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikari í aukahlutverki:
Eggert Þorleifsson
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Hallgrímur Ólafsson
Rómeó og Júlía
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Sigurður Þór Óskarsson
Emil í Kattholti
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Snorri Engilbertsson
Framúrskarandi vinkona
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Vilhjálmur B Bragason
Skugga Sveinn
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar
Leikkona í aðalhlutverki:
Ebba Katrín Finnsdóttir
Rómeó og Júlía
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Halldóra Geirharðsdóttir
9 líf
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Ilmur Kristjánsdóttir
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Vala Kristín Eiríksdóttir
Þétting hryggðar
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Vigdís Hrefna Pálsdóttir
Framúrskarandi vinkona
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikkona í aukahlutverki:
Ásthildur Úa Sigurðardóttir
Emil í Kattholti
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Kristín Þóra Haraldsdóttir
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Margrét Ákadóttir
Ein komst undan
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Margrét Guðmundsdóttir
Ein komst undan
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Leikmynd ársins:
Ilmur Stefánsdóttir
9 líf
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Eva Signý Berger
Emil í Kattholti
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Júlíanna Lára Steingrímsdóttir
Hvíla sprungur
Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn & Last Minute Productions
Guðný Hrund Sigurðardóttir
Kjarval
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Börkur Jónsson
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Búningar ársins:
Erna Guðrún Fritzdóttir
BALL
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn
Aldís Davíðsdóttir
Hetja
Sviðsetning – Skýjasmiðjan
Karen Briem & Sunneva Weisshappel
Rómeó <3 Júlía
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn
Anna Rún Tryggvadóttir og Urður Hákonardóttir
Rómeó og Júlía
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Lýsing ársins:
Egill Ingibergsson og Móeiður Helgadóttir
Ein komst undan
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Framúrskarandi vinkona
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Pálmi Jónsson
Hvíla sprungur
Sviðsetning – Íslenski dansflokkurinn & Last Minute Productions
Halldór Örn Óskarsson
Sjö ævintýri um skömm
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Ólafur Ágúst Stefánsson
Skugga Sveinn
Sviðsetning – Leikfélag Akureyrar
Tónlist ársins:
Anna Þorvaldsdóttir
AIŌN
Sviðsetning – Íslenski Dansflokkurinn og Sinfoníuhljómsveit Íslands
Guðmundur Óskar Guðmundsson, Matthildur Hafliðadóttir
Ásta
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Axel Ingi Árnason
Góðan daginn, faggi
Sviðsetning – Stertabenda í samstarfi við Þjóðleikhúsið