Einleikurinn – Það sem er – er sýndur í Tjarnarbíó
Árið er 1987. Elskendur sem Berlínarmúrinn skilur að eiga í leynilegu og lífshættulegu ástarsambandi. En hver eru þau í raun og veru? Og hvað gerist þegar múrinn á milli þeirra fellur?
ÞAÐ SEM ER eftir danska verðlaunaskáldið Peter Asmussen er magnað verk um að elska vona og svíkja. Um múrinn sem umkringir okkur, löngunina eftir frelsi og leitina að því sem er – og er ekki.
Listamenn
Höfundur: Peter Asmussen
Þýðing: Auður Jónsdóttir
Leikkona: María Ellingsen
Leikstjórn: Ólafur Egilsson
Búningar: Filippía Elísdóttir
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn
Tónlist: Ólafur: Björn Ólafsson
Aðstoðarleikstjóri: Melkorka Gunnborg Briansdóttir
Sviðshreyfingar: Anna Kolfinna Kuran
Gervi: Erla Sigurbjarnadóttir
Tæknimaður: Stefán Ingvar Vigfússon
Ljósmyndir og video: Christopher Lund
Ólafur Egill Egilsson er listrænn ráðunautur Þjóðleikhússins og Björn Bergsteinn Guðmundsson yfirljósahönnuður Þjóðleikhússins og taka þeir þátt í sýningunni með góðfúslegu leyfi Þjóðleikhússins.
Leikfélag Hafnarfjarðar frumsýnir nýtt gamanleikrit eftir höfundasmiðju leikfélagsins í leikstjórn Ólafs Þórðarsonar.
Í kjallara í Reykjavík er hópur fólks í miðjum klíðum að standsetja íbúð fyrir útleigu til ferðamanna. Af óviðráðanlegum ástæðum neyðast þau skyndilega til að hýsa ferðamann í hálfköruðu húsnæðinu, sem leiðir af sér atburðarás sem ekkert þeirra hefði nokkurn tíma órað fyrir.
Sýningar verða í Leikhúsinu, Funalind 2 í Kópavogi og sýnt verður á eftirtöldum dögum:
Laugardagur 22. janúar kl. 20.00 (frumsýning, uppselt)
Á ljúfu síðdegi sitja fjórar nágrannakonur í bakgarði einnar þeirra og ræða allt milli himins og jarðar: sápuóperur, barnabörnin, horfnar hverfisverslanir, drauma um að fljúga og óstjórnlegan ótta við ketti. Undir broslegum hversdeginum krauma leyndarmál og sársauki langrar ævi og allt um kring leynist yfirvofandi – eða jafnvel afstaðinn – heimsendir. Með einstökum húmor rennur teboð saman við hörmungar og náttúruhamfarir, sem eru jafn skelfilegar og þær eru kostulegar og staðfesta þau orð leikskáldsins Samuel Beckett að ekkert sé fyndnara en óhamingjan.
Caryl Churchill (f. 1938) er eitt helsta og afkastamesta leikskáld Breta síðustu áratuga, en eftir hana liggja á sjötta tug leikverka fyrir svið, útvarp og sjónvarp. Ein komst undan er skrifað fyrir fjórar leikkonur sem allar eru að minnsta kosti sjötugar og þar eru sögur eldri kvenna í forgrunni, kvenna sem hafa staðið af sér áföll og árekstra í heimi sem virðist stöðugt á heljarþröm. Í þessu magnaða verki sameina fjórar af ástsælustu leikkonum þjóðarinnar krafta sína, þær Edda Björgvinsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Margrét Ákadóttir og Margrét Guðmundsdóttir, í leikstjórn Kristínar Jóhannesdóttur.
Geysivinsælar Napólí-sögur Elenu Ferrante nú loks á íslensku leiksviði Napólí-sögur Elenu Ferrante hafa farið sigurför um heiminn og sjónvarpsþættir byggðir á þeim hafa slegið í gegn. Lesendur og áhorfendur víða um heim hafa hlegið og grátið til skiptis yfir vegferð hinna skarpgreindu vinkvenna Lilu og Elenu sem alast upp í fátækrahverfi í Napólí á sjötta áratugnum. Þær þurfa að beita öllum brögðum til að komast af, brjótast til mennta og berjast fyrir betra lífi í harkalegu umhverfi þar sem ofbeldi stjórnar tilverunni og réttur kvenna er lítils virtur.
Yaël Farber er þekkt fyrir djarfar, ágengar og listrænt hrífandi sýningar sem hafa farið sigurför um heiminn.
Hin suður-afríska Yaël Farber leikstýrir þessari stórsýningu en uppsetningar hennar hafa hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga víða um heim. Gestir Þjóðleikhússins mega eiga von á ítalskri leikhúsveislu þar sem öllu verður tjaldað til við sviðsetningu þessarar mögnuðu sögu um flókna vináttu, heitar ástir, afbrýðisemi, sárar fórnir, æðruleysi og örvæntingu.
Hér er á ferð sannkölluð stórsýning með mörgum af okkar fremstu leikurum.