2016 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Skugga-Baldur

    mar 3, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    skuggabaldur stór

    Tékkneskt-íslenskt leikverk byggt á skáldsögunni Skugga-Baldur eftir Sjón.

    Hin mikilvægu einkunnarorð „omnia mutantur – nihil interit“ („allt breytist – ekkert hverfur“) úr sögunni af hinni lævísu skepnu skugga-baldri er tilvitnun í Myndbreytingarnar eftir Óvidíus. Skuggi, hinn sérvitri sögumaður verksins, notar umbreytingu sem sína helstu leið til tjáningar, þar sem hann setur upp heldur áleitna sögu um veiðimann og skuggann hans, öskrandi tóur og aðrar skepnur, þurrkaða þorskshausa, mongólsk börn með Downs heilkenni, lótusætur, lyktina af darsjíling tei og ópíumreykingar, miskunnsemi, samúð og fyrirlitningu, um Guð og rafmagnsrifrildi í jökulrassi, ferðalag gegnum snjóinn til undirheima, um glæp og refsingu, og um prest sem lítur út eins og þúst í landslaginu.

    Sviðsetning tékkneska leikhússins Studio Hrdinu á Skugga-Baldri er leikverk sem alla sýninguna í gegn býður upp á hugmyndaríka skemmtun þar sem saman koma sígild sagnamennska og nýjust aðferðir í frásagnartækni. Aðlögunin er trú upphaflega textanum á sama tíma og hún leitar út fyrir hann og verður að sjálfstæðu verki sem teygir sig til okkar daga gegnum leik, leikhúslausnir og djarfa notkun hljóðs og myndar.

    Allir sem að uppfærslunni koma eiga hrós skilið: Leikkonan Tereza Hofová ummyndast léttilega úr einni persónu í aðra, jafnt líkamlega sem andlega, um leið og hún heldur áhorfendum spenntum fyrir örlögum hverrar fyrir sig. Leikstjórinn Kamila Plívková heldur örugglega um alla þræðina, sagan er í skörpum fókus jafnvel þegar ólíklegustu atburðir og staðir taka að birtast á sviðinu. Listamaðurinn Jón Sæmundur og hljómsveitarfélagi hans Ryan úr Dad Skeletons mynda óvæntan hlekk milli andalækna og sundurgerðarmanna gamla tímans og þess nýja. Og síðast en ekki síst, og hann er hin mikla uppgötvun verkefnisins, skal nefna myndlistarmanninn Sindra Ploder sem gefur öllu saman vikt með sterkum myndheimi sínum sem skapaður er án allra málamiðlana. Saman hafa þau skilað svo frábærri vinnu í túlkun sinni á skáldsögu minni að ég uppgötvaði nýja hluti í frásögn sem ég hélt mig þekkja til fulls.

    „Fyrir mér er það sönnun þess hversu vel þessi tékknesk-íslenska samvinna um að setja Skugga-Baldur á svið hefur heppnast að þegar frumsýningardögunum lauk í Prag tók samstundis að kyngja niður snjó; gamla keisaraborgin varð jafn mjallahvít og dalurinn afskekkti í sögunni um ungu konuna Öbbu, séra Baldur, grasafræðinginn Friðrik, og lágfótuna brögðóttu.“
    -SJÓN

    SÝNINGAR
    Listasafn Reykjavíkur Hafnarhús, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík
    3. mars kl. 21 forsýning
    4. mars kl. 20 frumsýning
    5. mars kl. 20
    6. mars kl. 18
    7. mars kl. 20
    8. mars kl. 20 umræður eftir sýningu með Sjón
    Sýningin fer fram á ensku

    Aðstandendur:

    Höfundur bókar: Sjón
    Handrit: Kamila Polívková og Tera Hof
    Leikstjórn: Kamila Polívková
    Sviðmynd: Antonín Šilar
    Búningar: Zuzana Formánková
    Listræn stjórnun: Jón Sæmundur Auðarson og Sindri Ploder
    Tónlist: Ryan van Kriedt og Jón Sæmundur Auðarson
    Vídeo og grafík: Jón Sæmundur Auðarson og Antonín Šilar
    Dramatúrg: Jan Horák
    Aðstoðarleikstjórn: Ondrej Štefanák
    Framleiðendur: Tomáš Kadlec, Ladislav Krapek og Orri Einarsson

    Leikur: Tera Hof
    Verkið er styrkt af EEA Grants, með framlagi Íslands, Liechtenstein og Noregs.

    Enginn hittir einhvern

    mar 3, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    enginnhittireinhvern stor

    Enginn hittir einhvern er opnunarsýning í nýju leikrými Norræna Hússins/ Black Box. Höfundur verksins er hinn beitti penni Peter Asmussen sem meðal annars skrifaði handritið af kvikmyndinni Breaking the Waves með Lars von Trier. Þetta er í fyrsta sinn sem leikverk eftir hann er sýnt hérlendis. Asmussen vann hin virtu dönsku Reumert verðlaun sem leikskáld ársins fyrir Enginn hittir einhvern.

    Enginn hittir einhvern er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikrit sem hrífur áhorfendann með sér í spennandi ferðalag um furður lífsins. Verkið leiðir áhorfandann inn í samband tveggja ástríðufullra einstaklinga sem birtast okkur í sextán stuttum senum sem eru allt í senn fyndnar, ögrandi og ljóðrænar.

    Peter Asmussen er fæddur árið 1957. Hann býr í Kaupmannahöfn og skrifar fyrir leikhús, kvikmyndir, sjónvarp og útvarp. Asmussen hefur einnig sent frá sér nokkrar skáldsögur og samið óperulíbrettó. Leikstjóri verksins er Simon Boberg sem gjörþekkir Asmussen og hefur leikstýrt mörgum frumuppfærslum á verkum hans. Einnig koma að verkinu hópur framúrskarandi listamanna frá Noregi, Finnlandi, Danmörku og Íslandi til að skapa verkinu umgjörð.

    “Haldi maður bara örlítið uppá leikhús verður maður dreginn á tálar og manni skemmt frábærlega og allar leikhúsóskir manns munu rætast á þessari leiksýningu. Leikritið er aðeins klukkutími að lengd en satt best að segja það besta sem ég hef séð í áraraðir.“
    -Lars Wredström, Börsen

    Höfundur: Peter Asmussen
    Þýðandi: Jón Atli Jónasson
    Leikstjóri. Simon Boberg
    Leikarar: María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson
    Hreyfingar: Raisa Foster
    Tónlist: Andreas Ljones
    Leikmynd. Snorri Freyr Hilmarsson
    Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

    Vefsíða verksins www.enginn.is
    Norræna húsið
    AALTO Bistro

    AALTO Bistro býður upp á tveggja rétta leikhúsmatseðil í tilefni sýningarinnar  sjá nánar hér.  ALTO Bistro er vinalegur og spennandi veitingastaður í Norræna húsinu sem rekinn er undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks.

    Umræður eftir sýningu

    mar 2, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    oldbessastaðir stór

    Old Bessastaðir er nýtt leikverk eftir Sölku Guðmundsdóttur í uppfærslu Sokkabandsins.

    Það verða umræður eftir sýninguna 10. mars með Mörtu Nordal leikstjóra sýningarinnar, fulltrúa Rauða krossins og Dr. Huldu Þórisdóttur lektor og stjórnmálaálfræðingur við Háskóla Íslands.

    Þrjár konur koma saman til að framkvæma, til að skilgreina sín sameiginlegu grunngildi, til að borða brauð með spægipylsu, til að finna tilganginn, sem fjærst öllum útveggjum. Þær ætla að verða fyrri til. Þær ætla ekki að láta sparka sér niður stigaganginn. Þær eru ekki vont fólk.

    Gildi eitt: Við tortryggjum ekki gildin.

    Gildi tvö: Þær sem ekki virða gildin eru ógn við gildin.

    Gildi þrjú: Við þrýstum þumlunum þéttingsfast inn í augntóttirnar á þeim sem ekki virða gildin.

    …það er blóð á skónum þínum.

    Leikstjórn: Marta Nordal.
    Leikmyndahönnun: Finnur Arnar Arnarsson.
    Búningahönnun: Helga Stefánsdóttir.
    Tónlist: Högni Egilsson.
    Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson.
    Leikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir

    103. sýning af Kenneth Mána um helgina

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    kennethmáni stór

    Enn er verið að sýna Kenneth Mána í Borgarleikhúsinu og er 103. sýning um helgina.

    „VIÐ ERUM KANNSKI GLÆPAMENN … EN VIÐ ERUM ALLA VEGA EKKI ÓHEIÐARLEGIR“

    Góðkunningi lögreglunnar sem sló í gegn í Fangavaktinni útskýrir lífið og tilveruna

    Kenneth Máni, stærsti smáglæpamaður landsins, stelur senunni í Borgarleikhúsinu.

    Byggt á samnefndri persónu úr sjónvarps- þáttaröðinni Fangavaktin eftir Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörund Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Bragason.

    Kenneth Máni Johnson, um tíma Ketill Máni Áslaugarson, vann fyrir Georg Bjarnfreðarson í Fangavaktinni. Kenneth er eilífðarfangi sem glímir við lesblindu, athyglisbrest, ofvirkni og almennt hömluleysi. En hann er alveg óhræddur við að segja áhorfendum frá þessu öllu saman og svara spurningum þeirra um ,,lívið og tilverunna”.

    Ekki fræðandi en mjög fyndið skemmtikvöld þar sem Kenneth Máni lætur dæluna ganga svo engar tvær sýningar eru eins.

    Höfundarnir Jóhann Ævar Grímsson og Saga Garðarsdóttir leiða nú saman krafta sína í fyrsta sinn í samvinnu við leikarann Björn Thors til að ljá Kenneth Mána loksins rödd á sviði Borgarleikhússins. Jóhann Ævar skrifaði ásamt fleirum Næturvaktina, Dagvaktina og Fangavaktina á meðan Saga var meðhöfundur síðasta Áramótaskaups, skrifaði pistla í Fréttablaðið og hélt fyrirlestra um mannsheilann.

    „Maður kvöldsins er Björn Thors sem túlkar Kenneth Mána snilldarlega og af hlýju. Björn Thors hefur persónuna frábærlega vel á valdi sínu.“ SGV – Mbl

    „Sýningin er bráðskemmtileg. Meistaralega gert.“ JBG – Fbl

    „Stundum hélt ég að ég ætlaði að kafna úr hlátri.“ SA – tmm.is

    Tvær sýningar eftir af Sporvagninn Girnd

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    sporvagningirnd stór

    Það eru aðeins tvær sýningar eftir af Sporvagninum Girnd eftir Tennessee Williams.

    Hið seiðmagnaða leikrit Sporvagninn Girnd er eitt þekktasta verk bandarískra leikbókmennta á 20. öld.

    Hin viðkvæma og fíngerða Blanche DuBois má muna sinn fífil fegri. Þegar veröld hennar virðist vera að hrynja leitar hún ásjár hjá Stellu, yngri systur sinni, sem býr í verkamannahverfi í New Orleans. Í eilífri leit sinni að fegurð, mildi og umhyggju verður Blanche fyrir áfalli þegar hún kynnist hinum ruddafengna og ósiðaða Stanley, eiginmanni Stellu, og spennan magnast fljótt á milli þeirra. Blanche líður best í hálfrökkri, en óttast það mest að vera afhjúpuð og að napur sannleikurinn blasi við.

    Stefán Baldursson er einn fremsti leikstjóri þjóðarinnar en nýjasta uppsetning hans, óperan Ragnheiður, hlaut Grímuna sem besta sýning ársins á liðnu leikári.

    Aukasýning á „Þvottur“

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    þvottur stór

    Aukasýning á „Þvottur“ eftir Matthías Tryggva Haraldsson verður sýnd í Tjarnarbíói þann 8. mars, kl. 20:30

    „Þessi skafa er hluti af mér, þessi skafa er ég og ég er þessi skafa.“

    Þvottur er stutt leikrit um eilífan glerþvott. Maður nokkur þvær stóra plötu með lítilli sköfu. Annar sér til þess að platan sé þvegin. Þriðji á plötuna og sköfuna og hefur komið reglu á hlutina í þessum rokrassi.

    Ketiltetur kompaní er sjálfstæður sviðslistahópur sem varð til innan veggja Listaháskóla Íslands haustið 2015. Listrænir stjórnendur og leikarar eru nemar við Sviðslistadeild LHÍ.

    AÐSTANDENDUR
    Handrit og leikstjórn: Matthías Tryggvi Haraldsson
    Aðstoðarleikstjórn og útlit: Alma Mjöll Ólafsdóttir
    Framleiðsla og ljós: Stefán Ingvar Vigfússon
    Tónlist: Friðrik Guðmundsson
    Leikmynd: Klemens Hannigan

    Leikarar:
    Aron Már Ólafsson – Jósef
    Árni Beinteinn – Jens
    Hákon Jóhannesson – Styrmir

    Ljósmyndari: María Guðjohnsen
    Grafísk hönnun: Helga Dögg Ólafsdóttir

    Hleyptu þeim rétta inn

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    hleyptuþeimréttainn stór

    Hrífandi verk um einelti, einsemd og óvenjulega vináttu.

    Unglingsstrákurinn Óskar er einmana og vinalaus, og lagður í gróft einelti í skóla. Þegar hin dularfulla Elí flytur inn í íbúðina við hliðina á honum, þar sem hann býr einn með móður sinni, umturnast tilvera hans.

    Þegar undarlegir og óhugnanlegir atburðir fara að eiga sér stað á svæðinu, áttar Óskar sig smám saman á því hvert leyndarmál Elí er. Hún er vampíra, sem verður að nærast á blóði fólks til að komast af. En hún er líka einstaklingur sem er einmana og utangarðs, rétt eins og Óskar sjálfur. Smám saman þróast á milli Óskars og Elís vinátta sem hvorugt þeirra átti von á eða gat látið sig dreyma um.

    Hvað myndir þú taka til bragðs ef nýi nágranninn þinn væri vampíra?

    Leikritið Hleyptu þeim rétta inn er byggt á metsölubók og kvikmynd sænska rithöfundarins Johns Ajvides Lindqvists. Sænska kvikmyndin hefur notið mikillar hylli og var endurgerð í Hollywood undir nafninu Let Me In. Leikritið Let the Right One In hefur verið sýnt við miklar vinsældir í Royal Court leikhúsinu í London, Skoska þjóðleikhúsinu, St. Ann’s Warehouse í New York og á Norðurlöndunum.

    Aldursviðmið: Fyrir fullorðna og óhrædda unglinga frá 12 ára aldri.

    Þjóðleikhúsið býður áhorfendum upp á umræður eftir 6. sýningu verka, með þátttöku leikara og listrænna aðstandenda.

    Verkið er sýnt samkvæmt samkomulagi við Marla Rubin Productions Ltd.

     

    Ein sýning eftir af Flóði

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    flóð stór

    Þann 13. mars nk. er síðasta sýning á leikverkinu „Flóð“ sem sýnd er á Litla sviði Borgarleikhússins.

    Flóð er áhrifamikið nýtt íslenskt heimildaverk um mikilvægi þess að varðveita söguna fyrir börnin okkar og framtíðina, um samstöðu og samheldni og það sem skiptir raunverulegu máli í lífinu.

    Árið 1995 féll stórt snjóflóð á bæinn Flateyri á Vestfjörðum. Þrjátíu og þrjú hús lentu undir flóðinu, tuttugu manns týndu lífi, þrjátíu og fjórir björguðust. Flóð er heimildaverk byggt á þessum atburðum. Á þessu ári eru 20 ár liðin frá því að flóðið féll og vill Borgarleikhúsið minnast atburðanna sem mörkuðu djúp spor í þjóðarsálina á sínum tíma.

    Þátttakendur í sýningunni rannsaka og rifja upp atburði, spyrja spurninga og raða saman brotum frá þessari örlagaríku nótt 26. október árið 1995. Við fáum innsýn í sögur fólksins í þorpinu, þeirra sem lentu í flóðinu og þeirra sem stóðu utan við það, björgunarmanna og barnanna sem voru of ung til að muna atburðarásina en lifðu eftirmála flóðsins og ólust upp við umtalið og þögnina sem fylgdi í kjölfarið. Verkið er byggt á nýlegum viðtölum við Flateyringa og unnið í nánu samstarfi við þá.

    Hrafnhildur Hagalín (1965) er leikskáld og listrænn ráðunautur Borgarleikhússins. Hún hefur sent frá sér leikrit um áratugaskeið og hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín.

    Björn Thors (1978) er margverðlaunaður leikari. Hann var meðhöfundur að verkinu Kenneth Máni sem sló rækilega í gegn
    í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári.

    Flóð er hans fyrsta leikstjórnarverkefni við Borgarleikhúsið.

    Sýning á miðvikudaginn!

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    improvisland stór

    Improv Ísland byrjar með vikulegar grínsýningar í Þjóðleikhúskjallaranum á miðvikudögum.

    Hver sýning er spunnin á staðnum út frá einu orði úr sal og ekkert er ákveðið fyrirfram. Nýtt leiklistarform í senunni hér á landi.

    Improv Íslands er nýr leikhópur sem sérhæfir sig í langspuna. Hver sýning er spunninn á staðnum út frá einu orði áhorfenda. Ekkert er ákveðið fyrirfram, ekkert handrit er að sýningunum og er því hver sýning frumsýning og lokasýning. Improv Ísland getur lofað áhorfendum því að sama hversu oft þeir koma, þeir munu aldrei sjá sömu sýninguna. Miðinn kostar líka einungis 1500 kr. svo líklega er um að ræða ódýrustu leikhússýningu landsins.

    Langspuni er mjög vinsæll víða um heim þá sérstaklega í Bandaríkjunum. Margir af frægustu gamanleikurum Bandaríkjanna koma úr spunasenunni og má sem dæmi nefna Tinu Fey, Will Ferrell, Steve Carrell, Amy Poehler og Aziz Ansari.
    Improv Ísland er rétt rúmlega eins árs gamalt en tók þátt í Del Close spunamaraþoninu í New York í júní sl. Þar sýna allir helstu spunahópar heims spunasýningar viðstöðulaust í þrjá sólahringa. Síðustu tvær Menningarnætur hefur hópurinn staðið fyrir spunamaraþoni í Þjóðleikhúskjallaranum. Í bæði skiptin komust mun færri að en vildu. Improv Ísland hefur einnig flutt inn nokkra af stærstu kennurum og leikurum spunasenunnar í Bandaríkjunum. Á frumsýningunni 3. febrúar munu Suzi Barrett og Rebecca Drysdale sýna með hópnum en þær munu einnig halda námskeið fyrir lengra koman í kringum heimsókn sína. Báðar sýna þær í UCB leikhúsinu í New York en Rebecca Drysdale er einnig handritshöfundur í gamanþáttunum Key and Peele.

    Dóra Jóhannsdóttir leikkona er stofnandi langspunasenunar hérlendis. Hún hefur lært langspuna í hinu þekkta UCB leikhúsi síðastliðin 3 ár og komið reglulega til Íslands til að kenna námskeið. Síðan þá hafa um 300 manns sótt námskeið á vegum Improv Íslands undir leiðsögn Dóru. Leikhópur Improv Ísland samanstendur svo af 20 spunaleikurum úr öllum áttum og sýnir hópurinn nokkur mismunandi form spunans, m.a. söngleikjaspuna þar sem heill söngleikur er spunninn á staðnum með píanóleikaranum Karli Olgeirssyni.

    Sýningar verða alla miðvikudaga í Þjóðleikhúskjallaranum og hefjast kl. 19:30 Miðasala fer fram á midi.isleikhusid.is og í síma 551 1200.

    Síðasta sýning á Virginiu Woolf

    feb 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    hvererhræddurviðvirginuwoolf stór

    Í kvöld er síðasta sýning af „Hver er hræddur við Virginiu Woolf?“ á Nýja sviði Borgarleikhússins.

    Marta og Georg elska hvort annað. Þau vita allt um sig og lífið en samt – eða einmitt þess vegna- eru þau ekki hamingjusöm. Hann er sögukennari við lítinn háskóla, hún heimavinnandi. Að lokinni rektorsveislu í háskólanum býður Marta nýja unga líffræðikennaranum og konu hans heim í eftirpartý án vitneskju eiginmanns síns. Hann þekkir allt of vel gestaleiki konu sinnar. Hún veit allt um völd sín og áhrif og nýtur þess að leika sér að tilfinningum annarra. Miskunnarlaus stigmagnandi barátta hrekur fjórar glæsilegar persónur út á ystu nöf í þessu stórkostlega leikriti.

    Edward Albee er eitt fremsta leikskáld Ameríku. Leikritið “Hver er hræddur við Virginíu Woolf?” var frumsýnt í New York árið 1962 og kvikmyndað skömmu síðar með þeim Elizabeth Taylor og Richard Burton og hefur allar götur síðan talist til sígildra leikrita og leikið um allan heim. Leikritið og höfundurinn eru margverðlaunuð í bak og fyrir og hefur meðal annars hlotið Pulizer-verðlaunin í tvígang.

    Aðstandendur Höfundur: Edward Albee | Þýðing: Salka Guðmundsdóttir | leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson | Leikmynd: Gretar Reynisson | Búningar: Helga I. Stefánsdóttir | Lýsing: Þórður Orri Pétursson| Tónlist: Margrét Kristín Blöndal |Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir | Hljóð: Ólafur Örn Thoroddsen |  Leikarar: Elma Stefanía Ágústsdóttir, Eysteinn Sigurðarson, Hilmir Snær Guðnason og Margrét Vilhjálmsdóttir.

    Síður:«1...1011121314151617»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!