Leikfélag Hveragerðis frumsýnir föstudaginn 7. febrúar nk. nýtt íslenskt leikrit, sem fengið hefur nafnið Þjóðsaga til næsta bæjar. Leikritið er byggt á þjóðsögum Jóns Árnasonar en 200 ár voru liðin frá fæðingu hans sl. haust. Jón skráði og safnaði hundruðum íslenskra þjóðsagna, ævintýra og munnmælasagna um ævina. Sögum sem annars væru án efa flestar gleymdar og tröllum gefnar. Með sýningunni vill leikfélagið heiðra minningu Jóns.
Höfundur leikgerðar og leikstjóri er hinn góðkunni leikari Örn Árnason en hann hefur einnig samið söngtexta og flest lögin í sýningunni. Verkið er spunnið saman úr nokkrum þekktustu þjóðsögum og ævintýrum sem Jón hélt til haga, meðal annars koma hinir „bráðskörpu“ Bakkabræður töluvert við sögu og að sjálfsögðu hin geðþekka Gilitrutt.
Æfingar hafa staðið yfir síðan í byrjun nóvember og hafa gengið vel. 22 leikarar fara með fjölda hlutverka, en alls koma 32 að verkinu. Sýnt er í Leikhúsinu að Austurmörk 23 Hveragerði. Miðapantanir eru í síma 863-8522.
Þann 25. janúar frumsýndi Leikfélag Húsavíkur leikritið Litla Hryllingsbúðin eftir Howard Ashman og Alan Menken í leikstjórn Völu Fannell í Samkomuhúsinu á Húsavík.
Litla Hryllingsbúðin er sígildur rokksöngleikur, fyrir alla fjölskylduna, fullur af húmor, kraftmikilli tónlist, heillandi persónum og krassandi söguþræði. Verkið fjallar um erkilúðan Baldur sem lifir frekar óspennandi lífi. Hann eyðir fábrotnum dögum sínum við vinnu í blómabúðinni hans Markúsar. Hann lætur sig dreyma um ástir Auðar sem vinnur með honum í búðinni. Dag einn uppgötvar Baldur undarlega plöntu sem hann nefnir Auði II í höfuðið á sinni heittelskuðu. Plantan vekur óskipta athygli og viðskiptin blómstra sem aldrei fyrr og Baldur verður stöðugt vinsælli. Kvöld eitt kemur í ljós að plantan getur talað og hún lofar Baldri frægð og frama, gulli og grænum skógum. En sá galli er á gjöf Njarðar að plantan nærist á mannablóði og vill helst fá ferskt mannakjöt að borða. Inn í söguna blandast svo kærasti Auðar, tannlæknir með kvalarlosta og atburðarrásin tekur óvænta stefnu.
Leikfélag Húsavíkur fagnar í ár 120 ára afmæli og besta afmælisgjöfin væri sú að allir þeir sem vettlingi geta valdið komi til okkar í Gamla Samkomuhúsið, skemmti sér yfir Litlu Hryllingsbúðinni og fagni um leið með okkur 120 ára afmælinu.
Tvær sögur – eða alltaf sama sagan? Borgarleikhúsið – Einn daginn neitar húsmóðirin að leika hlutverk sitt og hættir að sinna heimilinu. Hún fer í verkfall, leggur niður störf og leirtauið safnast upp. Hvernig tekst heimilisfólki að aðlagast breyttum hlutverkum kynjanna og nýjum valdahlutföllum? Verkið er fjölskyldusaga sem sögð er á tveimur mismunandi tímabilum með áherslu á áhrif hverrar kynslóðar á þá næstu og samskipti hjóna í blíðu og stríðu. Er hægt að brjótast undan hlutverkunum? Eða verður þú alltaf mamma þín?
María Reyndal hefur á undanförnum árum getið sér gott orð sem höfundur og leikstjóri. Kvenfélagið Garpur, sem setur upp verkið í samstarfi við Borgarleikhúsið, hefur áður vakið athygli fyrir Mannasiði og Sóleyju Rós, ræstitækni sem hlaut fimm Grímutilnefningar og tvenn Grímuverðlaun árið 2017 fyrir leikrit ársins og leikkonu ársins í aðalhlutverki. Mannasiðir var páskamynd RÚV 2018 og hlaut 4 Eddutilnefningar og var valið besta leikna sjónvarpsefni ársins 2018.
Verkið er styrkt af Leiklistarráði, Starfslaunasjóði listamanna og Reykjavíkurborg.
Nemendamótsnefnd Verzlunarskóla Íslands setur upp ár hvert stórglæsilegan söngleik.Í ár varð söngleikurinn Alladín og töfralampinn fyrir valinu sem er byggður á Disney teiknimyndinni Aladdin sem var gefin út árið 1992 og endurgerð leikin útgáfa árið 2019.
Þessi söngleikur hefur aldrei verið settur upp af þessari stærðargráðu á Íslandi. Söngleikurinn verður sýndur í Austurbæ og er það Agnar Jón Egilsson sem leikstýrir sýningunni. Listrænir stjórnendur eru annars Pálmi Sigurhjartarson tónlistarstjóri og Rósa Rún dansstjóri. Allir listrænir stjórnendur sýningarinnar hafa veigamikla reynslu og þekkingu á sínu sviði og verður öllu til tjaldað.
Söngleikurinn í ár segir frá Alladín sem er fátækur þjófur sem einn daginn hittir fyrir slysni prinsessuna Jasmín án þess að gera sér grein fyrir því hver hún er. Hann varð ástfanginn af henni við fyrstu sýn en uppgötvar síðan seinna hvert hennar raunverulega hlutverk er. Alladín heldur að hann gæti bara verið með henni ef hann væri konungsborinn sem hann er svo sannarlega ekki. Hann leitar margra lausna og finnur að lokum töfralampa sem veitir honum þrjár óskir. Alladín reynir að nýta óskirnar til að heilla Jasmín og fjallar söngleikurinn um hvernig hann fer með óskirnar og í hvaða ævintýri töfralampinn leiðir hann.
Þitt eigið leikrit er glæný tegund af leikhúsi sem varð til í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu árið 2019. Með þar til gerðum fjarstýringum stjórna áhorfendur sjálfir atburðarásinni!
Í kjölfarið á sýningunni Þitt eigið leikrit I – Goðsaga, kemur ný sýning, Þitt eigið leikrit II – Tímaferðalag. Nýja sýningin er enn lengri og viðameiri en sú fyrri, og nú er haldið af stað í æsispennandi ferð um rúm og tíma!
Ef þú gætir ferðast hvert sem er, fram eða aftur í tíma, – hvert myndirðu fara? Myndirðu reyna að hafa áhrif á fortíðina eða viltu kannski skoða framtíðina? Viltu eignast gæludýr sem er grameðla, reyna að bjarga einhverjum úr fortíðinni eða skjótast út í geim eftir hundrað ár? Valið er þitt!
Leiksýningin Þitt eigið leikrit I – Goðsaga var tilnefnd til Grímunnar sem barnasýning ársins 2019.
Samkvæmt tilkynningu frá stjórn LR voru sjö sem sóttu um stöðu Borgarleikhússtjóra, sem auglýst var til umsóknar þann 16. janúar síðastliðinn. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur mun nú vinna úr umsóknunum og birta niðurstöðu sína á næstu vikum, að því er fram kemur í tilkynningunni. Listi yfir umsækjendur mun ekki verða birtur.
Seinna ráðningartímabil Kristínar Eysteinsdóttur, núverandi Borgarleikhússtjóra, rennur út í júlí 2021. Umsóknarfrestur rann út þann 30. janúar síðastliðinn en í auglýsingu um umsóknarferlið var tekið fram að stjórn LR vildi undirbúa ráðningu eftirmanns Kristínar tímanlega.
Kristín hefur verið leikhússtjóri frá árinu 2014. Nýr leikhússtjóri mun þó byrja að vinna með Kristínu strax í upphafi árs 2021.
Sýningin sem hefur farið sigurför um heiminn snýr aftur á svið!
Lífið er stórskemmtilegt drullumall á mörkum leikhúss og myndlistar fyrir alla fjölskylduna. Sýningin er unnin með óvenjulegri aðferð þar sem sagan í verkinu fær að kvikna út úr efniviðnum sem notaður er í sýningunni. Lífið fjallar um sköpunarkraft, vináttu og hringrás lífsins, þar sem unnið er með mold.
Lífið hefur hlotið einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda, jafnt á Íslandi sem erlendis.
Verkið hefur m.a. verið sýnt í Kína, Þýskalandi, Hollandi, Noregi og á Möltu og verða örfáar sýningar í Tjarnarbíói í haust.
Lífið var valin besta barnasýningin ársins 2015 á Grímunni – Íslensku sviðslistaverðlaununum, auk þess sem leikhópurinn Tíu fingur var valinn Sproti ársins 2015. Sprotinn er veittur einstaklingi eða hópi sem þykir sýna einstakan frumleika og framúrskarandi nýbreytni í sköpun sinni í sviðslistum.
„Það er allt fallegt við þessa sýningu. Allar stjörnurnar í húsinu!“ G.S.E. – Djöflaeyjan
„Lífið er yndisleg sýning!“ S.B.H. – Morgunblaðið
„Það verður seint fullþakkað að til eru listamenn sem bjóða yngri börnum leikhússupplifun sem er valkostur við hraðann, hávaðann og íburðinn í stóru barnasýningunum.“ D.K. – Hugrás
Höfundar: Leikhópurinn Tíu Fingur Listrænir stjórnendur: Helga Arnalds og Charlotte Böving Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir, Sveinn Ólafur Gunnarsson Tónlist: Margrét Kristín Blöndal Ljósahönnun: Björn Bergsteinn Guðmundsson Tæknimenn: Arnþór Þórsteinsson og Hafliði Emil Barðason Styrktaraðilar: Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Sviðslistasjóður, Starfslaunasjóður listamanna og Reykjavíkurborg
Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. Öll sviðsverk koma til greina. Þau verk sem verða fyrir valinu mynda saman leikárið 20/21 í Tjarnarbíói og fá þar af leiðandi aðgang að ókeypis æfingaaðstöðu, stuðningi í markaðs- og tæknimálum, faglegri ráðgjöf ásamt hlutdeild í miðasölu viðkomandi sýningar.
Einnig auglýsir Tjarnarbíó eftir listafólki eða hópum sem hefur áhuga á að vera með vinnustofur (e. Residency) í Tjarnarbíói. Þau fá afnot af rými í húsinu til að vinna í, aðgang að sviðinu þegar það er laust, og skrifstofuaðstöðu með öðrum. Starfsfólk Tjarnarbíós býður fram faglega ráðgjöf og stuðning. Umsókn um vinnustofur skal innihalda stutta lýsingu á því verkefni sem áætlað er að unnið verði ásamt ferilskrá umsækjenda.
Umsóknin skal innihalda stutta greinagerð um verkefnið, lista yfir þátttakendur, fjárhagsáætlun og ferilskrá umsækjenda. Umsóknin og allt efni sem þeim viðkemur skal safna í eina pdf-skrá merkta umsokn_2020_[nafn verkefnis] og senda á umsokn@tjarnarbio.is. Umsóknir sem ekki fara eftir umbeðnum kröfum eða í vantar gögn verða ekki teknar til greina.
Stjórn Menningarfélags Tjarnarbíós velur úr umsóknum í samráði við framkvæmdastjóra samkvæmt valferlisreglum. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 14. febrúar næstkomandi og umsóknum verður svarað ekki síðar en mánuði síðar.
Söngleikur sem inniheldur allan tilfinningaskalann og hefur farið sigurför um heiminn.
Hrífandi söngleikur sem fjallar um tilfinningarnar sem berjast innra með okkur á unglingsárunum, þrá eftir frelsi, vináttuna, samskipti, varnarleysi, fyrstu ástina og baráttuna um að komast af í hörðum heimi.
Vinunum Melchior, Moritz og Wendlu gengur misvel að fóta sig í harðneskjulegum heimi fullorðna fólksins og verða ýmist fórnarlömb eða sigurvegarar í samfélagi þar sem litið er niður á fólk sem fer á móti straumnum og ógnar þröngsýnum og afturhaldssömum viðhorfum.
Uppfærsla söngleiksins á Broadway hlaut átta Tony verðlaun auk fjölda annarra verðlauna og tilnefninga.
Söngleikur í hæsta gæðaflokki um drauma og þrár, kjarkinn til að fara á móti straumnum og taka ábyrgð á eigin tilfinningum.
Vorið vaknar er nú sett upp í fyrsta sinn í atvinnuleikhúsi á Íslandi.
Leikstjórn: Marta Nordal Tónlistarstjórn: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Leikmynd og búningar: Auður Ösp Guðmundsdóttir Danshöfundur: Lee Proud Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson Sýningarstjórn: Þórunn Geirsdóttir Þýðing: Salka Guðmundsdóttir
Leikarar: Ahd Tamimi, Ari Orrason, Árni Beinteinn Árnason, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Eik Haraldsdóttir, Jónína Björt Gunnarsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Rúnar Kristinn Rúnarsson, Viktoría Sigurðardóttir, Þorsteinn Bachmann og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir.
„SPRING AWAKENING”
Eftir Steven Slater og Duncan Sheik. Flutt með leyfi Nordiska APS Copenhagen
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur samþykkt tillögu leiklistarráðs um styrki til atvinnuleikhópa fyrir árið 2020. Alls bárust 105 umsóknir frá 97 atvinnuleikhópum og sótt var um ríflega 625 milljónir króna. Hæsta styrkinn í ár fær leikhópurinn 10 fingur eða 10.815 milljónir. Árangurshlutfall umsækjenda er um 19 prósent.
Að þessu sinni var ákveðið að veita 93.999 milljónum króna til 20 verkefna sem skiptast þannig: tíu leikverk, ein barnasýning, ein sirkussýning, fjögur dansverk, þar af eitt dansverk fyrir börn, og fjórar óperur, þar af ein barnaópera.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir þá atvinnuleikhópa sem hlutu styrk.
Leikhópurinn 10 fingur fær rúmlega 10,8 milljónir króna fyrir barnasýninguna Stúlkan sem lét snjóa
Óperuleikfélagið Alþýðuóperan fær rúmlega 3,2 milljónir fyrir óperuna Corpo Sureal
Dáið er allt án drauma minna fær rúmlega 5,3 milljónir fyrir óperuna Drottinn blessi heimilið
Danfélagið Lúxus fær rúmlega 3,1 milljón fyrir dansverkið Derringur
félagssamtökin EP fá rúmlega 6,6 milljónir króna leikverkið Haukur og Lilja
Gaflaraleikhúsið fær rúmlega 4 milljónir fyrir verkið Ellismelli
Galdur Productions fá rúmlega 5,3 milljónir dansverkið The Practice performed
Herðar hné og haus fá rúmar 4,3 milljónir fyrir óperuna KOK
Hringleikur fær tæpar 2,5 milljónir fyrir sirkus verkið Allra veðra von
Framleiðslufyrirtækið Huldufugl fær rúmar 3,6 milljónir fyrir innsetningarverkið Kassar
Inga Huld Hákonardóttir fær rúmar 4,8 milljónir fyrir dansverkið Þrumur
Leikfélagið Kanarí fær rúmar 2,6 milljónir fyrir leikverkið Alt sem er glatað
Kómedíuleikhúsið fær tæpar 3,2 milljónir fyrir leikritið Bakkabræður
Leikfélagið Konserta fær rúmlega 4 milljónir fyrir leikverkið Sagan
Pétur Ármasson fær rúma 3,1 milljón fyrir dansverkið Duet
PólÍs fær rúma 4,1 milljón fyrir leikverkið Co za poroniony pomysl/Úff, hvað þetta er slæm hugmynd
Sómi þjóðar fær rúma 8,5 milljónir fyrir leikverkið Lokasýning eða örvænting
Sviðslistahópurinn Skrúður fær rúmar 2,3 milljónir fyrir barnaóperuna Fuglabjargið
Svipir ehf fær rúmar 6,8 milljónir fyrir leikverið Sunnefa
Tapúla rasa fær rúma 5,1 milljón fyrir leikverkið The last kvöldmáltíð.