Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári.

    Tjarnarbíó kallar eftir umsóknum um samstarfsverkefni á komandi leikári. Öll sviðsverk koma til greina. Þau verk sem verða fyrir valinu mynda saman leikárið 20/21 í Tjarnarbíói og fá þar af leiðandi aðgang að ókeypis æfingaaðstöðu, stuðningi í markaðs- og tæknimálum, faglegri ráðgjöf ásamt hlutdeild í miðasölu viðkomandi sýningar.

    Einnig auglýsir Tjarnarbíó eftir listafólki eða hópum sem hefur áhuga á að vera með vinnustofur (e. Residency) í Tjarnarbíói. Þau fá afnot af rými í húsinu til að vinna í, aðgang að sviðinu þegar það er laust, og skrifstofuaðstöðu með öðrum. Starfsfólk Tjarnarbíós býður fram faglega ráðgjöf og stuðning. Umsókn um vinnustofur skal innihalda stutta lýsingu á því verkefni sem áætlað er að unnið verði ásamt ferilskrá umsækjenda.

    Umsóknin skal innihalda stutta greinagerð um verkefnið, lista yfir þátttakendur, fjárhagsáætlun og ferilskrá umsækjenda. Umsóknin og allt efni sem þeim viðkemur skal safna í eina pdf-skrá merkta umsokn_2020_[nafn verkefnis] og senda á umsokn@tjarnarbio.is. Umsóknir sem ekki fara eftir umbeðnum kröfum eða í vantar gögn verða ekki teknar til greina.

    Stjórn Menningarfélags Tjarnarbíós velur úr umsóknum í samráði við framkvæmdastjóra samkvæmt valferlisreglum. Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 14. febrúar næstkomandi og umsóknum verður svarað ekki síðar en mánuði síðar.

    Praktískar upplýsingar:
    Umsóknir og fyrirspurnir skal senda á umsokn@tjarnarbio.is
    Umsóknir berist fyrir miðnætti þann 14. febrúar 2020



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!