Uncategorized | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Browsing "Uncategorized"

    Grímuverðlaun 2020 afhent

    jún 16, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Sjálfstæðir sviðslistahópar fengu 6 af þeim 18 verðlaunum sem voru í boði á Grímuni í ár og má því segja að framtíðinn sé björt í leikhúsflóru landsins.
    Úrslit Grímunnar voru eftirfarandi:

    Sýn­ing árs­ins
    Atóm­stöðin – end­ur­lit í sviðsetn­ingu Þjóðleik­húss­ins
    Leik­rit árs­ins 
    Helgi Þór rofn­ar eft­ir Tyrf­ing Tyrf­ings­son
    Leik­stjóri árs­ins
    Una Þor­leifs­dótt­ir – Atóm­stöðin – end­ur­lit
    Leik­ari árs­ins í aðal­hlut­verki
    Sveinn Ólaf­ur Gunn­ars­son – Rocky!
    Leik­kona árs­ins í aðal­hlut­verki

    Ebba Katrín Finns­dótt­ir – Atóm­stöðin – end­ur­lit
    Leik­ari árs­ins í auka­hlut­verki
    Hilm­ir Snær Guðna­son – Vanja frændi
    Leik­kona árs­ins í auka­hlut­verki
    Krist­björg Kj­eld – Er ég mamma mín?
    Leik­mynd árs­ins

    Finn­ur Arn­ar Arn­ar­son – Eng­ill­inn
    Bún­ing­ar árs­ins
    Guðný Hrund Sig­urðardótt­ir – Eyður
    Lýs­ing árs­ins
    Ólaf­ur Ágúst Stef­áns­son – Atóm­stöðin – end­ur­lit
    Tónlist árs­ins
    Gunn­ar Kar­el Más­son – Eyður
    Hljóðmynd árs­ins

    Nicolai Hovga­ard Johan­sen – Spills
    Söngv­ari árs­ins
    Kar­in Björg Tor­björns­dótt­ir – Brúðkaup Fígarós
    Dans- og sviðshreyf­ing­ar árs­ins
    Marm­ara­börn – Eyður
    Dans­ari árs­ins
    Shota In­oue – Þel
    Dans­höf­und­ur árs­ins+
    Katrín Gunn­ars­dótt­ir – Þel
    Sproti árs­ins

    Reykja­vik Dance Festi­val
    Barna­sýn­ing árs­ins

    Gosi, æv­in­týri spýtustráks
    Heiður­sverðlaun Sviðslista­sam­bands Íslands
    Ingi­björg Björns­dótt­ir

    Ingi­björg Björns­dótt­ir hlaut heiður­sverðlaun Sviðslista­sam­bands Íslands 2020

    Tilnefningar til Grímunnar 2020 tilkynntar

    jún 4, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Tilnefningar til Grímunnar 2020 hafa verið tilkynntar.  Atómstöðin, Engillinn og Eyður eru tilnefndar sem sýningar ársins og leikrit ársins en dansverkin Spill og Þel eru einnig tilnefndar sem sýningar ársins og Helgi Þór rofnar og Kartöflur sem leikrit ársins.

    Þjóðleikhúsið er með 41 tilnefningu og Borgarleikhúsið með 14. 

    Finnur Arnar Arnarsson, Kristín Jóhannesdóttir, Marmarabörn, Una Þorleifsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson eru tilnefnd sem leikstjórar ársins.

    Björn Thors, Eggert Þorleifsson, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Snær Guðnason og Sveinn Ólafur Gunnarsson eru tilnefndir sem leikarar ársins í aðalhlutverki.

    Ebba Katrín Finnsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Nína Dögg Filuppusdóttir og Þuríður Blær Jóhannsdóttir eru tilnefndar sem leikkonur ársins í aðalhlutverkum.  

    Tilnefningar sem söngvari ársins 2020 fengu Rúnar Kristinn Rúnarsson fyrir Vorið vaknar í sviðsetningu Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Valgerður Guðnadóttir fyrir Mamma Klikk í sviðsetningu Gaflaraleikhússins og þrjár söngkonur Brúðkaupi Fígarós í sviðsetningu Íslensku óperunnar  í samstarfi við Þjóðleikhúsið; þær Eyrún Unnarsdóttir, Karin Thorbjörnsdóttir og Þóra Einarsdóttir.

    Sturla Atlas verður Rómeó

    jún 3, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Sigurbjartur Sturla Atlason, eða Sturla Atlas eins og hann er betur þekktur, mun fara með hlutverk Rómeó í uppsetningu Þorleifs Arnar á Rómeó og Júlíu á Stóra sviði Þjóðleikhússins á næsta leikári. Fjórtán leikurum var boðið í ítarlegar prufur fyrir hlutverkið en alls höfðu um 100 sótt um. Sturla Atlas var á endanum sá sem hreppti hnossið. Ebba Katrín Finnsdóttir mun fara með hlutverk Júlíu, eins og áður hefur komið fram.

    Þjóðleikhúsið undirbýr nú viðamikla uppsetningu á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Það hefur legið ljóst fyrir um nokkurn tíma að Ebba Katrín Finnsdóttir muni fara með hlutverk Júlíu, en ákveðið var að halda prufur fyrir leikara á aldrinum 20-30 ára til að finna hinn eina rétta í hlutverk Rómeós. Fjórtán leikurum var boðið í ítarlegar prufur fyrir hlutverkið en alls höfðu um 100 sótt um. Sturla Atlas var á endanum sá sem hreppti hnossið.

    Sigurbjartur Sturla Atlasason, eða Sturla Atlas eins og hann er eflaust betur þekktur, hefur verið áberandi á undanförnum árum sem leikari en ekki síður sem einn vinsælasti tónlistarmaður landsins meðal ungs fólks. Hann var útnefndur bjartasta vonin á Íslensku Tónlistarverðlaununum árið 2016 og hefur nýverið sent frá sér plötuna Paranoia sem hefur fengið frábærar viðtökur. Eftirminnileg eru hlutverk hans í Ófærð 2 og kvikmyndinni Lof mér að falla svo fátt eitt sé nefnt. Æfingar á Rómeó og Júlíu hefjast snemma á næsta ári en verkið verður frumsýnt í mars 2021.

    Þorleifur Örn Arnarsson hefur verið í hópi fremstu leikstjóra Íslendinga um árabil. Hann leikstýrði mörgum rómuðustu sýningum síðustu ára hér á landi, eins og Englum alheimsins og Njálu. Þá hefur hann notið mikillar velgengni í Evrópu og undanfarið verið einn stjórnenda hins virta leikhúss Volksbühne í Berlín. Nú í febrúar var tilkynnt um að Þorleifur gengi til liðs við Þjóðleikhúsið sem samningsbundinn leikstjóri og mun hann leikstýra einni sýningu árlega við húsið á næstu árum. Við hlið Þorleifs mun starfa einstaklega sterkur hópur listrænna stjórnenda. Ilmur Stefánsdóttir mun hanna leikmynd og Björn Bergsteinn Guðmundsson er ljósahönnuður. Þá hefur Kristján Ingimarsson verið ráðinn til sjá um kóreógrafíu í sýningunni en hann hefur vakið athygli hér á landi eiog víða um heim fyrir ævintýralegar sýningar og skemmst er að minnast BLAM sem sló í gegn hér fyrir nokkrum árum. 

    Ebba Katrín Finnsdóttir verður Júlía
    Ebba Katrín Finnsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands fyrir tveimur árum. Hún sýndi framúrskarandi leik í aðalhlutverki í sjónvarpsþáttaröðinni Mannasiðum á RÚV. Þá lék hún nokkur hlutverk á samningi í Borgarleikhúsinu í fyrra og á þessu leikári lék Ebba Katrín aðalhlutverkið, Uglu, í Atómstöðinni og burðarhlutverk í Þitt eigið leikrit II í Þjóðleikhúsinu. 

    Leikhópurinn Lotta frumsýnir Bakkabræður

    jún 1, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.

    Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp fjölskyldusöngleik byggðan á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.

    Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.
    Að vanda sýnir Leikhópurinn Lotta um allt land í sumar og fylgir að sjálfsögðu fyrirmælum sóttvarnarlæknis. Vegna fjöldatakmarkana verður eingöngu hægt að tryggja sér miða fyrirfram tix.is eins og er.

    Fyrstu sýningar sumarsins eru nú komnar í sölu!
    Við bætum reglulega við sýningum um allt land svo endilega fylgist með okkur á www.leikhopurinnlotta.is

    Leikstjórn: Þórunn Lárusdóttir
    Leikarar:  Andrea Ösp Karlsdóttir, Huld Óskarsdóttir,
    Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson,
    Stefán Benedikt Vilhelmsson og Viktoría Sigurðardóttir.
    Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
    Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson.
    Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson
    Hljóðhönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson
    Búningahönnun: Kristína R. Berman
    Danshöfundur: Viktoría Sigurðardóttir
    Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
    Leikmunir: hópurinn

    Sýningar gætu hafist síðsumars eða í haust!

    maí 11, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Listafólk gleðst yfir fréttum um að tveggja metra reglan verði ekki ófrávíkjanleg eftir tuttugasta og fimmta maí. Borgarleikhússtjóri sér fram á að geta haft leiksýningar í haust. Skipuleggjandi tónleika segir að ef reglan gilti áfram væri það dauðadómur yfir nánast öllum viðburðum.

    Næstu tilslakanir á samkomubanni verða 25. maí. Eftir það verður hámarksfjöldi þeirra sem mega koma saman hækkaður í minnst hundrað manns og tveggja metra reglan verður ekki ófrávíkjanleg. Sóttvarnalæknir áréttaði þetta á fundi almannavarna í gær. 

    „Það er ljóst af umræðunni að okkur, og þá kannski mér, hefur mistekist að útskýra í hverju þessi regla felst og vil ég biðjast afsökunar á því,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í gær. „Almennt verður slakað á þessari reglu,“ segir Þórólfur. Aftur á móti sé mælst til þess að hver og einn viðhafi hana eftir fremsta megni sem hluta af einstaklingssmitvörnum.

    Engu minna áfall fyrir menningargeirann en ferðaþjónustuna
    Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu, segir þetta skipta gríðarlega miklu máli. „Við vorum öll í panikki yfir því að tveggja metra reglan yrði hörð, ófrávíkjanlega regla út árið, sem er í raun og veru hálfgerður dauðadómur yfir öllu viðburðarhaldi,“ segir Ísleifur. 

    Brynhildur Guðjónsdóttir Borgarleikhússtjóri tekur í sama streng. „Þetta var alveg blaut tuska framan í okkur þarna þegar það var sagt að tveggja metra reglan myndi gilda út árið hið minnsta, vegna þess að þetta er náttúrulega engu minna áfall fyrir menningargeirann en þetta er fyrir ferðaþjónustuna,“ segir Brynhildur.

    Brynhildur fagnar því að reglan verði ekki ófrávíkjanleg. Hún sér þó ekki fram á að geta haft leiksýningar fyrr en í haust, þar sem reksturinn standi ekki undir sér ef áhorfendur eru innan við hundrað.     

    Ísleifur segir að Sena sé með fyrirhugaða viðburði í ágúst. „Það var búið að aflýsa öllu fram að því. Og svo verður nóg að gera út árið, við ætlum að gera Dívur, Iceland Airvaiwes, Jólagesti, og þetta náttúrulega bara bjargar jólavertíðinni.“

    Óvíst hvernig fjölda- og fjarlægðartakmarkanir verða útfærðar á viðburðum
    Nákvæmlega hvernig þetta verður útfært liggur ekki fyrir. Brynhildur segir að stjórnendur menningarstofnana eigi fund með almannavörnum á morgun. „Þá bara vonum við að við fáum skýrari leiðbeiningar hvað varðar haustið, hvenær við komumst af stað með – vonandi – eðlilegum hætti.“

    Ísleifur veltir fyrir sér hvort hægt væri að hafa afmarkaðan hluta í sal eða hluta af sætaframboði fyrir fólk sem kýs að halda tveggja metra fjarlægð. Hann hyggst bera þetta undir almannavarnir fyrir hönd tónleikahaldara. „Okkur langar bara að fá þetta á hreint. Við viljum hlýða Víði eins og aðrir,“ segir Ísleifur.

    Þjóðleikhúsið leitar að Rómeó!

    maí 6, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    • Undirbúningur undir stórsýninguna Rómeó og Júlíu í leikstjórn Þorleifs Arnar stendur yfir í Þjóðleikhúsinu 
    • Ebba Katrín Finnsdóttir hefur verið ráðin í hlutverk Júlíu  
    • Leit stendur nú yfir að þeim leikara sem mun hreppa hið eftirsótta hlutverk Rómeós 
    • Leikarar á aldrinum 20-30 ára koma til greina 
    • Prufur framundan, skráningarfrestur til og með 12. maí  

    Þjóðleikhúsið undirbýr nú viðamikla uppsetningu á Rómeó og Júlíu eftir William Shakespeare í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar. Sýningin verður frumsýnd í byrjun mars 2021.  Nú er unnið að mönnun sýningarinnar en einvala hópur listrænna stjórnenda hefur verið ráðinn að verkefninu við hlið Þorleifs Arnar. 

    Þegar þessi vinsælasta og rómaðasta ástarsaga allra tíma fer á svið ríkir jafnan mest eftirvænting eftir því hverjir veljist í hin eftirsóttu hlutverk elskendanna, Rómeós og Júlíu. Nú liggur fyrir hvaða unga leikkona mun leika Júlíu. Það er Ebba Katrín Finnsdóttir sem mun fara með það ástsæla hlutverk. Hins vegar leitar leikhúsið, með Þorleif Örn leikstjóra í fararbroddi, nú að þeim eina rétta í hlutverk Rómeós.  Nú er kallað eftir umsóknum frá leikurum á aldrinum 20-30 ára sem hafa áhuga á að komast í prufu fyrir hlutverkið.  Nánari lýsingu á fyrirkomulagi prufanna er að finna hér að neðan.  

    Einvala hópur listrænna stjórnenda við hlið Þorleifs
    Þorleifur Örn Arnarsson hefur verið í hópi fremstu leikstjóra Íslendinga um árabil. Hann leikstýrði mörgum rómuðustu sýningum síðustu ára hér á landi, eins og Englum alheimsins og Njálu. Þá hefur hann notið mikillar velgengni í Evrópu og undanfarið verið einn stjórnenda hins virta leikhúss Volksbühne í Berlín. Nú í febrúar var tilkynnt um að Þorleifur gengi til liðs við Þjóðleikhúsið sem samningsbundinn leikstjóri og mun hann leikstýra einni sýningu árlega við húsið á næstu árum. Við hlið Þorleifs mun starfa einstaklega sterkur hópur listrænna stjórnenda. Ilmur Stefánsdóttir mun hanna leikmynd og Björn Bergsteinn Guðmundsson er ljósahönnuður. Þá hefur Kristján Ingimarsson verið ráðinn til sjá um kóreógrafíu í sýningunni en hann hefur vakið athygli hér á landi eins og víða um heim fyrir ævintýralegar sýningar og skemmst er að minnast BLAM sem sló í gegn hér fyrir nokkrum árum. 

    Ebba Katrín Finnsdóttir verður Júlía 
    Ebba Katrín Finnsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli síðan hún útskrifaðist úr leiklistardeild Listaháskóla Íslands fyrir tveimur árum. Hún sýndi framúrskarandi leik í aðalhlutverki í sjónvarpsþáttaröðinni Mannasiðum á RÚV. Þá lék hún nokkur hlutverk á samningi í Borgarleikhúsinu í fyrra og á þessu leikári lék Ebba Katrín aðalhlutverkið, Uglu, í Atómstöðinni og burðarhlutverk í Þitt eigið leikrit II í Þjóðleikhúsinu. 

    Upplýsingar um prufur má finna á vefsíðu Þjóðleikhússins, leikhusid.is.
    Þær munu fara fram dagana 18. og 19. maí.

    Leikprufur – leitin að Rómeó

    1. Leikarar á aldrinum 20-30 ára sem hafa lokið námi í leiklist eða starfað við atvinnuleiklist koma til greina.
      Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 7. maí.
    2. Leikstjóri og listrænir stjórnendur velja ákveðinn hóp sem verður boðið að koma í prufur fyrir hlutverkið. Þar gefst þeim tækifæri til að leika tvær stuttar senur úr verkinu á móti Ebbu og öðrum leikurum undir leikstjórn Þorleifs á Stóra sviðinu. Prufurnar fara fram 18. maí
    3. Framhaldsprufur verða boðaðar fyrir þrengri hóp í kjölfarið.
    4. Þegar valið hefur farið fram verður einum leikara boðið hlutverk Rómeós. Ráðningarkjör eru venju samkvæmt í samræmi við gildandi kjarasamning FÍL við Þjóðleikhúsið.

    Nánari upplýsingar veitir
    Sváfnir Sigurðarson.
    664 0444
    svafnir@leikhusid.is

    þrír nýir stjórn­end­ur í Þjóðleikhúsinu

    apr 20, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Eft­ir skipu­lags­breyt­ing­ar síðustu mánaða hafa þrír nýir stjórn­end­ur verið ráðnir til Þjóðleik­húss­ins.

    Í til­kynn­ingu kem­ur fram að störf þeirra koma í stað þriggja annarra starfa sem voru af­lögð sem hluti af áherslu- og skipu­lags­breyt­ing­um í leik­hús­inu. Stein­unn Þór­halls­dótt­ir er nýr fram­kvæmda­stjóri Þjóðleik­húss­ins, Jón Þor­geir Kristjáns­son tekur við sem for­stöðumaður sam­skipta og markaðsmá­la og Krist­ín Ólafs­dótt­ir tek­ur við nýju starfi þjón­ustu- og upp­lif­un­ar­stjóra. Þau munu koma til starfa á næstu mánuðum. 

    „Stein­unn hef­ur víðtæka reynslu af stjórn­un og rekstri í ís­lensku lista- og menn­ing­ar­lífi. Frá 2017 hef­ur hún verið fram­kvæmda­stjóri hjá RÚV þar sem hún starfaði hátt á ann­an ára­tug sem ferla- og skipu­lags­stjóri, verk­efna­stjóri um­bóta­verk­efna, dag­skrár­gerðarmaður og fram­leiðandi. Hún var markaðs- og kynn­ing­ar­stjóri Lista­hátíðar í Reykja­vík og Íslensku óper­unn­ar á ár­un­um 2010-2014.

    Stein­unn er með meist­ara­gráðu í menn­ing­ar­stjórn­un frá Há­skól­an­um á Bif­röst, B.A. gráðu í spænsku og bók­mennta­fræði frá Há­skóla Íslands og lagði stund á há­skóla­nám í mannauðsstjórn­un og leiðtoga­fræðum í Dan­mörku. Hún hef­ur kennt nám­skeið um stefnu­mót­un og hlut­verk menn­ing­ar­fyr­ir­tækja við Há­skól­ann á Bif­röst og unnið sem ráðgjafi um sta­f­ræna umbreyt­ingu og jafn­rétt­is­mál fyr­ir EBU, Europe­an Broa­dcasting Uni­on,“ seg­ir í til­kynn­ingu. 

    „Jón Þor­geir er með ára­langa reynslu af markaðsstörf­um, hönn­un og leik­hús­störf­um. Hann er með MBA próf frá Há­skól­an­um í Reykja­vík og BA gráðu í graf­ískri hönn­un frá Lista­há­skóla Íslands. Jón Þor­geir er nú fram­kvæmda­stjóri ÍMARK – sam­taka markaðsfólks á Íslandi. Þar á und­an var hann markaðsstjóri Borg­ar­leik­húss­ins auk þess hef­ur hann tekið þátt í fjölda leik­hús­upp­setn­inga bæði hér­lend­is og er­lend­is bæði sem hönnuður og/ eða markaðssér­fræðing­ur. Einnig hef­ur hann hannað og fram­leitt aug­lýs­ing­ar fyr­ir mörg stærstu fyr­ir­tæki lands­ins.“

    „Krist­ín Ólafs­dótt­ir hef­ur gríðarlega reynslu sem þjón­ust­u­stjóri, veit­ingamaður og ráðsmaður á Bessa­stöðum.   Krist­ín er með meist­ara­gráðu í fram­reiðslu, blóma­skreyt­ir og hef­ur einnig lokið námi í viðburðar­stjórn­un frá Há­skól­an­um á Hól­um.  Krist­ín var yfirþjónn á Icelanda­ir-hót­el­inu á Flúðum og Hót­el KEA.  Krist­ín var ráðsmaður á Bessa­stöðum í 9 ár, frá 2002-2011 og stýrði fram­húsi og veit­inga­sölu Borg­ar­leik­húss­ins á ár­un­um 2013-2018.  Þá hef­ur hún ásamt eig­in­manni sín­um rekið veiðihús­in við Laxá í Kjós, og síðustu ár veiðihús­in við Selá og Hofsá í Vopnafirði. Þá hef­ur hún einnig séð um þjón­ustu í Eld­ar-lod­ge, sem er í sér­flokki sem hágæða gistiaðstaða fyr­ir er­lenda ferðamenn,“ seg­ir enn frem­ur í frétta­til­kynn­ingu. 

    112 um­sókn­ir bár­ust um störf­in þrjú, þar af 32 í stöðu fram­kvæmda­stjóra, 38 í starf for­stöðumanns sam­skipta og markaðsmá­la og 42 í stöðu þjón­ustu- og upp­lif­un­ar­stjóra.

    Yael Farber, alþjóðlegur margverðlaunaður leikstjóri ráðinn til Þjóðleikhússins

    apr 17, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Yael Farber er alþjóðlegur leikstjóri sem hefur leikstýrt víða um heim á undanförnum árum. Farber er frá Suður-Afríku en býr í Kanada og Singapúr. Hún hefur leikstýrt rómuðum sýningum í helstu leikhúsum Bretlands, Breska þjóðleikhúsinu, The Old Vic, Young Vic og Donmar Warehouse. Nú nýlega hlaut hún afbragðs dóma fyrir uppsetningu sína á Hamlet með Hollywoodstjörnunni Ruth Negga, sem sýnd hefur verið í New York. Farber er einnig leikskáld og hefur hún sjálf og sýningar hennar hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.

    Napólísögur Ferrante hafa farið sigurför um heiminn, þær hafa selst í yfir tíu milljónum eintaka um allan heim og verið þýddar á fjölmörg tungumál. Hér á landi er sagan þekkt sem Framúrskarandi vinkona. Sjónvarpsþættir sem byggja á sögunum eru þegar orðnir þeir vinsælustu í sögu Ítalíu.

    Uppsetningin á Napólísögum í Þjóðleikhúsinu verður viðamikil og öllu verður tjaldað til. Sterkur hópur íslenskra listrænna stjórnenda mun vinna með Farber, Ilmur Stefánsdóttir hannar leikmynd, Filippía I. Elísdóttir hannar búninga og Björn Bergsteinn Guðmundsson hannar lýsingu. Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir verður sýningardramatúrg verksins og Salka Guðmundsdóttir þýðir.

    Magnús Geir Þórðarson, þjóðleikhússtjóri: „Það er gríðarlegur fengur fyrir Þjóðleikhúsið og íslenskt leikhúslíf að tekist hafi að fá Yael Farber í okkar hóp. Hún er einstaklega öflugur og áræðinn leikstjóri sem vakið hefur verðskuldaða athygli víða um heim á undanförnum árum. Það er ómetanlegt fyrir okkar leikhóp að fá leikstjóra af þessu kaliberi til samstarfs og ég er ekki í vafa um að hún mun skapa kraftmikla, dínamíska og skemmtilega sýningu upp úr hinum rómuðu Napólí-sögum Ferrante. Ég hlakka óskaplega til að sjá þessa sýningu birtast á sviði Þjóðleikhússins í haust.“

    Samkomubann

    mar 13, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Eins og allir hafa tekið eftir hefur samkomubann verið sett á frá og með miðnætti aðfaranótt mánudags. Þetta mun eðlilega hafa mikil áhrif á leikhúslíf landsins og fjölmargar sýningar falla niður af þeim sökum.

    Við hjá leikhus.is hvetjum ykkur til að fylgjast með upplýsingum frá leikhúsunum til að fá nánari upplýsingar um þær sýningar sem falla niður en þetta nær til allra samkoma sem telja 100 manns eða fleiri og á viðburðum þar sem færri koma sam­an er gert ráð fyr­ir því að tveir metr­ar séu á milli fólks.

    Þjóðleikhúsið hefur ákveðið að fresta strax öllum sýningum og hafa sent frá sér eftirfarandi tilkynningu:
    Þar sem samkomubann hefur verið sett á í landinu þarf Þjóðleikhúsið, eins og aðrar sviðslistastofnanir, að fresta sýningum um óákveðinn tíma. Helstu sviðslistastofnanir þjóðarinnar, þar á meðal Þjóðleikhúsið, eru í samstarfi um viðbrögð vegna Covid-19 veirunnar. Þó samkomubannið bresti ekki á með formlegum hætti fyrr en á sunnudag, þá hefur leikhúsið ákveðið að fella niður sýningar helgarinnar þegar í stað í varúðarskyni.

    Um leið og nýjar dagsetningar verða ákveðnar verður send út tilkynning. Sú regla gildir um miðakaup, að ef dagsetningu viðburðar er breytt, þá færast miðarnir sjálfkrafa á nýja dagsetningu. Ef ný dagsetning hentar ekki hafa stofnanirnar ákveðið að veita kaupanda rétt á endurgreiðslu, að því tilskildu að ósk um endurgreiðslu berist stofnuninni innan 7 daga frá tilkynningu um nýja dagsetningu.

    Starfsfólk Þjóðleikhússins mun halda áfram að undirbúa næstu sýningar og næsta leikár. Við leggjum allt kapp á að viðhalda sköpunargleðinni í leikhúsinu, og hlökkum til að taka á móti ykkur í Þjóðleikhúsinu um leið og aðstæður leyfa.

    Níu líf

    mar 12, 2020   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Við erum öll, við erum öll, við erum öll; Bubbi.

    Bubbi Morthens er samofinn þjóðarsálinni í öllum sínum birtingarmyndum: Stjarnan sem rís úr slorinu; fyrst sem málsvari verkalýðsins, svo alþýðusöngvari þjóðarinnar, þá atómpönkari og gúanórokkari sem breytist í ballöðu-poppara sem syngur með stórsveitum. Skoðanaglaði gasprarinn, skrifblinda ljóðskáldið, fíkilinn sem reis upp, kvennamaðurinn og sá sem elskar aðeins eina konu, Kúbverjinn og Hollywood-víkingurinn, veiðimaðurinn, friðarsinninn og boxarinn. Sögur Bubba Mortens eru sögur okkar allra; sögur Íslands. En hver er hann í raun og veru? Og hver erum við?

    Í þessari stórsýningu munu leikarar, dansarar, tónlistarmenn og fleiri góðir gestir, leggja allt í sölurnar við leitina að Bubbanum í okkur öllum og fylla sviðið með sögum, lögum, ljóðum og litum þessa elskaða og umdeilda listamanns.

    Síður:«1...39404142434445...102»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!