Leikhópurinn Lotta frumsýnir Bakkabræður | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Leikhópurinn Lotta frumsýnir Bakkabræður

    Leikhópurinn Lotta er landsmönnum að góðu kunnur, en hópurinn hefur frá árinu 2007 ferðast með sýningar sínar um landið þvert og endilangt. Lotta hefur sérhæft sig í utandyra sýningum á sumrin og ferðast nú 14. sumarið í röð með glænýjan fjölskyldusöngleik.

    Í sumar setur Leikhópurinn Lotta upp fjölskyldusöngleik byggðan á þjóðsögunum um Bakkabræður. Í meðförum Lottu má segja að Bakkabræður fái tækifæri til að segja okkur sögu sína á sínum forsendum og leiðrétta þær rangfærslur sem hafa ratað í þjóðsögurnar. Bakkabræður eru 13. frumsamdi söngleikurinn sem Leikhópurinn Lotta setur upp, að venju er fjörið í fyrirrúmi, mikið af gríni, glensi og skemmtilegum lögum þó undirtónninn sé alvarlegur og boðskapurinn fallegur.

    Bakkabræður er sýning sem er hugsuð fyrir alla aldurshópa og eiga þar fullorðnir jafnt sem börn að geta skemmt sér saman. Þar sem sýningarnar eru utandyra er um að gera að klæða sig eftir veðri, pakka smá nesti og hella vatni í brúsa og halda svo á vit ævintýranna í Ævintýraskóginum.
    Að vanda sýnir Leikhópurinn Lotta um allt land í sumar og fylgir að sjálfsögðu fyrirmælum sóttvarnarlæknis. Vegna fjöldatakmarkana verður eingöngu hægt að tryggja sér miða fyrirfram tix.is eins og er.

    Fyrstu sýningar sumarsins eru nú komnar í sölu!
    Við bætum reglulega við sýningum um allt land svo endilega fylgist með okkur á www.leikhopurinnlotta.is

    Leikstjórn: Þórunn Lárusdóttir
    Leikarar:  Andrea Ösp Karlsdóttir, Huld Óskarsdóttir,
    Júlí Heiðar Halldórsson, Sigsteinn Sigurbergsson,
    Stefán Benedikt Vilhelmsson og Viktoría Sigurðardóttir.
    Leikskáld: Anna Bergljót Thorarensen
    Höfundar tónlistar: Baldur Ragnarsson, Rósa Ásgeirsdóttir, Þórður Gunnar Þorvaldsson.
    Höfundar lagatexta: Anna Bergljót Thorarensen og Baldur Ragnarsson
    Hljóðhönnun og útsetningar: Þórður Gunnar Þorvaldsson
    Búningahönnun: Kristína R. Berman
    Danshöfundur: Viktoría Sigurðardóttir
    Leikmyndahönnun: Andrea Ösp Karlsdóttir og Sigsteinn Sigurbergsson
    Leikmunir: hópurinn



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!