Uncategorized | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Browsing "Uncategorized"

    Þétting hryggðar

    sep 15, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Þétting hryggðar er frumsýnt í Borgarleikhúsinu 16. september

    „Það hjólar enginn svona vegalengd í norðanátt og skafrenningi nema hann sé geðbilaður.“

    „Við erum öll einbýlishús, jólaskrautið uppi og öll ljós kveikt, ein upp á hól og enginn veit hvað er að gerast inni.“ Húsmóðir úr Hlíðunum, arkítekt úr Vesturbænum, unglingur úr Breiðholti og iðnaðarmaður úr Grafarvogi – Fjórir Reykvíkingar eru læstir inni í fundarherbergi í Borgartúninu af öryggisástæðum. Þau deila um skipulagsmál, Dominos og hverjum er raunverulega hægt að kenna um allt sem er að. Ef byggðin er of þétt, þá heyrum við tómahljóðið í hjörtum nágranna okkar og þá er erfiðara að sofna á kvöldin. Þar liggur vandinn.

    Bakkabræður í Gaflaraleikhúsinu

    sep 15, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Bakkabræður bregða sér í kaupstað og hreiðra um sig í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði.

    Hinn bráðfjörugi brúðuleikur Kómedíuleikhússins um Bakkabræður er sló í gegn fyrir vestan í sumar heldur nú suður á svið. Bakkabræður hafa komið sér vel fyrir i Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði og er fyrsta sýning laugardaginn 19. september kl.13.00. Önnur sýning verður daginn eftir kosningar, sunnudaginn 26. september kl.13.00. Miðasla fer fram á tix.is og í Gaflaraleikhúsinu.

    Bakkabræður er bráðfjörugt brúðuleikrit um hina einu sönnu bræður frá Bakka þá Gísla, Eirík og Helga. Kómedíuleikhúsið hefur fangað fjörið sem fylgir þessum þekktustu klaufabárðum Íslandssögunnar og setur upp sýningu þar sem ævintýri Bakkabræðra eru færð yfir í töfrandi búning brúðuleikhússins.

    Lögin í sýningunni eru sungin af Diddú við tónlist sem Björn Thoroddsen, gítarleikari, semur og flytur. Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar ævintýraheim leiksýningarinnar og gerir brúðurnar sömuleiðis. Leikari og þjónn brúðanna er Elfar Logi Hannesson, sem einnig er höfundur verksins ásamt Sigurþóri A. Heimissyni sem jafnframt leikstýrir.

    Frægasta ástarsaga allra tíma

    sep 3, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Rómeó og Júlía er talin frægasta ástarsaga allra tíma

    Rómeó og Júlía er saga af sannri ást en um leið ástsýki og ungæðishætti. Í forgrunni verður mögnuð barátta ungrar konu gegn yfirþyrmandi feðraveldi. Fegurstu sögurnar geta sprottið upp úr hræðilegustu aðstæðunum.

    Leikritið Rómeó og Júlía er frægasta ástarsaga allra tíma. Hún birtist hér í nýrri þýðingu og með grípandi tónlist, í útfærslu sem hrífur áhorfandann með inn í heillandi og hættulegan heim.

    Þorleifur Örn leikstýrir stórum hópi leikara með Ebbu Katrínu og Sigurbjarti Sturlu í aðalhlutverkum

    Þorleifur Örn Arnarsson er einn fremsti leikstjóri Evrópu og einn listrænna stjórnenda hins virta leikhúss Volksbühne. Hann á að baki geysivinsælar sýningar á Íslandi á borð við Engla alheimsins og Njálu. Nú hefur hann gengið til liðs við nýtt listrænt teymi Þjóðleikhússins þar sem hann mun starfa á næstu árum.

    Öllum sýningum lýkur á umræðum með leikhópnum

    Uppfærslan á Rómeó og Júlíu talar til samtíma okkar með beinskeyttum hætti og áhorfendum býðst að taka þátt í umræðum með listafólkinu að lokinni sýningu.

    Bíddu bara í Gaflaraleikhúsinu

    ágú 31, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Bíddu bara verður frumsýnt í Gaflaraleikhúsinu þann 10. sept.

    Gaflaraleikhúsið er einstaklega stolt af því að kynna BÍDDU BARA – hlátursprengju fyrir glaðsinna grindarbotna sem verður frumsýnt 10. september 

    BÍDDU BARA! er eftir stórstjörnurnar Sölku Sól Eyfeld, Selmu Björnsdóttur og Björk Jakobsdóttur sem leiða nú saman hryssur sínar í fyrsta sinn. 

    Þetta  einlæga, beitta og drepfyndna verk fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir, uppeldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekkert undan en ljúga helling. Þetta er verk um íslenskar konur, samið af íslenskum konum og fyrir íslenskar konur, hinsegin, kynsegin og allar hinar (og fyrrverandi, núverandi og tilvonandi maka sem þora að koma). Það má segja að þetta sé olnboga-verk, því áhorfendur munu skjóta olnboga í sessunautana ótt og títt og hvísla: svona ert þú! Uppistand, leiksenur og söngur af bestu sort.

    Allar eru þær Salka Sól, Selma og Björk þekktar fyrir störf sín í leikhúsi á síðustu árum. 

    Salka Sól sló fyrst í gegn sem söngkona og nú síðast sem Ronja ræningjadóttir. Hún er ein allra vinsælasta og hæfileikaríkasta listakona landsins um þessar mundir. 

    Selma Björns hefur verið ástmögur þjóðarinnar frá því hún var í Grease og svo stimplaði hún sig rækilega inn sem stórstjarna í Söngvakeppninni. Hún hefur leikstýrt stórsýningum  á borð við Vesalingana á undanförnum árum og leikið á sviði og í sjónvarpsþáttum en leikur hér sitt stærsta hlutverk til þessa. 

    Björk Jakopsdóttir sló rækilega í gegn með einleik sínum Sellófon hér um árið sem var settur upp í 19 löndum víða um heim. Hún hefur síðan þá skrifað og leikstýrt stórsmellum á borð Blakkát og Mömmu klikk! auk þess að vera leikhússtýra Gaflaraleikhússins. Hún snýr loksins aftur á svið sem leikkona í Bíddu bara!
    Þetta er því alvöru stórstjörnu tríó!

    Þær Salka Sól, Selma og Björk leika öll aðalhlutverk, aukahlutverk, kvíðaverk og smáhlutverk í sýningunni auk þess að flytja snilldarlega helling af frábærri, nýrri tónlist. 

    Það er nefnilega  ekki nóg með að þær stallsystur skrifi og leiki í verkinu heldur hafa þær samið í félagi við Karl Olgeirsson gullfalleg og oft á tíðum bráðfyndin lög – og texta – sem bæta miklu við verkið. Þetta eru lög sem við í Gaflaraleikhúsinu spáum að muni lifa langt fram yfir líftíma sýningarinnar. Og auðvitað verður enginn svikinn af flutningi laganna í meðförum þessara söngkvenna. 

    Leikstjórn er í höndum fyndnasta  leikstjóra landsins  Ágústu Skúladóttur sem er sá leikstjóri á Íslandi sem hefur hlotið flestar Grímur. 

    Þórunn María Jónsdóttir sér um búninga og leikmynd hjá okkur í Gaflaraleikhúsinu í fyrsta sinn og Freyr Vilhjálmsson sér um ljósahönnun eins og hann hefur gert í undanförnum sýningum hjá okkur.

    Lárus Vilhjálmsson framkvæmdastýrir sýnignunni og Gunnar Helgason hjálpar til með það sem til fellur eins og markaðsmál og smíðavinnu. 

    Miðasala er hafin á tix.is og Gaflaraleikhúsinu – midasala@gaflaraleikhusid.is, s: 5659900

    Viðburðaríkt leikár hjá Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði

    ágú 27, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Selma Björns, Björk Jakobs og Salka Sól verða í Gaflaraleikhúsinu í vetur.

    Leikárið hjá bæjarleikhúsi Hafnfirðinga Gaflaraleikhúsinu hefst með trukki 10. september með hinni glæsilegu uppistands og tónlistarsýningu Bíddu Bara eftir stjörnurnar Björk Jakobsdóttur, Sölku Sól Eyfeld og Selmu Björnsdóttur. Sýningin sem er sannkölluð hlátursprengja fyrir glaðsinna grindarbotna  fjallar um raunveruleika íslenskra kvenna; um vonir og drauma, biturleika og frú-strasjónir, uppeldi, kvíða og hvítvín. Þær Björk, Salka Sól og Selma  byggja verkið á sinni eigin reynslu og draga ekkert undan en ljúga helling.

    Í október hefjast svo æfingar á leikgerð Bjarkar Jakobsdóttur á hinni frábæru bók Bergrúnar Íris Sævarsdóttur Langelstur að eilífu sem fjallar um Eyju sem er 6 ára og er að byrja í 1 bekk og  besta vin hennar og bekkjarfélaga Rögnvald sem er 96 ára. Einstaklega skemmtileg og  falleg saga um vináttu, gleði og sorg. Með hlutverk Rögnvaldar fer Sigurður Sigurjónsson sem er án efa einn af ástsælustu gamanleikurum Íslands og Hafnfirðingur að auki. Í lok september fara síðan fram prufur í Gaflaraleikhúsinu til að finna sex 7-10 ára snillinga til að leika börnin í verkinu. Prufur verða auglýstar beru síðar og skráning fer fram á gaflarar@gaflaraleikhusid.is. Fylgist með. Áætluð frumsýning á verkinu er í byrjun árs 2022.

    Í janúar 2022 hefjast síðan æfingar á nýju verki eftir Gunnar Helgason sem heitir Drottningin sem kunni allt nema að… . Þar fær Gunnar í lið með sér snillingana Bernd Ogrodnik og Rán Flygenring til að skapa ógleymanlega veröld fyrir yngstu áhorfendurna. Fyrirhugað er að frumsýna verkið í byrjun mars. 

    Gaflaraleikhúsið hefur staðið fyrir öflugu sviðslistar og höfundanámi fyrir ungt fólk um árabil. 

    Nú í haust fer Gaflaraleikhúsið inn á nýjar lendur í þeim efnum og mun bjóða upp á undirbúningsnám fyrir ungt sviðslistafólk sem stefnir á framhaldsnám í listum

    Kennarar verða Björk Jakobsdóttur  leikkona,höfundurog leikstjóri.. Chantelle Carey danshöfundurog Guðlaug Ólafsdóttir söngkennari. Bæði Guðlaug  og Chantelle hafa unnið með fjölda ungmenna í hinum ýmsu söngleikjum í Borgar-  og Þjóðleikhúsinu.  Björk hefur undanfarin 10 ár sett á svið og samið fjölda verka og söngleikja í höfundasmiðju með ungmennum sem að notið hafa mikilli vinsælda Kennt verður í tveim önnum í vetur og seinni önn lýkur með glæsilegum söngleik sem verður frumsýndur í júní . 

    Einungis verður pláss fyrir 24 nemendur. Inntökupróf í skólann fara fram um miðjan september og verða auglýst fljótlega

    Covid19 faraldurinn hefur reynst Gaflaraleikhúsinu erfiður eins og öllum öðrum leikhópum og leikhúsum vegna harðra samkomutakmarkana og það var afar sárt að þurfa hætta sýningum á vinsælasta sýningu leikhússins til þessa, Mömmu Klikk. Leikhúsið lenti utan þeirra stuðningsaðgerða sem ríkið veitti atvinnulífinu í landinu vegna þess að það er óhagnaðardrifið en Sviðslistarráð kom til leihúsinu til bjargar með myndarlegum fjárstuðningi til tveggja ára. 

    Þetta hleypti nýju lífi í starf leikhússins á þessu ári og í framhaldinu var ákveðið að æfa upp á ensku hina gríðarvinsælu sýningu Fyrsta Skiptið sem sannarlega náði til ungs fólks þegar hún var sýnd 2017-18 og halda í útrás. Sýningin var síðan sýnd undir nafninu My First í Unicorn leikhúsinu í London við frábærar viðtökur og er nú í sýningum á Edinburgh Fringe hátíðinni sem er núna á netinu vegna Covid. Í september er My First boðið að vera opnunarsýningin á Alþjóðlegri leiklistarhátíð Assitej í Kristiansand í Noregi en hún var valin úr hópi 80 alþjóðlegra sýninga.

    Gaflaraleikhúsið reynir á meðan húsrúm leyfir að vera í góðu samstarfi við aðra sjálfstætt starfandi leikhópa og nú í september verður sýnd bráðfjörug  brúðusýning um Bakkabræður í leikstjórn Sigurþórs Heimissonar og leik og brúðustjórn Elfars Loga Hannessonar, með fallegri tónlist Björns Thoroddsen sem er flutt af Sigrúnu Hjálmtýsdóttur. Þetta er samstarfsverkefni Gaflaraleikhússins og  Kómedíuleikhússins á Vestfjörðum fyrir börn á öllum aldri.                   

    Leikárið hjá Gaflaraleikhúsinu sýnir að leikhúsið ætlar sér að vera áfram í fremstu röð leikhúsa fyrir unga áhorfendur á Íslandi. Þökk sé Hafnarfjarðarbæ og Sviðslistaráði og okkar ástkæru áhorfendum lítum við björtum augum til framtíðar. 

    Þjóðleikhúsið býður ungu fólki á Rómeó og Júlíu

    ágú 26, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Rómeó og Júlíu-hátíðin stendur yfir dagana 4. – 10. september

    Þjóðleikhúsið mun standa fyrir einstakri leikhúshátíð fyrir unga fólkið í tengslum við frumsýningu á Rómeó og Júlíu í leikstjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar á Stóra sviðinu þann 4. september. Ungu fólki á menntaskólaaldri, sem er fætt 2002-2005, verður boðið á fyrstu sýningar verksins. Sigurbjartur Sturla Atlason, einnig þekktur sem tónlistarmaðurinn Sturla Atlas, og Ebba Katrín Finnsdóttir fara með hlutverk elskendanna frægu og tónlistarkonurnar Salka Valsdóttir og Bríet Ísis Elfar sjá um lifandi tónlistarflutning í sýningunni.

    Nú styttist í frumsýningu Þjóðleikhússins á frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlíu. Verkið birtist hér í nýrri þýðingu og með grípandi tónlist, í útfærslu sem hrífur áhorfandann með inn í heillandi og hættulegan heim. Þjóðleikhúsið mun bjóða ungu fólk á menntaskólaaldri á fimm fyrstu sýningarnar. Hér er hægt að tryggja sér miða. Fyrstir koma fyrstir fá.

    Auk sýninganna verða viðburðir á Stóra sviðinu og plötusnúðarnir Young Nasareth, Dóra Júlía og Unnur Birna munu sjá um fjörið í forsal fyrir og eftir sýningar.

    Rómeó og Júlíu-hátíðin stendur yfir dagana 4. – 10. september og er fyrir gesti sem fæddir eru 2002-2005. Hægt verður að tryggja sér miða á sýningar eftirfarandi daga:
    lau 4. sept kl. 18:30

    • sun 5. sep.t kl. 18:30
    • mið 8. sept. kl. 18:30
    • fim 9. sept. kl. 18:30
    • fös 10. sept. kl. 18.30

    Vinir og vinahópar, geta skráð sig saman, allt að 10 manns í hóp.

    Rómeó og Júlía er saga af sannri ást en um leið ástsýki og ungæðishætti. Í forgrunni verður mögnuð barátta ungrar konu gegn yfirþyrmandi feðraveldi. Fegurstu sögurnar geta sprottið upp úr hræðilegustu aðstæðunum. Þorleifur Örn Arnarsson er einn fremsti leikstjóri Evrópu og einn listrænna stjórnenda hins virta leikhúss Volksbühne. Hann á að baki geysivinsælar sýningar á Íslandi á borð við Engla alheimsins og Njálu. Nú hefur hann gengið til liðs við nýtt listrænt teymi Þjóðleikhússins þar sem hann mun starfa á næstu árum.

    Dagskrá alla þessa daga verður með svipuðum hætti:

    • Húsið opnar kl. 18.30 með plötusnúðum
    • Viðburður hefst á sviðinu kl. 19
    • Leiksýningin hefst kl. 20

    Plötusnúðar spila áfram eftir sýningu

    Góðan daginn faggi

    ágú 10, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Sýning­in er unn­in upp úr dag­bók­um Bjarna Snæ­björns­son­ar sem hann hef­ur haldið frá æsku til dags­ins í dag.

    Sjálfsævi­sögu­legi heim­ilda­söng­leik­ur­inn Góðan dag­inn faggi verður frum­sýnd­ur í ný­upp­gerðum Þjóðleik­hús­kjall­ara föstu­dag­inn 13. ág­úst kl. 21.00. Sýn­ing­in er sam­starfs­verk­efni Þjóðleik­húss­ins og leik­hóps­ins Sterta­bendu og eru höf­und­ar og aðstand­end­ur verks­ins Bjarni Snæ­björns­son leik­ari, Gréta Krist­ín Ómars­dótt­ir leik­stjóri og Axel Ingi Árna­son tón­skáld.

    Góðan dag­inn faggi er ein­leik­ur þar sem fer­tug­ur söng­leikja­hommi leit­ar skýringa á skyndi­legu tauga­áfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðris­dag. Eft­ir vanda­sam­an leiðang­ur um innra líf sitt, fortíð og sam­tíma rekst hann á ræt­inn homma­hat­ara á óvænt­um stað.

    Sýning­in er ber­skjald­andi leiðang­ur um skömm og mennsku og ein­lægt sam­tal við draum­inn um að til­heyra. Sýning­in er unn­in upp úr dag­bók­um Bjarna Snæ­björns­son­ar sem hann hef­ur haldið frá æsku til dags­ins í dag. Sýning­in skart­ar glænýrri ís­lenskri söng­leikja­tónlist eft­ir Axel Inga Árna­son og verður tit­il­lag sýning­ar­inn­ar gefið út á næstu dög­um.

    Prinsinn eftir Kára Viðarsson og Maríu Reyndal

    júl 7, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Um þessar mundir vinna þau María Reyndal og Kári Viðarsson að þróun á verkinu Prinsinn en það byggir á reynslu Kára sjálfs en Þjóðleikhúsið setur verkið upp í samstarfi við Frystiklefann á Rifi.

    18 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum í leit að töffaralegum fötum. Síminn hringir, þetta er sæta stelpan sem var að vinna á Prinsinum í sumar. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Andstæðar tilfinningar sækja að honum næstu mánuði. Ótti, afneitun, sjálfsvorkunn, kvíði, vonleysi, þunglyndi. Og svo byrjar hann að verða spenntur. Sátt, friður, bjartsýni, ábyrgðarkennd og tilhlökkun taka við. Ungi maðurinn ákveður með sjálfum sér að verða heimsins besti pabbi. En þá kemur skyndilega í ljós að hann er ekki sá eini sem kemur til greina sem faðir barnsins.

    Tuttugu árum síðar, þegar ungi maðurinn er orðinn leikari og rekur lítið leikhús á landsbyggðinni, sest hann niður með leikstjóra og þau skoða þetta mál saman. Þau taka viðtöl við fólkið sem kemur við sögu. Ýmislegt óvænt kemur í ljós. Er maður áreiðanlegt vitni í sinni eigin sögu? Er hægt að muna hlutina rétt?

    Sýningin verður frumsýnd í Frystiklefanum á Rifi og víðar um landið og að endingu í Þjóðleikhússinu. Leikferðin er liður í auknu samstarfi Þjóðleikhússins við leikhús á landsbyggðinni. Prinsinn verður áleitið og skemmtilegt verk um föðurhlutverkið – og móðurhlutverkið!

    Verkefnið er styrkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu – Leiklistarráði

    Guide to guiding snýr aftur

    jún 29, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Sýningin Guide to Guiding verður sýnd á ný á Reykjavik Fringe Festival

    Mánudaginn 5. júlí mun einleikurinn Guide to Guiding vera sýndur á ný á Reykjavik Fringe Festival. Guide to Guiding var frumsýndur á Fringe Festival fyrir ári og fékk frábærar viðtökur, en hefur legið í dvala síðan vegna samkomutakmarkanna.

    Höfundur og leikari Guide to Guiding er Ingimar Bjarni Sverrisson, leiðsögumaður og leikari, en leikstjóri er Tryggvi Rafnsson, leikari og skemmtikraftur. Báðir stunduðu nám við leiklistarskólan Rose Bruford í Lundúnum og hafa verið starfsmaður í sjálfstæðu leikhússenunni síðan. Einleikurinn er byggður á reynslu Ingimars sem jöklaleiðsögumanni og fjallar um skrýtin og litríkan heim massa-túrisma. Í einleiknum fléttast saman sannar sögur, grín um Ísland og túrismans hér og smá boðskapur um lífið og tilveruna, sérstaklega í þjónustustarfi.

    Á Reykjavik Fringe Festival verður Guide to Guiding á Aðalstræti 2, þar sem sett verður upp miðstöð hátíðarinnar. Sýningardagar eru fimmti, níundi og tíundi júní og allar sýningar hefjast 19:00 á viðkomandi degi. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast á Facebook síðunni Guide to Guiding.

    Sýningardagar:
    Mánudaginn 5. júlí kl. 19:00
    Föstudaginn 9. júlí kl. 19:00
    Laugardaginn 10. júlí kl. 19:00

    Á RVK Fringe fá listamennirnir 100% af söluágóða. Til að styrkja við hátíðina sjálfa þurfa gestir að versla hátíðararmband fyrir 1000 krónur auk miða á einstaka viðburði. Hátíðararmband er forsenda þess að gestir geti nýtt miða sína og þurfa gestir að sýna armbandið þegar miðum er framvísað við inngang viðburða. Armbandið gildir út hátíðina og veitir afslætti á börum sýningarstaða. Armbönd má sækja í dyrunum á öllum viðburðum. Armbönd má einnig kaupa við dyrnar.

    Ef fólk vill styrkja hátíðina frekar er hægt að millifæra á paypal.me/rvkfringe

    Dagskrá hátíðar má finna á heimasíðunni rvkfringe.is og hægt er að horfa á streymi á crowdcast.io/rvkfringe

    Sólveig Arnarsdóttir semur við Borgarleikhúsið

    jún 25, 2021   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Sólveig Arnarsdóttir er komin heim

    Leikkonan Sólveig Arnarsdóttir, sem fer á kostum þessa dagana í Netflix seríunni Kötlu, er flutt heim til Íslands og er búin að gera samning við Borgarleikhúsið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu.

    „Sólveig útskrifaðist fyrir rúmum tuttugu árum frá leiklistarskólanum Ernst Busch í Berlín og hefur starfað jöfnum höndum á Íslandi og í Þýskalandi, nú síðast sem fastráðin leikkona við hið virta leikhús Volksbühne í Berlín. Hún hefur ekki leikið í Borgarleikhúsinu síðan 1993 þegar hún var ógleymanleg í aðalhlutverkinu í Evu Lunu. Sólveig hefur sópað að sér tilnefningum og verðlaunum fyrir leik sinn í kvikmyndum og á sviði.“

    Sólveig mun hefja störf í lok sumars og leika hlutverk nornadrottningarinnar Hekötu í Macbeth og í Orlandó eftir Virginiu Woolf.

    „Ég er full eftirvæntingar og gleði að taka þátt í spennandi uppbyggingu í Borgarleikhúsinu nú þegar ég er komin heim eftir margra ára starf í þýsku leikhúsi,“ segir Sólveig um þessi tímamót.

    Síður:«1...29303132333435...100»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!