Námskeið í Brelluförðun | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Námskeið í Brelluförðun

    Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í brelluförðun

    Leikfélagið Hugleikur stendur fyrir námskeiði í brelluförðun (special effects) 16. og 17. október. Leiðbeinandi er Ninna Karla Katrínardóttir. Þátttakendur læra að nota latex og vax við sáragerð og aðrar leikhúsbrellur. Þeir læra um bestu aðferðir og val á réttum litum fyrir marbletti, sár, hrukkur og fleira. Vilji þátttakendur fræðast um fleiri atriði í leikhúsförðun gefst færi á umræðum og mögulega sýnikennslu tengt þeim.
    Ninna Karla Katrínardóttir hefur mikla reynslu af leikhúsförðun og er með diplómu í listförðunarfræði frá MASK, Makeup&Airbrush Academy.

    Skipulag námskeiðs verður eftirfarandi:-
    Laugardagur kl. 11-15 – Farið verður í hvernig latex og vax eru notuð. Ninna verður með sýnikennslu en einnig fá þátttakendur að prófa aðferðirnar hvert á öðru eða á sjálfum sér. Ef tími gefst geta þátttakendur hafið undirbúning að verkefni seinni dagsins.

    Sunnudagur kl. 11-15 – Þátttakendur hafa með sér módel og búa til karakter. Módelið má vera af hvaða kyni sem er og á hvaða aldri sem er en gott er að hafa í huga að módelið henti vel í fyrirhugað verkefni. Útfærsla verkefnisins er valfrjáls, velja má karakter úr leikriti eða kvikmynd eða búa til sinn eigin karakter. Þátttakendur vinna „heildarlúkk“, þ.e. förðun og búning, en nýta það sem þer lærðu daginn áður og sýna það í lúkkinu. Ninna verður þeim að sjálfsögðu innan handar og deginum lýkur á myndatöku. Gott er að hafa í huga námskeiðið gæti dregist á langinn þann dag.

    Laus eru 8 sæti á námskeiðinu og kostar það 8.000 kr. fyrir félaga í Hugleik sem greitt hafa félagsgjöld yfirstandandi leikárs, en 12.000 kr fyrir aðra. Innifalið í námskeiðsgjaldi er aðgangur að öllum efnum og áhöldum sem nota þarf í leikhúsförðun og nóg af kaffi. Námskeiðið fer fram í húsnæði leikfélagsins Hugleiks að Langholtsvegi 109-111 (gengið inn baka til).



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!