janúar | 2018 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Archive from janúar, 2018

    Forsalan hefst á morgun 1. febrúar

    jan 31, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Rocky horror1

    Forsala fyrir söngleikinn Rocky Horror hefst á morgun fimmtudaginn 1. febrúar, en verkið verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 16. mars. Fyrstu 500 miðunum sem keyptir verða á staðnum í miðasölu Borgarleikhússins fylgir miði á opna æfingu og þar með einstakt tækifæri að vera í hópi þeirra fyrstu sem sjá brot úr sýningunni. Þá verður miðinn einnig á sérstökum forsöluafslætti fyrsta daginn hvort sem keypt er á borgarleikhus.is eða í miðasölunni.

    Páll Óskar Hjálmtýsson mun leika aðalhlutverkið, Frank N Furter, en hann lék sama hlutverk í uppfærslu MH árið 1991. Þá fer söngvarinn Valdimar Guðmundsson með hlutverk Eddie, sem MeatLoaf gerði frægt í samnefndri kvikmynd.

    Aðrir leikarar í sýningunni eru Arnar Dan Kristjánsson sem Rocky, Björn Stefánsson sem Riff Raff, Brynhildur Guðjónsdóttir sem Magenta, Haraldur Ari Stefánsson sem Brad Majors, Katla Margrét Þorgeirsdóttir sem Dr. Scott, Vala Kristín Eiríksdóttir sem Columbia, Valur Freyr Einarsson sem sögurmaður og Þórunn Arna Kristjánsdóttir sem Janet Weiss.

    Listrænir stjórnendur eru Marta Nordal, Jón Ólafsson, Lee Proud, Bragi Valdimar Skúlason, Ilmur Stefánsson, Fillipía Elísdóttir, Elín Sigríður Gísladóttir og Björn Bergsteinn Guðmundsson.

    39 og 1/2 vika í Lyngbrekku

    jan 29, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    39og12vika

    Leikdeild Skallagríms frumsýnir leikritið 39 og ½ vika eftir Hrefnu Friðriksdóttur þann 16. febrúar næstkomandi. Hrund Ólafsdóttir leikstýrir.

    Miðasala hefst 1. febrúar og kostar miðinn 3000 kr. Hægt er að panta miða í síma 8462293 eða á leikdeildskalla@gmail.com. Posi og veitingasala á staðnum.

    Félagið er á snapchat og þar er hægt að fylgjast aðeins með æfingum hjá hópnum, leitið að leikdeildskalla á snapchat.

    Svo er hægt að skoða facebook síðuna : https://www.facebook.com/leikdeildskalla

    50. sýningin – Brot úr hjónabandi

    jan 29, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Brot úr hjónabandi 1

    Jóhann og Maríanna hafa verið gift í tíu ár. Þeim gengur vel, hafa náð langt í starfi, eiga tvö börn og hjónaband þeirra virðist endalaus hamingja. Þangað til Jóhann tilkynnir Maríönnu að hann vilji skilja.

    Við tekur hressandi kvöldstund þar sem allt er gert upp: Hjónabandið, sambandið, vináttan, kynlífið, draumarnir, gleðin, sorgin, vonin og frelsið – og öll uppáhaldslögin.

    Verkið byggir á tíu þátta sjónvarpsseríu Ingmars Bergman sem sýnd var í sænska sjónvarpinu árið 1973 við svo miklar vinsældir að götur Svíþjóðar tæmdust. Síðar voru þættirnir sýndir um allan heim. Leiksviðsútfærslan var frumsýnd í leikstjórn höfundar árið 1981 í München og hefur síðan verið sýnd í fjölda leikhúsa um allan heim.

    Úr gagnrýni

    „Ég öfunda þá sem eiga eftir að sjá þessa sýningu. Hún er snilld.“
    SA. tmm.is

    „Leiklist nær tæpast hærri hæðum!“
    JSJ. Kvennablaðið

    „Sjáið endilega þessa sýningu – hún er verulega góð!“
    DK. hugras.is

    „Unnur Ösp og Björn Thors eru afburðagóðir leikarar“
    DK. hugras.is

    „Björn Thors og Unnur Ösp Stefánsdóttir eru ekki bara hjón, þau eru einhverjir albestu leikarar sem við eigum nú um stundir.“
    SA. tmm.is

    „Þetta er fallega unnin sýning, af skynsemi, húmor og alúð,“
    MK. Víðsjá

    „Of gott til að vera satt“
    HA. Kastljós

    „Þau (Unnur & Björn) standa á hátindi síns ferils“
    HA. Kastljós

    „Ein af þessum stundum í leikhúsinu þar sem allt tekst“
    HA. Kastljós

    „Ég vil hvetja fólk sem er í nýjum ástarsamböndum, sem er búið að vera lengi í ástarsamböndum, sem eru í hjónaböndum, sem eru að hugsa um að skilja eða þau sem ætla aldrei að skilja að fara og sjá þessa sýningu“
    HA. Kastljós

    Slá í gegn – forsölutilboð til 1. febrúar

    jan 24, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    sláígegn1

    Nýr, íslenskur söngleikur, þar sem stór hópur leikara, dansara og sirkuslistamanna skapar litríkan, óvæntan og fjölbreyttan heim! Tónlistin í söngleiknum er sótt í smiðju Stuðmanna.

    Guðjón Davíð Karlsson, Gói, semur söngleikinn sem gerist í litlu byggðarlagi á Íslandi. Þegar framsækinn draumóramaður mætir á svæðið með nýja sirkusinn sinn, ásamt fjölskyldu sinni og litríkum hópi sirkuslistafólks, hleypur nýtt blóð í leikfélagið á staðnum. Nú er loksins komið almennilegt tækifæri til að láta ljós sitt skína og slá ærlega í gegn!

    Útkoman er bráðfyndin, glæsileg og æsispennandi sýning þar sem við sögu koma séra Baddi hnífakastari, skeggjaða konan, Frímann flugkappi og fleiri stórskemmtilegar persónur.

    Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!

    Risaeðlurnar enn í gangi

    jan 21, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Risaeðlurnar

    Sýningin Risaeðlurnar eftir Ragnar Bragason gengur ennþá fyrir fullu húsi í Þjóðleikhúsinu en sýningum fer fækkandi.

    Listakona og sambýlismaður hennar þiggja hádegisverðarboð íslensku sendiherrahjónanna í Washington. Útverðir lands og þjóðar bjóða upp á þríréttað úr íslensku hráefni, borið fram af ungri, kínverskri húshjálp. Smám saman kemur í ljós að undir glæsilegu yfirborðinu leynast óþægileg leyndarmál. Í gestahúsi við sendiráðsbústaðinn er sonur hjónanna falinn eins og fjölskylduskömm. Þegar hann gerir sig heimakominn í boðinu fara beinagrindurnar að hrynja úr skápnum ein af annarri.

    Risaeðlurnar, lokahluti leikhúsþríleiks Ragnars Bragasonar um afkima íslensks samfélags, er nístandi gamanleikur þar sem fortíð, nútíð og framtíð þjóðar mætast.

    Fyrri leiksýningar höfundar, Gullregn og Óskasteinar, slógu í gegn á sínum tíma og hlutu báðar fjölda tilnefninga til Grímunnar og Grímuverðlaun.

    Leikfélag Kópavogs æfir leikrit eftir Ole Lund Kirkegaard

    jan 21, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Fróði

    Æfingar eru hafnar hjá Leikfélagi Kópavogs á leikritinu Fróði og allir hinir grislingarnir eftir Ole Lund Kirkegaard,  í þýðingu Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar með lögum eftir Valgeir Skagfjörð. Leikfélag Kópavogs frumsýndi leikritið árið 1989 í leikstjórn Valgeirs en nú leikstýrir Örn Alexandersson sýningunni en hann lék í uppfærslunni á sínum tíma. Stefnt er að því að frumsýna í byrjun mars. 

    Harmleikurinn Medea frumsýndur

    jan 14, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    medea1

    Laugardagskvöldið 13. janúar, var harmleikurinn Medea frumsýndur á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikskáldið Evripídes skrifaði harmleikinn um Medeu fyrir meira en 2400 árum. Hann hefur verið settur upp oftar en nokkur annar harmleikur í leiklistarsögunni og endurskrifaður aftur og aftur í gegnum tíðina.

    Salurinn er tvískiptur:
    Konur sitja vinstra megin og karlar hægra megin.
    Kynjaskiptur salur er hluti af upplifun sýningarinnar. Hver og einn má þó að sjálfsögðu ráða hvoru megin hann situr.

    Medea birtist hér aftur í splunkunýjum búningi í þýðingu og leikgerð Hrafnhildar Hagalín sem hún vann í samstarfi við Hörpu Arnardóttur, en hún leikstýrir einnig verkinu. Filippía Elísdóttir sá um búninga og leikmynd, Björn Bergsteinn Guðmundsson um lýsingu, Valgeir Sigurðsson um tónlist, Margrét Benediktsdóttir um leikgervi og Garðar Borgþórsson um hljóð.

    Medea hefur fórnað öllu fyrir mann sinn, Jason. Hún snýr baki við fjölskyldu sinni, svíkur föður sinn og fósturjörð og flýr með Jasoni til ókunnugs lands til að hefja nýtt líf.  En  þar er hún útlendingur sem ekki nýtur sömu réttinda og nú vill eiginmaðurinn yfirgefa hana til að giftast annarri konu. Medea lætur hins vegar ekki ræna sig stolti sínu og heiðri. Hún grípur til sinna ráða en þau ráð eru skelfilegri en nokkur getur ímyndað sér.

    Leikarar í verkinu eru Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Arnar Dan Kristjánsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Jóhann Sigurðarson og Lovísa Ósk Gunnarsdóttir sem er einnig dansari í sýningunni.

    Efi í Þjóðleikhúsinu

    jan 14, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Efi 1

    Efi var frumsýndur í Þjóðleikhúsinu laugardaginn 13. janúar í kassanum.

    Hvenær lætur fólk tortryggni stjórna sér? Hvenær lokar það augunum fyrir óhugnanlegum sannleika?

    Margverðlaunað og spennandi verk um mörkin í mannlegum samskiptum, tortryggni, grunsemdir og nístandi óvissu

    Skólastýra í kaþólskum barnaskóla í New York leggur áherslu á aga og strangleika. Öll viðleitni í átt til nútímalegra skólastarfs er henni á móti skapi. Dag einn tjáir hún ungri kennslukonu að sig gruni að prestur í kennarahópnum eigi í óeðlilegum samskiptum við einn af skólapiltunum. Kennarinn neitar öllum ásökunum, en getur hann sannað að hann hafi hreinan skjöld?

    Leikritið Efi sló í gegn þegar það var frumsýnt í New York árið 2004 og hefur verið sett upp við miklar vinsældir víða um heim. Verkið hlaut Pulitzer-verðlaunin, Tony-verðlaunin, Drama Desk-verðlaunin, New York Drama Critic´s Circle-verðlaunin og Obie-verðlaunin sem besta leikrit ársins. Kvikmynd byggð á leikritinu var tilnefnd til fjölda Óskarsverðlauna.

    Leikarar eru Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Leikstjóri er Stefán Baldursson.

    Himnaríki og helvíti

    jan 11, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Himnaríki 1

    Fimmtudaginn 11. janúar, á 121. afmælisdegi Leikfélags Reykjvíkur, verður leikritið Himnaríki og helvíti frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins. Um er að ræða nýtt íslenskt leikrit byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar, bókunum Himnaríki og helvíti, Harmur englanna og Hjarta mannsins – einu umtalaðasta stórvirki íslenskra bókmennta á síðari tímum.

    Leikstjóri er Egill Heiðar Anton Pálsson, um leikgerð sá Bjarni Jónsson, Egill Ingibergsson sá um leikmynd, Helga I. Stefánsdóttir sá um búninga, Hjálmar H. Ragnarsson um tónlist og Þórarinn Blöndal sá um teikningar.

    Himnaríki og helvíti er leiksýning sem fjallar um glímu mannsins við öfl náttúrunnar, hið ytra sem hið innra. Í öndvegi verksins er Strákurinn; persóna sem trúir því að með orðum megi breyta heiminum og vekja látna aftur til lífsins. Hér er tekið á örlögum fólks sem er nátengt hafi, fjöllum og veðri, en örlög þeirra ráðast einnig í Plássinu þar sem mannlífi allra tíma á Íslandi er lýst og brugðið undir sjóngler og bæði konur og karlar takast á í hörkulegri lífsbaráttunni. Eitt eiga allar manneskjurnar sameiginlegt: Þær eru í leit að ástinni, en reynast misvel undirbúnar fyrir ferðalagið á þeim hála ís.

    Bækur Jóns Kalmans Stefánssonar hafa verið þýddar á fjölda tungumála og vakið athygli fyrir skarpa afhjúpun á mannlegu eðli. Jón hefur verið margsinnis tilnefndur til Bókmenntaverðlauna Norðurlanda og Íslensku bókmenntaverðlaunanna sem hann hlaut árið 2015. Hann hefur fengið fjölda annarra verðlauna innlend sem erlend og hefur í seinni tíð jafnvel verið orðaður við sjálf Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.

    Bjarni Jónsson hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. Grímuverðlaunin, Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin auk þess sem hann hefur verið tilnefndur í tvígang til Norrænu leikskáldaverðlaunanna.

    Leikarar eru Bergur Þór Ingólfsson, Birna Rún Eiríksdóttir, Björn Stefánsson, Hannes Óli Ágústsson, Haraldur Ari Stefánsson, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Valur Freyr Einarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir.

    Leikhópurinn Lotta sýnir Galdrakarlinn í Oz

    jan 7, 2018   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Galdrakarlinn í Oz

    Flestir þekkja söguna af ævintýralegu ferðalagi Kansasstúlkunnar Dórótheu og Tótó, hundinum hennar, til landsins Oz og hvernig hún kynnist heilalausu Fuglahræðunni, hjartalausa Pjáturkarlinum og huglausa Ljóninu og kemst í kast við vondu Vestannornina sem vill ná af Dórótheu silfurskónum sem henni eru gefnir. Spurning er bara hvort Galdrakarlinn ógurlegi í Oz getur hjálpað Dórótheu að komast aftur heim og vinum hennar að fá það sem þá svo sárlega vantar.

    Höfundur – Ármann Guðmundsson
    Höfundar laga – Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Eggert Hilmarsson og Snæbjörn Ragnarsson
    Höfundar söngtexta – Anna Bergljót Thorarensen, Ármann Guðmundsson, Baldur og Snæbjörn Ragnarssynir

    Leikstjóri – Ágústa Skúladóttir

    Leikendur:

    Anna Bergljót Thorarensen

    Baldur Ragnarsson

    Huld Óskarsdóttir

    Rósa Ásgeirsdóttir

    Sigsteinn Sigurbergsson

    Síður:12»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!