Nýtt leikár Þjóðleikhússins er hafið | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Nýtt leikár Þjóðleikhússins er hafið

    • Glæný leikrit og sígild meistaraverk, þar sem tekist er á við brýn samfélagsmál, ásamt stórsýningum fyrir alla fjölskylduna
    • Byltingarkennt áskriftarkort fyrir ungt fólk í anda Spotify og Storytel, auk hefðbundinna, sívinsælla leikhúskorta
    • 7. sýning hvers verks á Stóra sviðinu verður textuð á ensku og íslensku
    • Erlent samstarf og ný, spennandi íslensk verk á fjölbreyttu leikári

    75. leikár Þjóðleikhússins er nú hafið en sýningar hefjast um næstu helgi á Draumaþjófnum. Boðið verður upp á nýtt áskriftarfyrirkomulag fyrir ungt fólk í anda Spotify og Storytel til viðbótar við hið hefðbundna áskriftarkort sem nýtur mikilla vinsælda. Af öðrum nýjungum má nefna að 7. sýning verka á Stóra sviðinu verður textuð á íslensku og ensku. Fræðslustarf er eflt og leikhúsið stendur fyrir leikferðum um land allt.

    Nýtt og fjölbreytt leikár er nú að hefjast. Leikárið samanstendur af metnaðarfullum verkum sem takast á við fjölbreytileika lífsins, vináttuna, ástina og gleðina en fjalla líka um samskipti kynjanna, umhverfismálin og stríðsrekstur, svo fátt eitt sé nefnt. Stórar fjölskyldusýningar og glæný íslensk verk verða einnig á dagskrá, svo öll ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Framhald verður á vel heppnuðu erlendu samstarfi við margt fremsta leikhúslistafólk heims, t.d. með því að heimsfrumsýna síðasta hlutann í þríleik Mariusar von Mayenburg í leikstjórn hans sjálfs en fyrri hlutarnir tveir, Ellen B. og Ex., voru sigurvegarar Grímunnar í ár og fylltu Þjóðleikhúsið á vormánuðum. Öll verkin þrjú verða sýnd nú í haust.

    Mútta Courage og börnin í uppsetningu Unu Þorleifsdótturverður frumsýnt á Stóra sviðinu í október, Edda í uppsetningu Þorleifs Arnar verður jólasýningin og fjölskyldusýningin Frost í leikstjórn Gísla Arnar verður frumsýnd hér í byrjun mars, en uppfærsla hans á verkinu í Osló verður frumsýnd nú í haust. Eltum veðrið er sprúðlandi fyndin sýning flutt og samin af okkar fremstu gamanleikurum, Saknaðarilmur er nýtt leikrit eftir Unni Ösp sem er byggt á sögum Elísabetar Jökulsdóttur en sami hópur stendur að sýningunni og skapaði verðlaunasýninguna Vertu úlfur, og nú er það Björn Thors sem leikstýrir. Ebba Katrín mun leika eitt athyglisverðasta nýja leikrit samtímans, Orð gegn orði í leikstjórn Þóru Karítasar en Kolfinna Nikulásdóttir leikstýrir kraftmikilli uppsetningu á hinu goðsagnarkennda verki Söruh Kane, Ást Fedru. Á vordögum mun leikhópurinn Complicité sýna, í samstarfi við Þjóðleikhúsið og fleiri leiðandi leikhús í Evrópu, uppsetningu á Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu eftir Nóbelsverðlaunahafann Olgu Tocarczuk. Fjölmargar barnasýningar verða í boði á minni sviðum og í leikferðum en Draumaþjófurinn heillar áfram nú í haust.

    Spennandi nýjungar fyrir ungmenni – áskriftir í anda Spotify og Storytel
    Á þessu leikári verður boðið upp á glænýja áskriftarleið sem galopnar leikhúsið fyrir ungu fólki á aldrinum 15-25 ára.  Fyrir aðeins 1.450 kr. á mánuði geta ungmenni séð allar sýningar Þjóðleikhússins eins oft og hver og einn vill. Notendur þurfa ekki að bóka sig með löngum fyrirvara, því kortið gildir á sýningar samdægurs. Fyrirkomulagið er sambærilegt við það sem áskrifendur að Spotify, Storytel eða Netflix þekkja vel, og á svipuðu verði. Með þessu lækkar leikhúsið verðþröskuldinn sem oft hefur hindrað ungt fólk í að koma í leikhús og kynnir nútímalegt fyrirkomulag sem ungu fólki líkar.

    7. hver sýning á Stóra sviðinu verður textuð á íslensku og ensku
    Önnur spennandi nýjung er sú að 7. sýning hvers verks a Stóra sviðinu verður textuð á ensku og íslensku og þannig opnum við leikhúsið fyrir enn fleirum. Áfram er boðið upp á umræður að lokinni 6. sýningu.  Hefðbundin leikhúskort eru enn í boði en með þeim geta leikhúsgestir tryggt sér þrjár eða fleiri sýningar með 30% afslætti.

    Fjölbreytt dagskrá verður í Kjallaranum sem hefur fest sig í sessi sem einstaklega áhugaverður vettvangur hópa sem hafa í gegnum söguna dansað á jaðrinum og blómstrað í reykmettuðum bakhúsum, á klúbbum og börum.

    Aukinn kraftur í fræðslustarfi og nýr leikhússkóli í burðarliðnum
    Í vetur verður boðið upp á metnaðarfulla fræðsludagskrá. Sem fyrr verður elstu bekkjum leikskóla boðið í leikhús og farið verður með sýningar víða um land, bæði sem skólasýningar og opnar sölusýningar. Nýr leikhússkóli fyrir ungt fólk verður kynntur á næstu vikum. Framhald verður á vel heppnuðu samstarfi við Endurmenntun um fróðleg og spennandi námskeið fyrir börn og fullorðna. Sýningin Ég get fer í leikferð um landið síðar í haust. Á alþjóðadegi fatlaðs fólks, þann 3. desember, verður haldin leikhúsveisla á Stóra sviði Þjóðleikhússins en það er jafnframt lokaviðburður hátíðahalda í tilefni tuttugu ára afmælis Listar án landamæra.

    House of Revolution
    Þjóðleikhúsið býður listafólki með ólíkan bakgrunn, úr ólíkum menningarkimum að láta ljós sitt skína í Kjallaranum. Á þessu leikári er það R.E.C. Arts Reykjavík sem sér um listræna stjórnun verkefnisins fyrir Þjóðleikhúsið.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!