Eldbarnið | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Eldbarnið

    eldbarnidLaugardaginn 7. febrúar frumsýnir Möguleikhúsið nýtt íslenskt leikrit, Eldbarnið – hamfaraleikrit fyrir börn og fullorðna, í Tjarnarbíói. Segja má að hér sé á ferðinni seinni hluti tvíleiks um Möguleikhússins um Skaftárelda, en síðasta vetur frumsýndi leikhúsið Eldklerkinn, einleik um sr. Jón Steingrímsson, sem hlaut afburðagóðar viðtökur og var sýndur víða um land. Að þessu sinni eru atburðirnir skoðaðir frá sjónarhorni barns í leikriti sem ætlað er áhorfendum frá 9 ára aldri. Frumsýning Eldbarnsins er hluti af aldarfjórðungs afmælisdagskrá Möguleikhússins, en í vor eru 25 ár frá því leikhúsið hóf starfsemi sína og er Eldbarnið 36. verkið á verkefnaskrá þess.

    Hvernig bregst lítil stúlka við þegar veröldin umturnast vegna ógnvænlegra náttúruhamfara?
    Sólveig er söguhetjan í þessu nýja leikriti Möguleikhússins. Eftir gríðarlega jarðskjálfta verður stórt eldgos og skömmu seinna steypist hraunstraumur ofan af hálendinu. Sólveig og móðir hennar verða að flýja upp í fjallshlíð, þaðan sem þær horfa á bæinn sinn fara undir hraun. Við tekur ný og gjörbreytt tilvera, flótti og leit að húsaskjóli. Sólveig lendir í ævintýralegum aðstæðum sem hljóma fjarstæðukenndar fyrir íslensk börnum í dag en voru raunverulegar á þessum tímum.

    Höfundur Eldbarnsins er Pétur Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir, leikmynd og búninga hannaði Guðrún Øyahals, Kristján Guðjónsson er höfundur tónlistar og hljóðmyndar og lýsing er í höndum Arnþórs Þórsteinssonar. Leikarar í sýningunni eru Andrea Ösp Karlsdóttir, sem leikur eldbarnið Sólveigu, og Pétur Eggerz og Alda Arnardóttir sem leika ýmis hlutverk.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!