Útför Gísla Rún­ars streymt beint í Sjón­varpi Sím­ans | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Útför Gísla Rún­ars streymt beint í Sjón­varpi Sím­ans

    Gísli Rúnar Jónsson lést þann 28. júlí síðastliðinn og mun útför hans fara fram þann 20 ágúst nk.

    Vegna ástands­ins í heim­in­um munu aðeins nán­ustu aðstand­end­ur og vin­ir Gísla Rún­ars Jóns­son­ar geta komið sam­an í kirkj­unni en út­för­inni verður sjón­varpað beint í Sjón­varpi Sím­ans. Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá fjöl­skyldu Gísla Rún­ars.

    „Okk­ar elskaði Gísli Rún­ar Jón­son, leik­ari, leik­stjóri, rit­höf­und­ur, þýðandi og ein­stak­ur  fjöl­skyldufaðir verður jarðsung­inn fimmtu­dag­inn 20. ág­úst næst­kom­andi kl. 15:00.

    Vegna ástands­ins í heim­in­um munu aðeins hans nán­ustu aðstand­end­ur og vin­ir geta komið sam­an í kirkj­unni, en út­för­inni verður sjón­varpað beint í Sjón­varpi Sím­ans og auk þess verður aðgengi­legt streymi á net­inu.

    All­ar upp­lýs­ing­ar um streymið má finna á vefsíðunni www.gisl­irun­ar.is

    Aðstand­end­ur þakka all­an kær­leika, hlýhug og fal­leg­ar kveðjur sem borist hafa á þess­um erfiðu tím­um.

    Fjöl­skyld­an hvet­ur alla þá sem elskuðu þenn­an mikla lista­mann til að eiga fal­lega stund, kveikja á kert­um og vera með  okk­ur í anda og fylgj­ast með jarðarför­inni á net­inu.“

    Gísli Rúnar varð fyrst þjóðkunnur fyrir hlutverk sitt í  Kaffibrúsakörlunum ásamt Júlíusi Brjánssyni. Þetta voru stutt gamanatriði í skemmtiþáttum í Sjónvarpinu haustið 1972. Næstu tvö árin skemmtu þeir félagar víðsvegar um landið og gáfu út plötu með efni þeirra 1973 við miklar vinsældir. Kaffibrúsakarlarnir voru fyrsta gamantvíeykið í íslensku sjónvarpi og skipa þannig sérstakan sess, en um svipað leyti komu bræðurnir Halli og Laddi einnig fram.

    Nokkrum árum síðar gerðu Halli, Laddi og Gísli Rúnar grínplötuna Látum sem ekkert c (1976), sem óneitanlega hlýtur að teljast stór minnisvarði í íslensku gríni. Þar er meðal annars að finna lagið Tygg-Igg-Úmmí.

    Sjálfur gerði hann plötuna Algjör Sveppur sama ár og 1977 var hann meðal fjölda listamanna sem kom að hljómplötunni Blessað stríðið sem gerði syni mína ríka. 1980 kom út platan Úllen Dúllen Doff þar sem finna mátti úrval efnis úr samnefndum skemmtiþáttum Útvarpsins. Auk Gísla Rúnars komu þar fram Randver Þorláksson, Jónas Jónasson, Sigurður Sigurjónsson, Árni Tryggvason og Hanna María Karlsdóttir auk Eddu Björgvinsdóttur, en þau Gísli Rúnar kynntust í leiklistarskóla á áttunda áratuginum og giftu sig síðar. Þau eignuðust tvö börn, Björgvin Franz og Róbert Óliver. Þau skildu árið 2000.

    Gísli Rúnar kom að fjölda Áramótaskaupa, ýmist sem leikari, handritshöfundur eða leikstjóri, allt frá 1981 til 1994. Þá skrifaði hann handrit og leikstýrði nokkrum gamanþáttaröðum. Fastir liðir eins og venjulega voru sýndir 1985 í Sjónvarpinu og ári síðar Heilsubælið í Gervahverfi sem var fyrsta gamanþáttaröð Stöðvar 2. Hann fór einnig með aðalhlutverk í þeim þáttum. Bæði verkin slógu hressilega í gegn. Áður hafði hann leikið aðalhlutverk í þáttunum Þættir úr Félagsheimili (1982, RÚV). Hann var einnig meðal handritshöfunda gamanþáttanna Búbbarnir, sem sýndir voru á Stöð 2, 2006.

    Gísli Rúnar kom fram í mörgum kvikmyndum, má þar nefna Hvíta máva (1985), Stellu í orlofi (1986), Stuttan Frakka (1993), Blossa (1997), Magnús (1989) og Stellu í framboði (2002). Síðasta hlutverk hans á þeim vettvangi var í Ömmu Hófí sem frumsýnd var í júlí 2020.

    Gísli Rúnar átti einnig langan feril í leikhúsi, sem leikari, leikstjóri, leikskáld og þýðandi. Þá skrifaði hann ævisögu Björgvins Halldórssonar, Bó & Co, sem kom út 2001 og nokkru síðar bókina Ég drepst þar sem mér sýnist þar sem hann tíndi til skrautlegar gamansögur frá löngum ferli sínum.

    Við hjá leikhus.is vottum fjölskyldu og aðstandendum okkar dýpstu samúð um leið og við þökkum Gísla Rúnari fyrir allar þær gæðastundir sem hann hefur fært okkur í gegnum tíðina.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!