Lára og Ljónsi – jólasaga | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Lára og Ljónsi – jólasaga

    Hvað getur hafa orðið af Ljónsa?

    Verkið gerist á aðventunni og jólasveinarnir eru farnir að tínast til byggða og gefa börnum í skóinn. En eina nóttina hverfur Ljónsi, uppáhalds mjúkdýrið hennar Láru sem, eins og flestir vita, er enginn venjulegur bangsi. Hvað getur hafa orðið af Ljónsa? Getur verið að hvarf hans tengist jólasveinunum á einhvern hátt?

    Bækur Birgittu Haukdal um Láru og Ljónsa njóta ómældra vinsælda hjá íslenskum börnum, og nú birtast þessar ástsælu persónur í fyrsta sinn á leiksviði. Leikverkið hentar vel yngstu áhorfendunum og er tilvalin skemmtun í aðdraganda jólanna. Birgitta Haukdal hefur samið ný lög fyrir leiksýninguna.

    Jólaævintýri eftir Birgittu Haukdal og Góa

    Fyrstu Láru-bækurnar komu út árið 2015, Lára lærir að hjóla og Lára fer í flugvél, og slógu eftirminnilega í gegn. Síðan þá hafa komið tvær nýjar sögubækur um þau Láru og Ljónsa á hverju ári, auk bendibókanna Lára og Ljónsi sem henta allra minnstu lesendunum. Krakkar eiga að geta samsamað sig við Láru, vini hennar og fjölskyldu. Enginn er fullkominn og Lára getur sannarlega verið óþekk eða gert ýmis mistök. Í Lárubókunum er gjarnan að finna sögur úr raunveruleikanum, eitthvað sem þeim fullorðnu finnst hversdagslegt en börnum finnst vera stórkostlegt ævintýri.

    Lárubækurnar og jólasöngbók Birgittu eru til sölu í leikhúsinu.


    loading

    Takk fyrir að skrá þig!