mars | 2022 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Archive from mars, 2022

    Sjö ævintýri um skömm, frumsýnt á Stóra sviðinu

    mar 28, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Nýtt leikrit eftir Tyrfing Tyrfingsson,  Sjö ævintýri um skömm

    Kópavogsbúinn Tyrfingur Tyrfingsson hefur slegið í gegn hér heima og vakið mikla athygli erlendis fyrir leikrit sín. Þetta er fyrsta verkið sem Þjóðleikhúsið sýnir eftir Tyrfing og jafnframt hans fyrsta leikrit á stóru sviði. 

    Kanamellur, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, drykkfelldur geðlæknir og fleiri kostulegir karakterar koma við sögu í þessu ósvífna en farsakennda ævintýri, sem byggt er á sönnum atburðum.  

    Föstudaginn 1. apríl frumsýnir Þjóðleikhúsið á Stóra sviðinu Sjö ævintýri um skömm eftir Tyrfing Tyrfingsson. Þetta er fyrsta leikrit sem Tyrfingur skrifar fyrir Þjóðleikhúsið en hann hefur slegið í gegn hér heima og vakið mikla athygli erlendis. Þetta nýja leikrit Tyrfings er sjöunda verk hans sem  er sviðsett í íslensku leikhúsi. Frábær leikarahópur undir stjórn Stefáns Jónssonar leikstjóra segir söguna af makalausu ferðalagi skammarinnar á milli kynslóða þar sem kanamellur, lögreglan og hundurinn Lúkas koma meðal annars við sögu. 

    Agla ryðst inn á stofu geðlæknis og krefst þess að hann skrifi upp á lyf sem nái að svæfa hana í þrjá sólarhringa. Geðlæknirinn vill ekki verða við þessari ósk Öglu en  segir henni hinsvegar frá kenningu sinni um að sjö ævintýri um skömm liggi að baki allri geðveiki. Agla neyðist til að rekja sig í gegnum þessi ævintýri sem stjórna lífi hennar ef hún vill eiga einhvern möguleika á bata. 

    Sjö ævintýri um skömm eru farsakennd ævintýri, byggð á sönnum atburðum, þar sem við fylgjum eftir ferðalagi skammarinnar í íslenskri fjölskyldu frá kanamellum í Flórída að Lúkasarmálinu á Akureyri og skoðum allt þar á milli.  Kópavogsbúinn og ólíkindatólið Tyrfingur Tyrfingsson hefur slegið í gegn hér heima og vakið mikla athygli erlendis. Þetta nýja leikrit Tyrfings er sjöunda verk hans sem er sviðsett í íslensku leikhúsi, en hið fyrsta sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu. 

    „Það sem heillar mig einna mest við leikhúsið er líkamlegur háski. Leikritið lýtur nefnilega alveg sömu lögmálum og sirkus. Það þarf fílinn sem þrammar inn á hringsviðið – hið stórfenglega dýr sem búið er að temja. Svo þarf arabísku stóðhestana af því að þarna verður líka að vera fegurð, þokki. Síðan trúðinn til að halda uppi fjörinu. En loks þurfum við, og það er mikilvægast af öllu, sjálfan línudansarann. Það er í rauninni hægt að sleppa öllu hinu en það er aldrei hægt að sleppa línudansaranum. Það verður einhver að færa fórn. Án háska er leiksýningin dauðadæmd. Hrapar hann eða ekki? Það skapar þessa frumstæðu spennu – þess vegna kom gesturinn í leikhúsið.“ 

    Leikarahópurinn er glæsilegur:
    Ilmur Kristjánsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Eggert Þorleifsson, Kristbjörg Kjeld, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Edda Arnljótsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Vincent Kári van der Valk. Stefán Jónsson leikstýrir.

    Ást og upplýsingar

    mar 27, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikritið Ást og upplýsingar hefur þegar verið sett á svið í fjölda uppsetninga, í 22 löndum.

    Skemmtilegt og afhjúpandi samtímaverk sem varpar nýju ljósi á kunnuglegar aðstæður, samskipti fólks og fáránleika mannlegrar tilveru.

    Í fyrsta sinn setur Þjóðleikhúsið upp leikrit eftir Caryl Churchill, eitt virtasta leikskáld Bretlands. Churchill (f. 1938) er í hópi framsæknustu leikskálda samtímans, og er hún ekki síst þekkt fyrir afar áhugaverðar tilraunir með form og innihald. Churchill hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín, sem gjarnan fjalla um áleitin viðfangsefni úr samtímanum, femínísk málefni, kynjapólitík, vald og misbeitingu þess. Verk hennar hafa verið sett upp í helstu leikhúsum Bretlands og víða um heim.

    Í verkinu Ást og upplýsingar, sem hlaut mikið lof þegar það var frumflutt í Royal Court leikhúsinu í London árið 2012, kryfur Caryl Churchill samtíma okkar af óvægni. Hún skoðar með skemmtilegum og frumlegum hætti hina djúpstæðu löngun okkar til að upplifa nánd og vera elskuð, í heimi sem oft og tíðum virðist einmitt koma í veg fyrir einingu. Brugðið er upp skörpum skyndimyndum af mannlífinu, í hjartnæmu, tragísku og fyndnu verki.

    Leikritið Ást og upplýsingar hefur þegar verið sett á svið í fjölda uppsetninga, í 22 löndum.

    Una Þorleifsdóttir hefur tvívegis hlotið Grímuverðlaunin sem leikstjóri ársins. Auður Ava Ólafsdóttir þýðir og hinn virti austurríski leikmyndahönnuður Daniel Angermayr vinnur í fyrsta sinn hérlendis.

    Ef væri ég gullfiskur

    mar 27, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Ef ég væri gullfiskur er sýnt í Aratungu

    Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýndi gamanleikinn Ef væri ég gullfiskur, eftir Árna Ibsen í Aratungu þann 25. mars. Að sögn leikdeildar manna hefur æfingaferlið gengið vel en „…bölvuð veiran hefur auðvitað sett svip sinn á það“. Leikarar eru 10 talsins og alls koma um 20 manns að uppfærslunni með einum eða öðrum hætti.Leikstjóri er Ólafur Jens Sigurðsson.

    Um verkið:
    Að nóttu virðist gullfiskabúðareigandinn Pétur vera að undirbúa það að láta sig hverfa með peningafúlgu sem mögulega er illa fengin. Hann reynir að flýta sér en er stöðugt truflaður af sonum sínum sem birtast heima hjá pabba án þess að þeirra sé vænst eða óskað. Lausaleiksdrós, tengdadætur og tengdasonur bætast við og það er ekki beint að hjálpa upp á plan Péturs Aðalsteinssonar í Gullfiskum. Yfirreddarinn Tommi þvælist svo um fyrir öllum svo að liggur við stórslysum.
    Leikverkið er sígildur farsi sem kitlar hláturtaugarnar. Hurðum er skellt, misskilningur á sér stað, handalögmál, grátbrosleg atvik í bland við sprenghlægileg eins og eiga að prýða góðan farsa.

    Sýningar eru annars sem hér segir:
    25. mars. Frumsýning kl. 20
    2. sýning 27. Mars Kl 17
    3. sýning 30. mars Kl. 20
    4. sýning 1. apríl kl. 20
    5. sýning 2. apríl kl. 20
    6. sýning 3. apríl kl. 17
    Áætlaðar eru 12 sýningar í allt.

    Spennandi tímar framundan í Þjóðleikhúsinu

    mar 18, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Það verður nóg um að vera í Þjóðleikhúsinu á næstunni

    Fjórar frumsýningar!

    Það verður heldur betur mikið um dýrðir í Þjóðleikhúsinu á næstu vikum. Fram að páskum rekur hver frumsýningin aðra, auk þess sem vinsælar sýningar verða áfram á fjölunum, Framúrskarandi vinkona, Kardemommubærinn, Ásta og Vertu úlfur. Kjallarinn iðar líka af lífi! Við hlökkum til að sjá ykkur öll í leikhúsinu!

    Umskiptingur verður frumsýnt 19. mars

    Umskiptingur
    Nýtt íslenskt barnaleikrit

    Bráðskemmtilegt nýtt barnaleikrit eftir einn af okkar vinsælustu höfundum barnaefnis. Sigrún Eldjárn leikur sér hér á frumlegan og sniðugan hátt með minnið um umskiptinga úr gömlu þjóðsögunum okkar. Ragnhildur Gísladóttir semur tónlist eins og henni einni er lagið.
    Frumsýnt 19. mars

    Ást og upplýsingar
    Caryl Churchill í fyrsta sinn

    Ást og upplýsingar verður frumsýnt 25. mars

    Í fyrsta sinn setur Þjóðleikhúsið upp leikrit eftir Caryl Churchill, eitt virtasta leikskáld Bretlands. Churchill (f. 1938) er í hópi framsæknustu leikskálda samtímans, og er hún ekki síst þekkt fyrir afar áhugaverðar tilraunir með form og innihald. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna og verk hennar hafa verið sett upp í helstu leikhúsum Bretlands og víða um heim.
    Frumsýnt 25. mars

    Sjö ævintýri um skömm
    Tyrfingur á Stóra sviðinu

    Sjö ævintýri um skömm verður frumsýnt 1. apríl

    Farsakennd ævintýri, byggð á sönnum atburðum, þar sem við fylgjum eftir ferðalagi skammarinnar í íslenskri fjölskyldu frá kanamellum í Flórída að Lúkasarmálinu á Akureyri og skoðum allt þar á milli. Kópavogsbúinn Tyrfingur Tyrfingsson hefur slegið í gegn hér heima og vakið mikla athygli erlendis. Þetta nýja leikrit Tyrfings er sjöunda verk hans sem er sviðsett í íslensku leikhúsi, en hið fyrsta sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu.
    Frumsýnt 1. apríl

    Prinsinn
    Þú ert að verða pabbi

    Prinsinn verður frumsýnt 6. apríl

    18 ára menntaskólastrákur er staddur á Laugaveginum í leit að töffaralegum fötum. Síminn hringir, þetta er sæta stelpan sem var að vinna á Prinsinum í sumar. „Ég er ólétt. Þú ert að verða pabbi.“ Bráðskemmtilegt verk sem frumsýnt verður á Rifi og sýnt víða um land í kjölfarið. Sýningar í Reykjavík hefjast í haust.
    Frumsýnt 6. apríl

    Söngleikurinn GREASE sýndur á Suðurnesjum

    mar 16, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikfélag Keflavíkur Sýnir söngleikinn sívinsæla Grease

    Föstudaginn 18.mars mun Leikfélag Keflavíkur frumsýna ungmennasöngleikinn Grease en söngleikurinn er settur upp í samstarfi við Nemendafélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Vox Arena, leikfélag NFS.

    Prufur voru haldnar í janúar þar sem mun færri komust að en vildu en það reyndist listrænum stjórnendum erfitt að velja en hópurinn sem endaði á sviðinu stendur sig framúrskarandi vel. Um er að ræða 18 manna hóp af 16-20 ára krökkum ásamt 6 manna hljómsveit sem Sigurður Smári Hansson stýrir.

    Brynja Ýr Júlíusdóttir sér um leikstjórn og Sigríður Rut Ragnarsdóttir Ísfeld er danshöfundur. Listrænir stjórnendur voru allir þátttakendur í Fyrsta kossinum en því sýningarferli lauk 19.febrúar og því byrjuðu æfingar á Grease ekki af fullum krafti fyrr en um miðjan febrúar og því má algjörlega segja að síðustu vikur hafi verið mjög krefjandi fyrir alla sem koma að sýningunni.

    Stjórnarmeðlimir Leikfélags Keflavíkur eru mjög ánægðir með það að geta stutt leikfélag NFS við að koma sinni starfsemi aftur á gott ról, en það leikfélag hefur ekki sett upp sýningu síðan árið 2018 þar sem Brynja var einnig leikstjóri. Við hvetjum alla að sjálfsögðu til að mæta á sýninguna og styðja við öflugt menningarstarf hjá leikfélögum Reykjanesbæjar/Suðurnesja.

    Leiklistarskóli Bandalagsins 2022

    mar 11, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Skólinn verður starfræktur 18.-26. júní

    Opnað hefur verið fyrir skráningu í hinn árlega Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga (BÍL). Skólinn hefur verið haldinn á hverju ári síðan 1997 en skólinn er að þessu sinni að Reykjaskóla í Hrútafirði.

    KVEÐJA FRÁ SKÓLANEFND

    Kæru leiklistarvinir!
    Við hlökkum mikið til þess að bjóða ykkur velkomin í Reykjaskóla í sumar þar sem leiklistarskólinn okkar verður settur í tuttugasta og fimmta sinn! Fjórfalt húrra fyrir þessum áfanga! Skólinn blómstar sem aldrei fyrr og við sjáum fram á mikla sköpun, metnað og gleði í sumar.

    Að þessu sinni verða þrjú fjölbreytt námskeið í boði. Við bjóðum velkominn aftur Ólaf Ásgeirsson sem kennir Leiklist I að þessu sinni. Einnig bjóðum við velkomna í fyrsta sinn í kennarahópinn, Jennýju Láru Arnþórsdóttur. Hún mun kenna Leikstjórn II sem er framhald af námskeiði Völu Fannell frá 2021. Þess má geta að Jenný Lára og Vala hafa sömu menntun og mun Vala styðja við undirbúning námskeiðsins til að tryggja samfellu. Sérnámskeið fyrir reynda leikara verður svo í höndum hins þrautreynda kennara Ágústu Skúladóttur. Að þessu sinni verður það námskeiðið Hvernig segjum við sögu sem Ágústa hefur boðið upp á áður við góðar undirtektir. Þá bjóðum við höfundum í heimsókn til að skerpa stílvopnið!
    Við vonum að sem flestir eigi þess kost að koma, nema og njóta.

    Hlökkum til að sjá ykkur – með bestu kveðju,
    Hrefna, Dýrleif, Herdís, Hrund og Gisli Björn

    Slá í gegn sýnt hjá Leikdeild UMF Skallagríms

    mar 9, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Slá í gegn verður sýnt í Félagsheimilinu Lyngbrekku.

    Leikdeild UMF Skallagríms frumsýnir söngleikinn Slá í gegn föstudaginn 11. mars. Söngleikurinn er eftir Guðjón Davíð Karlsson (Góa). Innblástur verksins er sóttur í lög Stuðmanna. Leikstjóri er Elvar Logi Hannesson og sýnt er í Félagsheimiinu Lyngbrekku.

    Miðapantanir eru í síma 696-1544 (Haffi) og einnig á netfangið: leikdeildskalla@gmail.com.

    Sýningar verða sem hér segir:

    1. Frumsýning. Föstudaginn 11. mars klukkan 20:00
    2. sýning Sunnudaginn 13. mars kl: 14:00
    3. sýning Sunnudaginn 13. mars klukkan 20:00
    4. sýning Þriðjudaginn 15. mars klukkan 20:00
    5. sýning Fimmtudaginn 17. mars klukkan 20:00
    6. sýning Föstudaginn 18. mars klukkan 20:00
    7. sýning Laugardaginn 19. mars klukkan 20:00
    8. sýning Sunnudaginn 20. mars klukkan 20:00
    9. sýning Þriðjudaginn 22. mars klukkan 20:00
    10. sýning Fimmtudaginn 24. mars klukkan 20:00

    Manndýr í Tjarnarbíó

    mar 9, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Manndýr er nýtt barna- og þátttökuverk sem frumsýnt verður í Tjarnarbíó 13. mars

    Manndýr er nýtt barna- og þátttökuverk eftir Aude Busson sem frumsýnt verður 13. mars nk. í Tjarnarbíó. Verkið skoðar hlutverk manneskjunnar í heiminum með augum barna, en verkið og hljóðmynd þess er að miklu leyti byggt á viðtölum Aude við börn.

    – Þegar maður hugsar út í það, þá er maður bara til af því að maður er til…

    – Eða til, til að gefa dýrunum?

    – Til… til að fjölga ormunum?

    – Eða erum við til fyrir heiminn?

    – En aftur á móti, þá endist jörðin ekki að eilífu, þannig að ef maður hugsar úti það, þá getur maður ekki bara haldið áfram að fæðast, fæðast og fæðast…

    Af hverju er maðurinn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers? Þessum spurningum velta börnin í Manndýr fyrir sér. Svör þeirra og vangaveltur eru einlæg, djúp, alvarleg og oft á tíðum sprenghlægileg.

    Manndýr er á mörkum þess að vera leikverk og innsetning. Í rýminu er manndýr, sem Aude leikur, í tilvistarkreppu að reyna að púsla sögu sinni saman á ný og skilja tilgang sinn í heiminum. Á milli leikrænna atriða eru börn jafnt sem fullorðnir hvattir til að taka þátt og leika saman. Gestum er boðið inn í heim þar sem hægt er að upplifa með eyrum, augum og höndum, sjálf eða í samvinnu. Við gefum okkur tíma til að spyrja spurninga sem fá svör eru við og dvelja í heimi þar sem börn segja alla söguna.

    Aude Busson er sviðslistarkona sem hefur áhuga á að skapa sýningar og viðburði sem byggja á þátttöku áhorfenda og þá sérstaklega með samvinnu barna og fullorðinna. Síðasta verk hennar “Ég elska Reykjavík” var fjölskyldugöngsýning og var tilnefnd til Grímuverðlauna.

    Sigríður Sunna Reynisdóttir er sviðshöfundur og hönnuður. Hún hefur unnið leikmyndir, búninga og leikbrúður fyrir fjölda sýninga í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, í Tjarnarbíó og víðar síðustu ár, auk þess að framleiða eigin sviðsverk. 

    Björn Kristjánsson eða Borko er tónlistarmaður og grunnskólakennari. Hann hefur unnið bæði í leikhúsi og í tónlistarheiminum í tæp 20 ár og leitt fjölda tónlistarverkefna með börnum.

    Í fylgd með fullorðnum frumsýnt 10. mars

    mar 8, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikfélag Hörgdæla frumsýnir Í fylgd með fullorðnum þann 10. mars nk.

    Leikfélag Hörgdæla æfir af fullum krafti leiksýninguna Í fylgd með fullorðnum í húsnæði félagsins að Melum þessa dagana. Í fylgd með fullorðnum er lífleg sýning sem segir frá gleði og sorgum persóna sem finna má í textum Bjartmars Guðlaugssonar og skipar tónlist hans ríkan sess í sýningunni. Leikritið er skrifað af Pétri Guðjónssyni sem jafnframt leikstýrir verkinu.

    Frumsýning verður fimmtudaginn 10. mars en uppselt er á fyrstu þrjár sýningarnar.

    Verkið byggir á lögum og textum Bjartmars Guðlaugssonar eins og áður sagði og er um alheimsfrumflutning að ræða. Lög Bjartmars eru mörgum kunn og Hörgdælir lofa miklu fjöri og skemmtun. 17 leikarar ásamt hljómsveit munu stíga á svið, sumir alvanir en aðrir að stíga sín fyrstu skref. Þar fyrir utan er fjöldi manns sem kemur að uppsetningunni.

    Sýningar eru fyrirhugaðar í mars og apríl. Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennar þess hafa sett upp upp leiksýningar að Melum um áratugaskeið við góðan orðstír.

    Umskiptingur. Nýtt barnaleikrit eftir Sigrúnu Eldjárn sýnt í Þjóðleikhúsinu

    mar 8, 2022   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Umskiptingur verður frumsýnt þann 12. mars
    • Leikritið var valið úr 150 leikverkum sem bárust þegar Þjóðleikhúsið kallaði eftir leikritum og hugmyndum að leikritum fyrir börn. 
    • Ragnhildur Gísladóttir semur tónlistina  en meðal fyrri barnaverka sem hún hefur samið tónlist fyrir eru Píla Pína og Glámur og Skrámur í Sælgætislandi. 
    • Sara Martí leikstýrir verkinu en þar er brugðið á leik með minnið um umskiptingana úr þjóðsögunum.

    Laugardaginn 12. mars frumsýnir Þjóðleikhúsið Umskipting, nýtt barnaleikrit eftir einn ástsælasta barnabókahöfund landsins, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Sara Martí leikstýrir og tónlistina semur Ragnhildur Gílsadóttir. Umskiptingur kemur einnig út sem bók á vegum Forlagsins um þessar mundir.

    Það er alltaf gleðifregn þegar nýtt íslenskt barnaleikrit ratar á fjalir leikhúsanna og ekki er það verra að verkið sé eftir einn af vinsælustu höfundum barnaefnis á umliðnum áratugum, Sigrúnu Eldjárn. Í verkinu Umskiptingur bregður hún á frumlegan og sniðugan hátt á leik með minnið um umskiptinga úr þjóðsögunum okkar. Allt frá því að fyrsta bók Sigrúnar, Allt í plati, kom út árið 1980 hefur hún fléttað texta og myndir saman í bókum sínum á allan mögulegan máta og oft mjög frumlega. Þetta er í annað sinn sem verk Sigrúnar ratar á fjalir Þjóðleikhússins en sýningin Kuggur og leikhúsvélin var sett upp árið 2014 og naut mikillar hylli. 

    Ævintýralegt leikrit um tröll og menn, ofurhetjur, smákríli ogdreka 
    Í Umskiptingi segir frá systkinunum Sævari og Bellu. Einu sinni sem oftar þarf Sævar að gæta litlu systur sinnar, sem satt að segja getur verið alveg ferleg frekjudolla! En Bella er alveg einstaklega krúttleg og þegar tröllskessa með óslökkvandi fegurðarþrá sér hana ákveður hún að skipta á henni og hinum stórgerða, uppátækjasama og hjartahlýja syni sínum, tröllastráknum Steina. Nú eru góð ráð dýr, en í ljós kemur að hjálpar má vænta úr ólíklegustu áttum! 

    Sara Martí Guðmundsdóttir er leikstjóri verksins en hún hefur komið víða við frá því að hún útskrifaðist sem leikari úr Listaháskólanum árið 2007. Sara hefur leikið bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og látið til sín taka í sjálfstæðu senunni. Sara lagði stund á leikstjórn í The Royal Central School of Speech and Drama í London og útskrifaðist þaðan árið 2010. Sara mun taka við stöðu leikhússtjóra Tjarnarbíós.

    Það er svo engin önnur en Ragnhildur Gísladóttir sem samdi tónlistina við verkið eins og henni einni er lagið. 

    Þjóðleikhúsið auglýsti á síðasta ári eftir handritum eða vel útfærðum hugmyndum að barnaleikritum til að efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita. Þetta var jafnframt í fyrsta skipti sem auglýst var eftir barnaleikritum með þessum hætti og viðbrögðin létu sannarlega ekki á sér standa. Alls bárust 150 umsóknir.

    Leikarar:
    Auðunn Sölvi Hugason, Arnaldur Halldórsson, Katla Líf Drífu-Loisdóttir, Arndís Hrönn Egilsdóttir, Hjalti Rúnar Jónsson, Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir og Andri Páll Guðmundsson.

    Höfundur
    Sigrún Eldjárn
    Leikstjórn
    Sara Martí Guðmundsdóttir
    Leikmynd, búningar og brúður
    Snorri Freyr Hilmarsson
    Tónlist og tónlistarstjórn
    Ragnhildur Gísladóttir
    Söngtextar
    Sigrún Eldjárn, Sara Martí Guðmundsdóttir, Ragnhildur Gísladóttir
    Hljóðhönnun
    Kristján Sigmundur Einarsson
    Lýsing
    Jóhann Friðrik Ágústsson
    Sviðshreyfingar
    Rebecca Hidalgo

    Síður:12»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!