
Eftirlætissýning margra leikhúsgesta á svið í þriðja sinn
Með fulla vasa af grjóti er bráðskemmtilegt leikrit sem hefur farið sigurför um heiminn, og hér sýna tveir af fremstu leikurum þjóðarinnar einstaka færni sína. Sviðsetning Þjóðleikhússins á leikritinu árið 2000 sló rækilega í gegn, sýningar urðu alls 180 og yfir 40.000 manns sáu verkið. Þegar sýningin fór aftur á svið árið 2012 bættust tæplega 10.000 áhorfendur við. Nú gefst enn á ný tækifæri til að sjá þessa frábæru sýningu.
Aðalpersónur verksins eru tveir náungar sem ráða sig sem aukaleikara í Hollywoodkvikmynd sem verið er að taka upp í nágrenni lítils þorps á vesturströnd Írlands. Fljótlega setur starfsemi kvikmyndafyrirtækisins allt á annan endann, og von bráðar eiga sér stað árekstrar á milli lífs Hollywoodstjarnanna og hversdagsleika sveitafólksins. Þessir árekstrar eru margir hverjir afar spaugilegir, en þeir geta einnig haft alvarlegar afleiðingar.
Í verkinu kynnumst við fjölda skrautlegra og skemmtilegra persóna og þeir Hilmir Snær Guðnason og Stefán Karl Stefánsson fara með öll fjórtán hlutverkin.
Um leikritið
Með fulla vasa af grjóti, eða Stones in His Pockets, eftir Marie Jones er meðal þekktustu leikrita sem skrifuð hafa verið á Norður-Írlandi á síðari árum.
Verkið var upphaflega skrifað fyrir írska leikhópinn Double Joint og frumsýnt árið 1996. Jones endurskrifaði verkið fyrir Lyric-leikhúsið í Belfast árið 1999. Sýning Lyric-leikhússins var sýnd í Dublin og á Edinborgarhátíðinni sama ár. Verkið vakti þar mikla athygli og var í kjölfarið frumsýnt í New Ambassadors-leikhúsinu á West End árið 2000, í leikstjórn Ians McElhinneys. Sýningin sló í gegn, var flutt í Duke of York’s leikhúsið og sýnd í þrjú ár samfleytt í London. Leikararnir í upprunalegu sýningunni léku verkið á Broadway, og tóku ýmsir leikarar við hlutverkum þeirra í London á sýningartímabilinu.
Verkið hefur frá frumsýningunni í London farið sigurför um heiminn og verið þýtt á fjölda tungumála. Það hefur hlotið ýmis verðlaun, og má þar nefna Laurence Olivier verðlaunin, Evening Standard verðlaunin og Irish Times/ESB leiklistarverðlaunin.
Hlutverk
Stefán Karl Stefánsson:
Jake Quinn – Aisling, 3. aðstoðarleikstjóri – Mickey, gamall aukaleikari – Sean Harkin, ungur piltur í þorpinu – John, framburðarkennari – Dave, tökumaður, Lundúnabúi – Kevin Docherty, fréttamaður
Hilmir Snær Guðnason:
Charlie Conlon – Simon, 1. aðstoðarleikstjóri – Caroline Giovanni, kvikmyndastjarna – Clem Curtis, leikstjórinn – Harkin, faðir Seans – Fin, vinur Seans Harkins – Jock Campbell, öryggisvörður Caroline – Bróðir Gerard, kennari í þorpinu

Gríman – íslensku sviðslistaverðlaunin 2017 voru veitt þann 16.júní sl. í Þjóðleikhúsinu. Barnasýningin Blái hnötturinn fékk flest verðlaun, eða fjögur. Hlaut sýningin verðlaun fyrir barnasýningu ársins, dans- og sviðshreyfingar ársins, leikmynd ársins og tónlist ársins.
Sýning ársins er Fórn – No Tomorrow eftir Margréti Bjarnadóttur og Ragnar Kjartansson, í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins. Leikkona ársins í aðalhlutverk er Sólveig Guðmundsdóttir, fyrir hlutverk sitt í Sóley Rós ræstitæknir í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps. Leikari ársins í aðahlutverki er Stefán Hallur Stefánsson, fyrir hlutverk sitt í Góðu fólki.
Hér má sjá alla verðlaunaflokka og tilnefningar. Verðlaunahafar eru feitleitraðir.
Leikrit ársins
Húsið eftir Guðmund Steinsson
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Sending eftir Bjarna Jónsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins
Sóley Rós ræstitæknir
eftir Maríu Reyndal og Sólveigu Guðmundsdóttur
í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps
Tímaþjófurinn eftir Steinunni Sigurðardóttur
í leikgerð Melkorku Teklu Ólafsdóttur
Sviðsetning – Þjóðleikhúsið
Ævisaga einhvers eftir Kriðpleir og Bjarna Jónsson
í sviðsetningu Kriðpleirs
Leikstjóri ársins
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Stertabenda í sviðsetningu Grétu Kristínar Ómarsdóttur og Þjóðleikhússins
María Reyndal
Sóley Rós ræstitæknir í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps
Ólafur Egill Egilsson
Brot úr hjónabandi í sviðsetningu Borgarleikhússins
Una Þorleifsdóttir
Gott folk í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Una Þorleifsdóttir
Tímaþjófurinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins í aðalhlutverki
Björn Thors
Brot úr hjónabandi í sviðsetningu Borgarleikhússins
Guðjón Davíð Karlsson
Húsið í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Sigurður Sigurjónsson
Maður sem heitir Ove í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Stefán Hallur Stefánsson
Ég vil frekar að Goya haldi fyrir mér vöku en einhver djöfulsins fáviti í sviðsetningu ST/unu og Þjóðleikhússins
Stefán Hallur Stefánsson
Gott fólk
í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikari ársins í aukahlutverki
Arnmundur Ernst Backman
Djöflaeyjan í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Björgvin Franz Gíslason
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Björn Hlynur Haraldsson
Óþelló í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Davíð Þór Katrínarson
Ræman í sviðsetningu Borgarleikhússins
Sveinn Ólafur Gunnarsson
Sóley Rós ræstitæknir í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Hera Hilmarsdóttir
Andaðu í sviðsetningu Leikfélagsins fljúgandi fiska
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins
Sólveig Guðmundsdóttir
Sóley Rós ræstitæknir í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps
Unnur Ösp Stefánsdóttir
Brot úr hjónabandi í sviðsetningu Borgarleikhússins
Vigdís Hrefna Pálsdóttir
Húsið í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikkona ársins í aukahlutverki
Birgitta Birgisdóttir
Húsið í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Halldóra Geirharðsdóttir
Salka Valka í sviðsetningu Borgarleikhússins
Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Kristbjörg Kjeld
Húsið í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Snæfríður Ingvarsdóttir
Djöflaeyjan í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Leikmynd ársins
Börkur Jónsson
Álfahöllin í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Börkur Jónsson
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Eva Signý Berger
Évgení Onegin í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Gretar Reynisson
Sending í sviðsetningu Borgarleikhússins
Ilmur Stefánsdóttir
Blái hnötturinn í sviðsetningu Borgarleikhússins
Búningar ársins
Eva Signý Berger
Tímaþjófurinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Filippía I. Elísdóttir
Húsið í sviðsetningu Þjóðleikhússins
María Th. Ólafsdóttir
Évgení Onegin í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Stefanía Adolfsdóttir
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Þórdís Erla Zoega
Da Da Dans í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson
Fórn – Shrine í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Halldór Örn Óskarsson
Óþelló í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Kjartan Darri Kristjánsson
Þórbergur í sviðsetningu Edda Productions
Ólafur Ágúst Stefánsson
Horft frá brúnni í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Þórður Orri Pétursson
Blái hnötturinn í sviðsetningu Borgarleikhússins
Tónlist ársins
Barði Jóhannsson
Brot úr hjónabandi í sviðsetningu Borgarleikhússins
Bryce Dessner
Fórn – No Tomorrow í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Jónas Sen
FUBAR í sviðsetningu Níelsdætra
Kristjana Stefánsdóttir
Blái hnötturinn í sviðsetningu Borgarleikhússins
Memfismafían
Djöflaeyjan í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Hljóðmynd ársins
Baldvin Þór Magnússon
Shades of History í sviðsetningu Katrínar Gunnarsdóttur, Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival
Garðar Borgþórsson
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Kristinn Gauti Einarsson
Tímaþjófurinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Sveinbjörn Thorarensen
Da Da Dans í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Valdimar Jóhannsson
Fórn – Shrine í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Söngvari ársins
Andrey Zhilikhovsky
Évgení Onegin í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Arnmundur Ernst Backman
Djöflaeyjan í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Auður Gunnarsdóttir
Mannsröddin – La voix humaine í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Elmar Gilbertsson
Évgení Onegin í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Katrín Halldóra Sigurðardóttir
Elly í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Þóra Einarsdóttir
Évgení Onegin í sviðsetningu Íslensku óperunnar
Dans- og sviðshreyfingar ársins
Aðalbjörg Árnadóttir og Ylfa Ösp Áskelsdóttir
Þær spila blak Hallelúja í sviðsetningu Dúósins Díó
Agnes Wild
Á eigin fótum í sviðsetningu Miðnættis og Lost Watch Theatre Company
Brogan Davison
STRIPP í sviðsetningu Dance For Me og Olgu Sonju Thorarensen
Chantelle Carey
Blái hnötturinn í sviðsetningu Borgarleikhússins
Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Tímaþjófurinn í sviðsetningu Þjóðleikhússins
Barnasýning ársins
Á eigin fótum
eftir Miðnætti og Lost Watch Theatre Company í sviðsetningu Miðnættis og Lost Watch Theatre Company
Blái hnötturinn
eftir Andra Snæ Magnason í leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Fjaðrafok
eftir Tinnu Grétarsdóttur og Chantal McCormick í sviðsetningu Bíbí & Blaka og Fidget Feet
Íslenski fíllinn
eftir Bernd Ogrodnik og Hildi M. Jónsdóttur í sviðsetningu Brúðuheima og Þjóðleikhússins
Jólaflækja
eftir Berg Þór Ingólfsson í sviðsetningu Borgarleikhússins
Dansari ársins
Ásgeir Helgi Magnússon
Da Da Dans í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Elín Signý W. Ragnarsdóttir
Fórn – Shrine í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Katrín Gunnarsdóttir
Shades of History í sviðsetningu Katrínar Gunnarsdóttur, Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival
Sigríður Soffía Níelsdóttir
FUBAR í sviðsetningu Níelsdætra
Védís Kjartansdóttir
Da Da Dans í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Danshöfundur ársins
Inga Huld Hákonardóttir og Rósa Ómarsdóttir
Da Da Dans í sviðsetningu Íslenska dansflokksins
Katrín Gunnarsdóttir
Shades of History í sviðsetningu Katrínar Gunnarsdóttur, Tjarnarbíós og Reykjavík Dance Festival
Margrét Bjarnadóttir og Ragnar Kjartansson
Fórn – No Tomorrow í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Útvarpsverk ársins
Eftir ljós
eftir Sölku Guðmundsdóttur
Leikstjórn Gréta Kristín Ómarsdóttir
Í sviðsetningu Útvarpsleikhússins – RÚV
Lifun
eftir Jón Atla Jónasson
Leikstjórn Stefán Hallur Stefánsson
Í sviðsetningu Útvarpsleikhússins – RÚV
Mannasiðir
eftir Maríu Reyndal
Leikstjórn María Reyndal
Í sviðsetningu Útvarpsleikhússins – RÚV
Sýning ársins
Brot úr hjónabandi
eftir Ingmar Bergman í þýðingu Þórdísar Gísladóttur
Sviðsetning – Borgarleikhúsið
Elly
eftir Ólaf Egil Egilsson og Gísla Örn Garðarsson
í sviðsetningu Borgarleikhússins og Vesturports
Évgení Onegin
eftir Pjotr Tchaikovsky
í leikgerð Anthony Pilavachi
hljómsveitarstjóri Benjamin Levy
Sviðsetning – Íslenska óperan
Fórn – No Tomorrow
eftir Margréti Bjarnadóttur og Ragnar Kjartansson í sviðsetningu Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins
Sóley Rós ræstitæknir
eftir Maríu Reyndal og Sólveigu Guðmundsdóttur í sviðsetningu Kvenfélagsins Garps
Sproti ársins
Dúó Díó
Fyrir Þær spila blak Hallelúja
Gréta Kristín Ómarsdóttir
Menningarfélagið G&G
Fyrir A guide to the perfect human
Ratatam
Sómi þjóðar