janúar | 2023 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Archive from janúar, 2023

    Styrkir á ráðstefnu um barna- og unglingaleikrit í Helsinki

    jan 30, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Ráðstefnan verður haldin dagana 22.-24. apríl 2023.

    Dagana 22.-24. apríl 2023 verður haldin ráðstefna í Helsinki um barnaleikrit fyrir börn á aldrinum 8-15 ára. Í boði eru styrkir til fararinnar fyrir tvo þátttakendur frá Íslandi. Greitt verður fyrir flug og gistingu í 2-3 nætur. Ráðstefnan er ætluð fyrir höfunda, leiklistarkennara og aðra sem starfa við leiklist með og fyrir börn. Fulltrúar barna munu taka þátt í ráðstefnunni og gefa sitt sjónarhorn. 

    Skipuleggjandi ráðstefnunnar er Huginn/Munin sem er samstarfsverkefni 8 félagasamtaka í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Markmið verkefnisins er að styðja við leikritaskrif ætluð fyrir uppsetningar með börnum.   

    Frekari upplýsingar er að finna á vefnum https://huginmunin.nu/konferens/ og einnig má hafa samband við Þjónustumiðstöð BÍL í info@leiklist.is eða 551-6974.

    Tengill fyrir umsóknarform:
    https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScegmG-oClYPQUKttt10teN-X77lhGd4DMQ-QB3w-WpYtqRVg/viewform

    Fólkið í blokkinni

    jan 30, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Freyvangsleikhúsið sýnir um þessar mundir gamanleikinn Fólkið í blokkinni.

    Fólkið í Blokkinni er hjartnæm saga af skrautlegu lífi fólks í blokk sem ákveður að setja upp söngleik og efniviðurinn er það sjálft.
    Fjölskyldan Tryggvi og Solla með unglingana sína tvo Söru og Óla eru ekki hin hefðbundna fjölskylda en hvað er hefðbundið?
    Hárfinnur hárfíni er í forsvari fyrir hljómsveitina Sóna sem æfir stíft í kjallaranum á meðan Robbi húsvörður reynir ólmur að koma í veg fyrir að söngleikurinn komist á koppinn og hefur almennt allt á hornum sér. Sjarmörinn Hannes reynir allt hvað hann getur að ganga í augun á Söru. Slagarar eins og Hárfinnur Hárfíni, Ofurmennið og að sjálfsögðu Fólkið í blokkinni, hljóma í þessari tilteknu blokk.

    Margir kannast við sögurnar af fólkinu í blokkinni. Um er að ræða hálfgert smásagnasafn Ólafs Hauks sem kom fyrst út á bók 2001. Leikgerðin var fyrst sett upp af Leikfélagi Reykjavíkur 2008 og var fylgt eftir með diski með lögunum úr verkinu, Í leikgerðinni er sagan nokkuð breytt frá bókinni, þó að persónur séu að miklu leyti þær sömu og húmorinn sá sami.

    Árið 2013 var svo sýnd 6 þátta sería á RÚV um þessar persónur sem var hvorki nákvæmlega sama saga og bókin og ekki heldur sama saga og leikverkið. En nánar að verkinu sjálfu.

    Fólkið í blokkinni hjá Freyvangsleikhúsinu er í leikstjórn Kolbrúnar Lilju Guðnadóttur og er tónlistin í höndum fagmanna, undir stjórn Atla Rúnarssonar og með Helga Þórsson í fararbroddi í söng.

    VHS velur vellíðan

    jan 28, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    VHS hópurinn velur vellíðan í glænýrri uppistandssýningu.

    Uppistandshópurinn VHS snýr aftur á svið með glænýtt uppistand! Í þetta sinn leggur hópurinn áherslu á að bjóða gestum upp á nærandi kvöldstund, heilandi upplifun og níutíu mínútna hláturskast. 

    VHS hefur getið sér gott orð fyrir ferskt grín og metnaðarfullar sýningar. Síðasta sýning þeirra, VHS krefst virðingar, gekk fyrir fullu húsi í Tjarnarbíó 2021-2022 og var um hríð vinsælasti viðburðinn á tix.is. Haustið 2022 frumsýndi hópurinn Fullveldisdagskrá VHS á RÚV en þátturinn vakti mikla athygli, hann er talinn einn vinsælasti fullveldisþáttur eftir grínhóp sem kom út það ár. Þau eru æst að komast aftur á svið með sína fjórðu sýningu.

    Komdu í Tjarnarbíó og láttu róna flæða yfir þig á meðan þú horfir á ferskasta uppistand ársins. VHS velur vellíðan og býður þér að vera með.

    Einn af sketsum VHS hópsins

    Sýningin er í boði Símans.

    VHS hrindir árinu af stað með upphitunarsýningum, þar sem góðir gestir leysa Vigdísi Hafliðadóttur af hólmi og áhorfendum býðst að sjá sýninguna þróast og verða til, þar sem að sýningin er enn í mótun er miðaverð lægra. 
    Formleg frumsýning er svo 25. febrúar.

    VERÐ Á UPPHITUNARSÝNINGU ER 3500kr.

    VHS:
    Vilhelm Neto, Vigdís Hafliðadóttir, Hákon Örn Helgason og Stefán Ingvar Vigfússon.

    Lalli Töframaður

    jan 27, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    ENG / POL / UKR / ESP / BELOW

    Lalli töframaður mætir ásamt besta vini sínum, þvottabirninum Ringo í Tjarnarbíó í janúar. Hér er á ferðinni glæný og stórskemmtileg hálftíma löng töfrasýning, án orða, fyrir alla fjölskylduna (2-12.ára). Lalli og Ringo lofa nýjum töfrabrögðum, fíflalátum og gleði.

    ENG. Lalli the magician along with his best friend Ringo the raccoon have a brand new show at Tjarnarbio theatre in January. Here’s a magic filled half-hour long show, without words, for the whole family. Lalli and Ringo will leave everyone wanting more!

    POL. Magik Lalli będzie w Tjarnarbíó ze swoim najlepszym przyjacielem, szopem Ringo w styczniu. Oto zupełnie nowy i wspaniały pokaz magii, bez słów, dla całej rodziny. Lalli i Ringo obiecują zabawne magiczne sztuczki, i dużo zabawy

    UKR. Фокусник Лаллі відвідає Тьярнарбіо зі своїм найкращим другом єнотом Рінго в січні. До вашої уваги абсолютно нове та веселе півгодинне магічне шоу , без слів , для всієї родини. Лаллі та Рінго обіцяють веселі фокуси, витівки та радість.

    ESP. El mago Lalli y su mejor amigo el osito Ringo nos visitarán en enero en Tjarnabío. Esta obra ocurrente, amena y mágica, que no necesita palabras, tendrá durante media hora a toda la familia embelesada. Lalli y Ringo prometen mucha ilusión, alegría y nuevos trucos mágicos

    Venus í feldi

    jan 26, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Venus í feldi eftir David Ives er frumsýnt 26. janúar í Tjarnarbíó

    Tómas Novachek, leikstjóri og leikskáld, hefur átt erfiðan dag í örvæntingarfullri en árangurslausri leit að réttri leikkonu í nýtt leikrit hans. Hann hefur gert leikgerð upp úr skáldsögunni Venus í feldi eftir hinn austurríska Leopold von Sacher-Masoch. Við hann er einmitt sado-masokismi kenndur. Í lok áheyrnarprófanna æðir skyndilega ýtin og einstaklega viljasterk leikkona inn á leiksviðið. Svo undarlega vill til að hún ber sama nafn og aðalsöguhetja leikritsins, – hún kann hlutverkið reiprennandi og veit grunsamlega mikið um efnivið verksins.

    Engu að síður er leikstjórinn ekki sannfærður um að leikkonan geti leikið hina fáguðu og glæsilegu persónu sviðsverksins. Hann lætur þó til leiðast og leyfir henni að máta sig við hlutverkið og áttar sig fljótlega á að hæfileikar hennar og töfrar eru ómótstæðilegir.

    Andrúmsloftið verður spennuþrungið, tilfinningaríkt og tælandi, mörk fantasíu og raunveruleika, drottnunar og undirgefni verða fullkomlega óljós.

    Venus í feldi er heillandi stúdía um erótík, völd og baráttu kynjanna. Það sló rækilega í gegn er það var frumsýnt á Broadway árið 2011. Hlaut Tonyverðlaunin fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki og var tilnefnt sem besta leikritið. Roman Polanski kvikmyndaði árið 2013 og var myndin tilnefnd til fimm César verðlauna árið 2014.

    Leikarar: Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
    Höfundur: David Ives
    Þýðing: Stefán Már Magnússon
    Leikstjórn: Edda Björg Eyjólfsdóttir
    Leikmynd: Brynja Björnsdóttir
    Búningar: María Ólafsdóttir
    Tónlist og hljóðmynd: Halldór Eldjárn
    Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson og Jóhann Friðrik Ágústsson
    Dramatúrg, aðstoð við þýðingu og leikstjórn: Hafliði Arngrímsson

    Chicago

    jan 26, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Söngleikurinn Chicago verður frumsýndur hjá Leikfélagi Akureyrar 27. janúar.

    Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.
    Sagan gerist á þriðja áratug síðustu aldar í hinni spilltu og lostafullu Chicagoborg þar sem svik og prettir eru daglegt brauð. Glæpakvendin Velma Kelly og Roxy Hart berjast um athygli fjölmiðla í von um frægð og frama og þrátt fyrir að vera báðar á bak við lás og slá svífast þær einskis til að slá í gegn. Chicago er meinfyndin og skemmtileg ádeila á spillingu og yfirborðsmennsku fjölmiðla og réttarkerfisins. Söngleikurinn iðar af fjöri, hispursleysi og húmor ásamt ógleymanlegri tónlist og dansatriðum sem kitla öll skynfæri.

    Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæli og margverðlaunaði söngleikur er sýndur á Akureyri í atvinnuleikhúsi. Chicago var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu 1985 í þýðingu Flosa Ólafssonar og svo aftur í Borgarleikhúsinu árið 2005.
    Uppsetningin er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands.

    Leikstjóri: Marta Nordal
    Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
    Danshöfundur: Lee Proud
    Leikmynd: Eva Signý Berger
    Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir
    Leikgervi: Harpa Birgisdóttir
    Ljósahönnuður: Ólafur Ágúst Stefánsson
    Hljóðhönnuður: Sigurvald Ívar Helgason
    Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson

    Jóhanna Guðrún: Velma
    Þórdís Björk Þorfinnsdóttir: Roxý
    Margrét Eir: Mama Morton
    Björgvin Franz Gíslason: Billly Flynn
    Arnþór Þórsteinsson: Amos
    Bjartmar Þórðarson: Marta Smarta

    Með önnur hlutverk fara: Jónína Björt Gunnarsdóttir, Ahd Tamimi, Elma Rún Kristinsdóttir, Kata Vignisdóttir, Anita Þorsteinsdóttir og Molly Carol Birna Mitchell.

    Þjóðleikhúsið frumsýnir Ex

    jan 24, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    EX er ammar hluti Mayenburg-þríleiksins.
    • Leikarar eru Nína Dögg, Gísli Örn og Kristín Þóra
    • Sama listræna teymið og í Ellen B. – Marius von Mayenburg, Benedict Andrews, Nina Wetzel, Björn Bergsteinn Guðmundsson og Gísli Galdur
    • Ellen B. hefur fengið frábærar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda
    • Einsdæmi að Þjóðleikhúsið setji upp þríleik. Margir áhorfendur sem sáu Ellen B bíða spenntir.  Þrjú sjálfstæð verk sem mynda þó heild.

    Þjóðleikhúsið frumsýnir Ex, annan hlutann í þríleik eftir Marius von Mayenburg í leikstjórn Benedicts Andrews, laugardaginn 28. janúar á Stóra sviðinu. Skemmst er að minnast heimsfrumsýningar á Ellen B., fyrsta hluta þríleiksins, sem frumsýndur var á annan dag jóla og hefur fengið gríðarlegt lof áhorfenda og gagnrýnenda. Eftirvæntingin er því mikil eftir Ex.
    Leikarar í sýningunni eru Nína Dögg Filippusdóttir, Kristín Þóra Haraldsdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Listræna teymið er hið sama og í Ellen B., Benedict Andrews leikstýrir, Nina Wetzel hannar leikmynd og búninga, Björn Bergsteinn hannar lýsingu og Gísli Galdur er höfundur tónlistar. Í haust mun Mayenburg sjálfur leikstýra þriðja verki þríleiksins, Egal (Alveg sama). 

    Ex er flugbeitt sálfræðidrama og annað verkið í splunkunýjum þríleik Mariusar von Mayenburg sem verðlaunaleikstjórinn Benedict Andrews leikstýrir. Á fallegu heimili fyrirmyndarhjóna, arkítekts og læknis með tvö ung börn er bankað upp á um miðja nótt. Fyrir utan stendur fyrrverandi kærasta eiginmannsins og bráðvantar samastað eftir að hafa flutt út frá sambýlismanni sínum í miklum flýti. Fljótlega breytist heimilið í vígvöll þar sem ásakanir og uppljóstranir þjóta á milli eins og byssukúlur. Hvað dró þetta fólk hvert að öðru í upphafi?

    Hvort skiptir meira máli í hjónabandi til lengdar, ástríðan eða sameiginleg markmið, lífssýn og samfélagsstaða? Af vægðarleysi og sótsvörtum húmor er tekist á við ágengar spurningar um hjónabandið, ástina og tærandi afbrýðisemi, lífsorkuna og lífsleiðann, fjölskylduna, kynlífið og ofbeldið í samböndum fólks.

    Ex var frumflutt hjá Riksteatern í Svíþjóð 2021 í leikstjórn höfundar. Hér er á ferðinni réttnefnt leikhúskonfekt, þar sem stórleikarar í bitastæðum hlutverkum kryfja líf nútímafólks.

    Marat/Sade

    jan 20, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Marat/Sade er sýnt í Borgarleikhúsinu.

    Bæling og losti, kúgun og uppreisn, hinir jaðarsettu gegn valdinu! Marat/Sade, öðru nafni Ofsóknin og morðið á Jean Paul Marat sýnt af vistmönnum geðveikrahælisins í Charenton undir stjórn De Sade markgreifa, er eitt af öndvegisverkum 20. aldarinnar – marglaga og margslungið í efni og formi. Verkið, sem er eftir þýska leikskáldið Peter Weiss, var fyrst frumsýnt árið 1963 og hefur frá upphafi verið umdeilt og vakið sterk viðbrögð. Hér er leikrit inni í leikriti – vistmenn geðveikrahælisins í Charenton setja á svið verk undir stjórn hins alræmda markgreifa De Sade. 

    De Sade er einnig höfundur leikritsins og sjálfur vistmaður á hælinu. Verkið hverfist um frönsku byltinguna og er þrungið átökum og andstæðum sem endurspeglast í hinum týndu sálum hælisins. Í uppfærslu Lab Loka og Borgarleikhússins á þessu kraftmikla leikriti verður til mögnuð sýning þar sem Nýja sviðið fyllist af mörgum dáðustu en jafnframt elstu listamönnum íslensku þjóðarinnar en þau yngstu eru um sjötugt og þau elstu fast að níræðu. Hér er óhætt að lofa einstakri upplifun og sjónarspili sem seint gleymist.

    Verkefnið er stutt af Reykjavíkurborg og Menningar- og viðskiptaráðuneytinu, bæði úr sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks.

    Stelpuhelgi frumsýnt í mars

    jan 20, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Samlestur á Stelpuhelgi sem frumsýnt verður í mars hjá Leikfélagi Hörgdæla.

    Leikfélag Hörgdæla er um þessar mundir að hefja æfingar á leikritinu Stelpuhelgi eftir Karen Schaeffer í þýðingu Harðar Sigurðarsonar. Leikritið Stelpuhelgi er stórskemmtilegur farsi þar sem vinkonurnar Meg, Carol, Dot ásamt Ellie dóttir Megs hittast í bústaðnum hjá Dot. Markmið helgarinnar er að hafa gaman, skiptast á sögum, drekka áfengi og fara yfir næstu bók í bókaklúbbnum, lausar við alla karlmenn. Það fer svo að flækjast þegar gengur á áfengið og vinkonurnar eru allar búnar að bjóða hver sínum karli í eftirpartý þvert á hugmyndir gestgjafans.


    Leikstjóri sýningarinnar verður Gunnar Björn Guðmundsson en hann er margreyndur leikstjóri með yfir 30 leiksýningar, 4 áramótaskaup og kvikmyndir eins og Astrópía og Amma Hófí á bakinu.


    Stefnt er á frumsýningu 2. mars og miðasala fer af stað á næstu dögum. Sýningin er tilvalin fyrir hópa, eins og starfsmannafélög. Mun leikfélagið bjóða uppá hópafslætti sem verða auglýstir síðar. Leikfélag Hörgdæla og fyrirrennar þess setja reglulega upp leiksýningar á Melum sem dæmi má nefna Í fylgd með fullorðnum sem leikfélagið setti upp síðastliðin vetur og sló heldur betur í gegn, ásamt öðrum sýningum sem hafa getið gott orð af sér þannig að það verður enginn svikinn af heimsókn á Mela.

    Dýrin í Hálsaskógi

    jan 16, 2023   //   by gunnarandri   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir
    Leikfélag Mosfellssveitar sýnir hið sívinsæla fjölskylduleikrit Dýrin í Hálsaskógi.

    Leikfélag Mosfellssveitar setur upp hið sívinsæla leikrit Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjørn Egner þar sem áhorfendur kynnast lífinu í skóginum og skemmtilegum karakterum á borð við hinn söngelska Lilla klifurmús og hinn lævísa Mikka ref. Leikstjóri er Birna Pétursdóttir, tónlistarstjóri er Sigurjón Alexandersson og Eva Björg Harðardóttir hannar leikmynd og búninga. Sýningar eru í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ á sunnudögum kl. 14.

    Síður:12»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!