september | 2016 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Archive from september, 2016

    Sóley Rós ræstitæknir

    sep 30, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    soleyrosraestitaeknir

    Sóley Rós ræstitæknir

    Sóley Rós er 42 ára mamma, amma, eiginkona og skúringakona.

    „Þú veist ekkert hvernig líkaminn á mér virkar. Það stendur ekki í neinni bók.”

    Verkið er byggt á viðtölum við raunverulega íslenska hvunndagshetju sem hefur átt lygilegt lífshlaup, hefur kynnst mótlæti og sárum missi sem hver sem er gæti kiknað undan.

    Sóley Rós er einstök persóna. Hún er Bjartur í Sumarhúsum, hún er Þóra í Hvammi.

    Meinfyndið og grátbroslegt verk um samtímann sem tekur á mikilvægum málefnum sem allir hafa skoðanir á og varða okkur öll.

    Höfundar leikverks: María Reyndal og Sólveig Guðmundsdóttir
    Leikarar: Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson
    Leikstjórn: María Reyndal
    Ljósa – og sviðshönnun: Egill Ingibergsson
    Myndbönd: Pierre Alain Giraud Búningar: Margrét Einarsdóttir
    Tónlist: Úlfur Eldjárn
    Hár og förðun: Diego Batista
    Framkvæmdastjórn: María Heba Þorkelsdóttir

    Enginn hittir einhvern

    sep 30, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    enginnhittireinhvern stor

    Kraftmikið og ástríðufullt leikrit um sambönd fólks.

    “ Ég er að fara að hitta…einhvern. Mann. Mann sem ég þekkti einu sinni. Ég verð að hitta hann. Ég verð að gera það.

    Enginn hittir einhvern er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikrit sem hrífur áhorfandann með sér í spennandi ferðalag um furður lífsins. Verkið leiðir áhorfandann inn í samband tveggja ástríðufullra einstaklinga sem birtast okkur í sextán stuttum senum sem eru allt í senn fyndnar, ögrandi og ljóðrænar.

    Enginn hittir einhvern sem frumsýnt var í Norræna Húsinu síðastliðið vor verður gestasýning í Samkomuhúsinu á Akureyri 2.október. Höfundur verksins er hinn beitti penni Peter Asmussen sem meðal annars skrifaði handritið af kvikmyndinni Breaking the Waves með Lars von Trier. Þetta er í fyrsta sinn sem leikverk eftir hann er sýnt hérlendis. Asmussen vann hin virtu dönsku Reumert verðlaun sem leikskáld ársins fyrir Enginn hittir einhvern og aftur nú í ár fyrir nýtt verk.

    Peter Asmussen var fæddur árið 1957 en féll frá langt fyrir aldur fram fyrr á þessu ári. Leikstjóri verksins er Simon Boberg sem gjörþekkir Asmussen og hefur leikstýrt mörgum frumuppfærslum á verkum hans. Einnig koma að verkinu hópur framúrskarandi listamanna frá Noregi, Finnlandi, Danmörku og Íslandi til að skapa verkinu umgjörð.

    Höfundur: Peter Asmussen
    Þýðandi: Jón Atli Jónasson
    Leikstjóri. Simon Boberg
    Leikarar: María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson
    Hreyfingar: Raisa Foster
    Tónlist: Andreas Ljones
    Leikmynd. Snorri Freyr Hilmarsson
    Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson
    Aðstoðarleikstjórar: Þóra Karitas Árnadóttir, Þórey Sigþórsdóttir
    Tæknimaður: Hafliði Emil Barðason

    Fjórar stjörnur – “Textinn virkar eins og tónverk með ólíkum leiðarstefjum. Nálgun Simons Boberg leikstjóra undirstrikar músíkina í verkinu. Leikurinn og allar hreyfingar eru stílfærðar og minna þannig á dansverk þar sem hver einasta handahreyfing og augnaráð er fyrirfram ákveðið. Leikurinn er agaður og undirstrikar kuldann sem af textanum stafar en undir niðri kraumar hiti, örvænting og þrá eftir tengslum sem hreyfði sterklega við rýni. “ – Silja Björk Huldudóttir MBL

    “Þessi sýning á fundi karls og konu er ákaflega vel uppbyggð, líkamarnir tala í áreynslulausu hreyfingamunstri. Það er mýkt yfir allri nákvæmni leiksins… okkar hlutverk er jafn mikilvægt og leikaranna góðu… ég fer heim með ýmsa nýja fleti á tilverunni sem ég hef kannski áður veigrað mér við að hugsa um. Norræna sýningin á Enginn hittir einhvern er ljós í myrkri.” -María Kristjánsdóttir RUV Víðsjá

    “Haldi maður bara örlítið uppá leikhús verður maður dreginn á tálar og manni skemmt frábærlega og allar leikhúsóskir manns munu rætast á þessari leiksýningu. Leikritið er aðeins rúmur klukkutími að lengd en satt best að segja það besta sem ég hef séð í áraraðir.“ -Lars Wredström, Börsen

    Sýningar hefjast að nýju

    sep 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    njála stór logo

    Sýningar hefjast að nýju í kvöld á Njálu í Borgarleikhúsinu.

    Njála er nýtt íslenskt leikverk sem byggir á Brennu-Njálssögu, einni ástsælustu sögu okkar Íslendinga. Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú.  Hún segir frá því hvernig við urðum að þjóð, og hetjur bókarinnar, þau Gunnar, Skarphéðinn, Njáll, Hallgerður og Bergþóra eru sveipuð goðsagnakenndum ljóma og hafa mótað og markað þjóðarsálina allt til þessa dags. Leikhópurinn og Íslenski dansflokkurinn, undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar, munu tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að takast á við þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem verður í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður!

    Njála er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins.

    ATHUGIÐ að Njáluhátíð hefst í forsal Borgarleikhússins fyrir hverja sýningu kl 19:00 með ýmsum uppákomum.  Þar verður hægt að fá lánaða búninga, hitta leikara á vappi, kaupa kjötsúpu, sjá beina útsendingu frá leikurum í hár og förðun og fylgjast með undirbúningi á Stóra sviðinu.  Jafnframt verður boðið upp á fyrirlestur um Njálu kl 19:00 

    Mikael Torfason er blaðamaður og rithöfundur og vakti fyrst athygli með skáldsögunni Falskur fugl sem kom út árið 1997, síðan hefur hann sent frá sér fjórar skáldsögur og leikritið Harmsögu. Þorleifur Örn Arnarson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri hérlendis og erlendis og hefur unnið m.a. unnið leikgerðirnar að Englum alheimsins og Sjálfstæðu fólki.

    Erna Ómarsdóttir er vafalaust einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd á hinum ýmsu dans- og listahátíðum víða um heim. Hún hefur unnið með nokkrum af fremstu dans- og sviðslistahópum Evrópu og listamönnum á borð við Jan Fabre, Sidi Larbi Cherkaoui, Björk, Jóhanni Jóhannsson og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna hefur víða vakið athygli fyrir sinn einstaka stíl og hlotið mikið lof fyrir verk sín, núna síðast fyrir verkið Black Marrow sem hún samdi ásamt Damien Jalet, en það verk var einmitt tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2015 sem Sýning ársins.

     

    ÚR GAGNRÝNI

    „Unaðslegt leikhús“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Ærandi ofsi, yndislegar endurtekningar og heiftug fegurð“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Hjörtur Jóhann springur út í hlutverki Skarphéðins. Kraftur hans verður ógnvænlega góður undir lok sýningarinnar“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Frammistaða Þuríðar Blævar staðfestir að hún er rísandi stjarna í íslensku leikhúsi. Hún spilar á allan tilfinningaskalann af mikilli hæfni.“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Lýsingin er í algjörum háklassa og á Björn B. Guðmundsson mikið hrós skilið.“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Fagurfræði Sunnevu Ásu Weisshappel er spennandi, djörf og kómísk allt í senn.“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Ilmur Stefánsdóttir sannar að hún er einn af okkar bestu leikmyndahönnuðum með þessari sýningu“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Nýting Ilmar Stefánsdóttur á stóra sviðinu er sjón sem skylda er að sjá“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Njála er algjört konfekt fyrir augað og leikhús sem enginn má missa af“ SJ – Fbl ★ ★ ★ ★

    „Það er margt sem fangar og gleður augu í þessu mikla sjónarspili“ ÞT – MBL ★ ★ ★ 1/2

    „Njálusýningin er mikið sjónarspil og öllu til tjaldað“ DK – Hugras.is

    „Þetta er hörkuverk – skemmtilegt og hressandi í myrkrinu.“ DK – Hugras.is

    „Sýningin er endurritun á Njálu fyrir ungmenni á öllum aldri, full af leikgleði, hugmyndaauðgi, ástríðu, (fífl)dirfsku.“ DK – Hugras.is

    „Þeir sem hafa kviðið því að Njála sé ekki með í sýningunni geta slappað af: þarna er mikil Njála.“ SA – tmm.is

    „í lokin (..) verður eitt magnþrungnasta atriði sem ég hef séð á íslensku sviði.“ SA – tmm.is

    „Þetta er leiksýning, rokkópera, myndlistarverk og danssýning, allt á einu kvöldi. Hvílík veisla fyrir augu, eyru og jafnvel nef.“ SA – tmm.is

    „Gæsahúðin fylgdi mér orðlausum og gapandi frá upphafi til enda sýningarinnar“ AV – DV ★ ★ ★ ★ 1/2

    „Höfundar Njálu eru fundnir“ AV – DV ★ ★ ★ ★ 1/2

    „Drepfyndið“ AV – DV ★ ★ ★ ★ 1/2

    „Brynhildur Guðjónsdóttir er fullkominn Njáll“ AV – DV ★ ★ ★ ★ 1/2

    „Stórsýning á alla kanta“ BÞ – Kastljós

    „Einstakur viðburður“ GSE – Kastljós

    „áhugavert, eftirminnilegt, skemmtilegt og athyglisvert“ GSE – Kastljós

    „Brynhildur er ógleymanleg sem Njáll“ GSE – Kastljós

    „Fersk og frumleg“ MK – Víðsjá

    „þessi sýning er afrek svo full er hún af hugmyndum, hrífandi lausnum, leik og danssigrum.“ MK – Víðsjá

    Aukasýningar

    sep 29, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    stertabenda-stor

    Bætt hefur verið við aukasýningum á Stertabendu.

    Stertabenda –u, ur kvk: busl og ærsl, fát, flækja, glundroði, ólestur, ósamlyndi, óskapnaður, ringulreið, reiðileysi, ruglingur, tvístringur, uppnám; getulaus hross farið í stertabendu
    Stertabenda var útskriftarsýning Grétu Kristínar Ómarsdóttur frá Sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands síðasta vor. Verkið hlaut fádæma góðar viðtökur og færri komust að en vildu. Nú er Stertabenda sett upp í Kúlunni í samstarfi við Þjóðleikhúsið og aðeins örfáar sýningar á dagskrá.

    Sýningar :
    1. okt kl. 17:00
    2. okt kl. 19:30

    MIÐASALA :
    https://tix.is/is/event/3236/stertabenda/ og í síma 551-1200

    Stertabenda er hárbeitt og meinfyndin rannsókn á starfi leikarans og eðli sviðsetningar; og um leið óvægin atlaga að hugmyndinni um íslenska þjóðarsál.
    Erum við ennþá best í heimi?

    Fjórir stjörnuleikarar Stertabendu keppast við að koma út á toppnum, sigra sýninguna og vinna hylli áhorfenda með öllum ráðum og gervum – enda má allt í ást og leikhúsi.

    Ath. Sýningin er ekki við hæfi ungra barna.

    ——

    Verkið heitir Perplex á frummálinu og var frumsýnt í Schaubühne árið 2010, í leikstjórn höfundarins, Marius von Mayenburg.

    Íslensk þýðing, leikgerð og leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir

    Leikarar: Bjarni Snæbjörnsson, María Heba (Maja) Þorkelsdóttir, Tinna Sverrisdóttir og Þorleifur Einarsson

    Tónlist: Hljómsveitin Eva

    Stertabenda

    sep 24, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    stertabenda-stor

    Stertabenda –u, ur kvk: busl og ærsl, fát, flækja, glundroði, ólestur, ósamlyndi, óskapnaður, ringulreið, reiðileysi, ruglingur, tvístringur, uppnám; getulaus hross farið í stertabendu
    Stertabenda var útskriftarsýning Grétu Kristínar Ómarsdóttur frá Sviðshöfundabraut Listaháskóla Íslands síðasta vor. Verkið hlaut fádæma góðar viðtökur og færri komust að en vildu. Nú er Stertabenda sett upp í Kúlunni í samstarfi við Þjóðleikhúsið og aðeins örfáar sýningar á dagskrá.

    Sýningar :
    23/9 kl 19:30
    24/9 kl. 17:00
    28/9 kl. 19:30

    MIÐASALA :
    https://tix.is/is/event/3236/stertabenda/ og í síma 551-1200

    Stertabenda er hárbeitt og meinfyndin rannsókn á starfi leikarans og eðli sviðsetningar; og um leið óvægin atlaga að hugmyndinni um íslenska þjóðarsál.
    Erum við ennþá best í heimi?

    Fjórir stjörnuleikarar Stertabendu keppast við að koma út á toppnum, sigra sýninguna og vinna hylli áhorfenda með öllum ráðum og gervum – enda má allt í ást og leikhúsi.

    Ath. Sýningin er ekki við hæfi ungra barna.

    ——

    Verkið heitir Perplex á frummálinu og var frumsýnt í Schaubühne árið 2010, í leikstjórn höfundarins, Marius von Mayenburg.

    Íslensk þýðing, leikgerð og leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir

    Leikarar: Bjarni Snæbjörnsson, María Heba (Maja) Þorkelsdóttir, Tinna Sverrisdóttir og Þorleifur Einarsson

    Tónlist: Hljómsveitin Eva

    Blái hnötturinn frumsýning

    sep 24, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    blaihnotturinn-stor

    Laugardaginn 24. september kl. 13:00 frumsýnir Borgarleikhúsið Bláa hnöttinn eftir Andra Snæ Magnason í nýrri leikgerð eftir Berg Þór Ingólfsson. Kristjana Stefánsdóttir semur nýja tónlist við verkið, Chantelle Carey er danshöfundur og 22 börn svífa um á stóra sviðinu.

    Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum.

    Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er mikilvægt og hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð og um leið er það viðvörun að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Síðast en ekki síst er það ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér og öðrum.

    Leikritið hefur farið sigurför um heiminn frá því það var frumsýnt árið 2001 og unnið til fjölda verðlauna. Þau Bergur Þór og Kristjana Stefánsdóttir taka Bláa hnöttinn í faðminn, semja söngtexta og tónlist og hafa fundið tuttugu og tvö hæfileikarík börn til að taka þátt í sýningunni.

    Aðstandendur Höfundur: Andri Snær Magnasson | leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson | Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir | Búningar: María Th. Ólafsdóttir | Lýsing: Þórður Orri Pétursson| Tónlist: Kristjana Stefánsdóttir |Hljóð: Garðar Borgþórsson |  Danshöfundur: Chantelle Carey | Leikgervi: Árdís Bjarnþórsdóttir |Myndband: Petr Hlousek |Leikarar: Björn Stefánsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Guðmundur Elías Knudsen, Andrea Birna Guðmundsdóttir, Andrea Lapas, Ágúst Örn Wigum, Baldvin Alan Thorarensen, Bjarni Kristbjörnsson, Björgvin Ingi Ólafsson, Emilía Bergsdóttir, Erlen Ísabella Einarsdóttir, Gabríel Máni Kristjánsson, Grettir Valsson, Gríma Valsdóttir, Guðríður Jóhannsdóttir, Gunnar Hrafn Kristjánsson, Hjörtur Viðar Sigurðarson, Hulda Fanný Pálsdóttir, Iðunn Ösp Hlynsdóttir, Pétur Steinn Atlason, Rut Rebekka Hjartardóttir, Sóley Agnarsdóttir, Steinunn Lárusdóttir, Sölvi Viggósson Dýrfjörð & Vera Stefánsdóttir.

    Snertu mig – ekki!

    sep 18, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    snertu-mig-ekki

    Nýtt íslenskt leikrit, Snertu mig – ekki! verður frumsýnt föstudaginn 16. september hjá Leikfélagi Kópavogs. Verkið er gamandrama sem fjallar um samband hjóna og vinkonu þeirra, eða eins og vinsælt hefur verið í íslenskum bíómyndum, vandamál miðaldra karlmanns.
    Snertu mig – ekki! er eftir Örn Alexandersson, en leikstjóri er Sigrún Tryggvadóttir. Örn og Sigrún hafa lengi starfað með Leikfélagi Kópavogs en félagið á 60 ára afmæli á þessu nýhafna leikári. Verkið tekur um klukkustund í flutningi og taka þrír leikarar þátt í sýningunni, þau Anna Margrét Pálsdóttir, Arnfinnur Daníelsson og Guðný Hrönn Sigmundsdóttir.
    Lýsing er í höndum Skúla Rúnars Hilmarssonar, Hörður Sigurðarson sér um hljóðvinnslu, Þorleifur Eggertsson um leikmynd og Sigrún Tryggvadóttir sá um búninga. Sérlegur altmuligmaður sýningarinnar  er Ásgeir Kristinsson.

    Sex sýningar eru fyrirhugaðar á verkinu og hægt er að panta miða á kopleik.is eða í síma 554 1985.

    Námskeið Ungleiks 2016

    sep 16, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    ungleikurcoverready
    PRUFUR FYRIR UNGLEIK 2016!

    Verkin sem verða sýnd á Ungleik 2016 eru eftirfarandi:

    Haglabyssu hjónaband – Ingunn Lára Kristjánsdóttir
    Hinn blóðugi máni – Reginn Tumi Kolbeinsson
    Leikrit #3 – Stefán Gunnlaugur Jónsson
    Stóri Björn og kakkalakkarnir – Matthías Tryggvi Haraldsson
    101 – Viktoría Rún Þorsteinsdóttir

    Námskeiðið/prufurnar eru á sunnudaginn, 18. september kl. 12:00 – 17:00 og kostar litlar 1500 kr.

    Þorvaldur Sigurbjörn, listrænn stjórnandi Ungleiks, mun sjá um að stýra námskeiðinu.

    Skráningar sendist á ungleikur@gmail.com, ath, takmarkað pláss! Takið fram fullt nafn og símanúmer.

    Ungleikur var sett á laggirnar árið 2012, við stofnun félagsins var leitast við að mæta þörfinni fyrir virku leikhúslífi meðal yngri kynslóðar, sem væri óháð menntaskólunum. Félagið gengur útfrá því að öll nálgun að verkunum sé í höndum yngri kynslóðarinnar svo megi endurspegla nýjungagirni og sköpunargáfu þeirra af einstakri hreinskilni.

    Verkefnið er styrkt af Reykjavíkurborg

    Blái hnötturinn

    sep 16, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    blaihnotturinn-stor

    Lengst úti í geimnum búa ótal börn sem fullorðnast ekki. Enginn skipar þeim fyrir verkum. Þau sofa þegar þau eru þreytt, borða þegar þau eru svöng og leika sér þegar þeim dettur í hug. Kvöld eitt birtist stjarna á himnum sem fellur til „jarðar“ með miklum látum.

    Í reyknum mótar fyrir skuggalegum verum og þá hefst hættulegt ævintýri sem leiðir börnin um dimma skóga, djúpa dali og loftin blá. Reynir þá á vináttu og ráðsnilld barnanna sem aldrei fyrr. Blái hnötturinn er mikilvægt og hugmyndaríkt ævintýri, þar sem brýnt er fyrir fólki að sýna réttlæti og mannúð og um leið er það viðvörun að hlaupa ekki eftir innantómu stuði. Síðast en ekki síst er það ábending um að varðveita æskuna í sjálfum sér og öðrum.

    Leikritið hefur farið sigurför um heiminn frá því það var frumsýnt árið 2001 og unnið til fjölda verðlauna. Þau Bergur Þór og Kristjana Stefánsdóttir taka Bláa hnöttinn í faðminn, semja söngtexta og tónlist og hafa fundið tuttugu og tvö hæfileikarík börn til að taka þátt í sýningunni.

    Maðurinn sem heitir Ove

    sep 16, 2016   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    madurinnsemheitirove-stor

    MAÐUR SEM HEITIR OVE

    eftir Fredrik Backman

    Bráðfyndinn og nístandi sænskur einleikur um sorg og gleði, einangrun og nánd. Frumsýning í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þann 17. september.

    Hinn 59 ára gamli Ove er reglufastur nákvæmnismaður sem að mati annarra íbúa úthverfisins er óþolandi smámunasamur og skapillur. En að mati hans sjálfs eiga hlutirnir einfaldlega að vera eins og þeir eiga að vera. Þegar ólétt kona að nafni Parvaneh flytur með fjölskyldu sína í götuna er eins og Ove byrji að missa tökin á öllu.

    Einleikurinn Maður sem heitir Ove er byggður á samnefndri skáldsögu sem notið hefur mikilla vinsælda.

    Umræður eftir 6. sýningu, 29. september.

    Síður:12»
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!