We Will Rock You

We Will Rock You er kraftmikill söngleikur sem fjallar um frelsi, sjálfsmynd, uppreisn og umbreytandi mátt tónlistar. Verkið er byggt á lögum bresku rokkhljómsveitarinnar Queen og var frumsýnt í London árið 2002. Handritið er eftir Ben Elton og var unnið í samstarfi við Brian May og Roger Taylor úr Queen. Söngleikurinn er ekki ævisaga sveitarinnar heldur framsækin og húmorísk vísindaskáldsaga þar sem tónlist Queen myndar grunninn að nýrri og sjálfstæðri sögu.
Sagan gerist í fjarlægri framtíð á jörðinni sem hefur fengið nafnið iPLANET. Samfélagið er orðið einsleitt og stjórnað af stórfyrirtækinu Globalsoft, sem ræður öllu undir forystu hinnar valdamiklu Killer Queen. Í þessum heimi hefur tónlist, hljóðfæraleikur, sköpun og sjálfstæð hugsun verið bönnuð. Það eina sem má heyrast er yfirborðskennt popp sem Globalsoft framleiðir sjálft.






Undir niðri kraumar þó andspyrna. Ungi maðurinn Galíleó Fígaró á erfitt með að aðlagast þessari vélrænu veröld. Hann heyrir tónlist úr fortíðinni sem enginn annar virðist skynja og í draumum hans birtast brot úr gömlum laglínum og textum sem hann óvart slettir inn í samtöl sín. Á leið sinni hittir hann Scaramouche, stúlku sem líkt og hann stendur utan við kerfið. Saman ganga þau til liðs við Bóhemana – hóp sem heldur í vonina um gamla menningu, tónlist og frelsi. Þau leggja af stað í ferðalag til að finna týnt hljóðfæri og frelsa heiminn úr greipum Killer Queen og veldis Globalsoft.
Leikstjóri: Kristín Lea Sigríðardóttir
Danshöfundur: Helga Ásta Ólafsdóttir
Tónlistarstjóri: Sigurður Smári Hansson
Athugið: Í sýningunni er notast við strobe-lýsingu sem getur haft áhrif á viðkvæma áhorfendur.




