Þrek og tár

Söngleikurinn Þrek og tár, eitt vinsælasta verk Ólafs Hauks Símonarsonar, verður settur á svið hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjórn er í höndum Maríu Pálsdóttur og Pétur Ingólfsson sér um tónlistarstjórn.
Verkið segir frá lífi söngelskra kaupmannafjölskyldu í Vesturbænum á sjöunda áratug síðustu aldar. Áhorfendur kynnast þremur kynslóðum fjölskyldunnar, en saga sonarins Davíðs liggur sem rauður þráður í gegnum sýninguna. Inn í frásögnina fléttast mörg þekkt lög frá þessum tíma, meðal annars titillagið Þrek og tár, Í rökkurró og fleiri perlur. Þótt tónlistin sé heillandi er lífið ekki alltaf dans á rósum og takast persónurnar á við ýmis siðferðileg álitamál.
Frumsýnt verður föstudaginn 13. febrúar klukkan 20 í Félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal. Fyrir sýningu og í hléi verður notaleg kaffihúsastemning að hætti Kvenfélags Reykdæla, eins og jafnan áður.
Miðasala fer fram í gegnum s. 618-0847 og umfefling@gmail.com
Næstu sýningar eru:
Frumsýning 13. febrúar kl. 20 – Uppselt
2. sýning 15. febrúar kl. 16
3. sýning 17. febrúar kl. 20
4. sýning 24. febrúar kl. 20
5. sýning 27. febrúar kl. 20
6. sýning 1. mars kl. 16
7. sýning 6. mars kl. 20
8. sýning 7. mars kl. 16




