Skilaboðaskjóðan | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Skilaboðaskjóðan

    Sýningar á Skilaboðaskjóðunni hefjast 27. febrúar hjá Leikfélagi Selfoss.

    Leikfélag Selfoss sýnir Skilaboðaskjóðuna eftir Þorvald Þorsteinsson í leikstjórn Gunnars Inga Gunnsteinssonar. Frumsýnt verður 27. febrúar og verða sýningar um helgar í mars og apríl í Litla leikhúsinu við Sigtún.

    Í Skilaboðaskjóðunni segir frá Putta og Möddumömmu sem búa í Ævintýraskóginum, þar sem öll ævintýrin gerast og dvergarnir sinna mikilvægum störfum. Þegar Nátttröllið rænir Putta til að breyta honum í tröllastrák, sameinast allir íbúar skógarins um að bjarga honum áður en sólin sest á bakvið sólarlagsfjall. En nornin, úlfurinn og stjúpan vilja ekki vera með og þá eru góð ráð dýr.

    Skilaboðaskjóðan er ævintýrasöngleikur byggður á samnefndri bók Þorvaldar sem kom út árið 1986 og naut mikilla vinsælda. Söngleikurinn var frumsýndur á stóra sviði Þjóðleikhússins í nóvember árið 1993 í leikstjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur og sló í gegn. Jóhann G. Jóhannsson, tónlistarstjóri Þjóðleikhússins, samdi tónlist fyrir verkið við texta Þorvaldar og vorið 1994 kom út geisladiskur með tónlistinni í flutningi leikara og hljómsveitar leikhússins.

    Skilaboðaskjóðan er ævintýri fyrir börn á öllum aldri (5-103 ára) og við hlökkum til að sjá ykkur öll í Litla leikhúsinu við Sigtún.

    Sýningin er 2 tímar með hléi.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!