Njála í beinni á RÚV | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Njála í beinni á RÚV

    njala-stor-logo

    Bein útsending á RÚV frá einstakri uppsetningu Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins á Brennu-Njálssögu. Ein ástsælasta Íslendingasagan er hér færð í nýjan búning og hetjur sögunnar lifna við á sviðinu í magnþrungnu sjónarspili. Uppsetningin hlaut tíu Grímuverðlaun árið 2016. Handrit: Mikael Torfason og Þorleifur Örn Arnarsson. Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarsson. Upptökustjóri: Helgi Jóhannesson.

    Um Njálu:

    Njála er nýtt íslenskt leikverk sem byggir á Brennu-Njálssögu, einni ástsælustu sögu okkar Íslendinga. Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú.  Hún segir frá því hvernig við urðum að þjóð, og hetjur bókarinnar, þau Gunnar, Skarphéðinn, Njáll, Hallgerður og Bergþóra eru sveipuð goðsagnakenndum ljóma og hafa mótað og markað þjóðarsálina allt til þessa dags. Leikhópurinn og Íslenski dansflokkurinn, undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar, munu tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að takast á við þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem verður í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður!

    Njála er samstarfsverkefni Íslenska dansflokksins og Borgarleikhússins.

    Mikael Torfason er blaðamaður og rithöfundur og vakti fyrst athygli með skáldsögunni Falskur fugl sem kom út árið 1997, síðan hefur hann sent frá sér fjórar skáldsögur og leikritið Harmsögu. Þorleifur Örn Arnarson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri hérlendis og erlendis og hefur unnið m.a. unnið leikgerðirnar að Englum alheimsins og Sjálfstæðu fólki.

    Erna Ómarsdóttir er vafalaust einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd á hinum ýmsu dans- og listahátíðum víða um heim. Hún hefur unnið með nokkrum af fremstu dans- og sviðslistahópum Evrópu og listamönnum á borð við Jan Fabre, Sidi Larbi Cherkaoui, Björk, Jóhanni Jóhannsson og Gabríelu Friðriksdóttur. Erna hefur víða vakið athygli fyrir sinn einstaka stíl og hlotið mikið lof fyrir verk sín, núna síðast fyrir verkið Black Marrow sem hún samdi ásamt Damien Jalet, en það verk var einmitt tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2015 sem Sýning ársins.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!