Njála frumsýnd | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Njála frumsýnd

    njála stór logoNjála er nýtt íslenskt leikverk sem byggir á Brennu-Njálssögu, einni ástsælustu sögu okkar Íslendinga. Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjöhundruð ár, lesin í öllum menntaskólum landsins og sjaldan verið vinsælli en einmitt nú.  Leikhópurinn og Íslenski dansflokkurinn, undir stjórn Þorleifs Arnar Arnarssonar, munu tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða töfra leikhússins til að takast á við þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem verður í senn forvitnileg, ögrandi og litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir, hefndir og völd en umfram allt Njála eins og þú hefur aldrei séð hana áður!

    Sýningin er samstarfsverkefni Borgarleikhússins og Íslenska dansflokksins.

    Njáluhátíð hefst í forsal Borgarleikhússins fyrir hverja sýningu kl 18:00 með ýmsum uppákomum.  Þar verður hægt að fá lánaða búninga, kaupa kjötsúpu, sjá beina útsendingu frá leikurum í hár og förðun og fylgjast með undirbúningi á Stóra sviðinu.  Jafnframt verður boðið upp á fyrirlestur um Njálu kl 19:00.

    Þorleifur Örn Arnarson hefur getið sér gott orð sem leikstjóri hérlendis og erlendis og hefur unnið m.a. unnið leikgerðirnar að Englum alheimsins og Sjálfstæðu fólki. Einnig hefur hann vakið mikla athygli fyrir umdeildar sýningar sínar erlendis.

    Erna Ómarsdóttir ervafalaust einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga og hafa verk hennar verið sýnd á hinum ýmsu dans- og listahátíðum víða um heim. Erna hefur víða vakið athygli fyrir sinn einstaka stíl og hlotið mikið lof fyrir verk sín, núna síðast fyrir verkið Black Marrow sem hún samdi ásamt Damien Jalet, en það verk var einmitt tilnefnt til Grímuverðlaunanna 2015 sem Sýning ársins.

    Aðstandendur Höfundar: Mikael Torfason & Þorleifur Örn Arnarsson| Leikstjóri: Þorleifur Örn Arnarsson | Danshöfundur: Erna Ómarsdóttir |Tónlist: Árni Heiðar Karlsson & Valdimar Jóhannsson | Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir| Búningar: Sunneva Ása Weisshappel | lýsing:Björn Bergsteinn Guðmundsson | Hljóð: Baldvin Magnússon | Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir | Hljóðmynd: Valdimar Jóhannsson og Baldvin Magnússon | Leikarar: Aðalheiður Halldórsdóttir, Björn Stefánsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, Hjörtur Jóhann Jónsson, Jóhann Sigurðarson, Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, Sigrún Edda Björnsdóttir, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Vala Kristín Eiríksdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir

     



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!