Næstu tvær vikur í Borgarleikhúsinu | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Næstu tvær vikur í Borgarleikhúsinu

    Í kjölfar þess að samkomubann hefur verið hert hefur Borgarleikhúsið sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu.

    Kæru áhorfendur og aðrir velunnarar Borgarleikhússins, 

    Í ljósi nýjustu frétta og samkvæmt tilmælum frá yfirvöldum hefur Borgarleikhúsið ákveðið að fresta öllum sýningum og viðburðum næstu tvær vikurnar. Þetta á bæði við um þau verk sem þegar eru í sýningum sem og þau sem til stóð að frumsýna á tímabilinu. 

    Við viljum ítreka að allir miðar eru tryggðir og enginn gestur missir sinn miða. Hér er aðeins um að ræða tímabundna frestun í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu. Upplýsingar um nýja sýningartíma verða sendar út til allra miðahafa eins fljótt og auðið er. 

    Við erum öll almannavarnir og Borgarleikhúsið leggur sitt af mörkum í þeirri von að við getum hist aftur í leikhúsinu sem allra fyrst. Við hlökkum til að sjá ykkur. 

    Með kærri kveðju og þökk fyrir skilninginn, 
    Borgarleikhúsið



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!