Leikfélag Selfoss – Vertu svona kona | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Leikfélag Selfoss – Vertu svona kona

    Vertu svona kona

    Vertu svona kona

    Leikfélag Selfoss æfir nú af fullum krafti leikritið Vertu svona kona í leikstjórn Guðfinnu Gunnarsdóttur. Í verkinu er viðfangsefnið konan í sögunni og sagan í konunni. Leikritið er sameiginleg sköpun hópsins og leikstjórans þar sem inn í fléttast textar eftir Margaret Atwood. Öll tónlist og hljóðmynd er í höndum Kristjönu Stefánsdóttur. Stefnt er að frumsýningu 3. nóvember og sýningar verða 8 talsins.

    Alls taka 12 leikarar þátt í sýningunni ásamt frábæru tækniteymi. Fyrir um það bil þremur vikum síðan kom hópurinn saman, deildi reynslusögum, lygasögum, ástarsögum og gamansögum. Það hefur svo verið í höndum Guðfinnu leikstjóra og Jónheiðar aðstoðarleikstjóra að smella saman handriti. Sýningin er því einlæg, persónuleg, falleg, ljót, fyndin og skemmtileg. Áhorfendur eiga eftir að flakka allan tilfinningaskalann og hafa gaman af.

    Leikfélag Selfoss hvetur alla til að fylgjast með á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #vertusvonakona og minnir einnig á snapchat aðganginn „leik-selfoss“.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!