Kosmískt skítamix

Hljómsveitin Eva var einu sinni up and coming framúrstefnu hljómsveit og sviðslistahópur en þarf nú að horfast í augu við raunveruleikann; andleg veikindi, dauðann, adhd greiningar, snemmbúið breytingaskeið og þá staðreynd að þær hafa ekki samið nýtt lag í fimm ár. Nú bretta þær upp ermarnar og segja fólkinu frá því sem á daga þeirra hefur drifið í þessum grátbroslega en kosmíska tónleik ennþá með þá von í hjartanu að veita áhorfendum varanlegt kaþarsis og jafnvel splunku nýju lagi. Verkið Kosmískt skítamix sem frumsýnt verður í Tjarnarbíó 17. október er ferðasaga vinkvenna og vinnufélaga í gegnum örmögnun og þá ómögulegu vinnu að skapa listaverk sem bjargar heiminum.
Þær Sigríður og Vala eru bráðskemmtilegir viðmælendur sem hafa frá mörgu að segja.
Aðstandendur:
Höfundar og flytjendur: Sigríður Eir Zophoníasardóttir og Vala Höskuldsdóttir, Dramaturg: Egill Andrason, Leikmynd og búningar: Rebekka Ingimundardóttir, Ljósahönnun: Hafliði Emil Barðason, Hljóðblöndun og tækni: Brett Smith, Ljósmyndun og videogerð: Björgvin Sigurðarson, Grafísk hönnun: Rakel Tómasdóttir, Framleiðsla: Hljómsveitin Eva í samstarfi við MurMur productions/Davíð Freyr Þórunnarson
Sýningin er styrkt af Sviðslistasjóði og Listamannalaunum




