Jólaævintýri Þorra og Þuru | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Jólaævintýri Þorra og Þuru

    Börnin fá sinn skammt af leiklist fyrir þessi jól. Leikhópurinn Miðnætti sýnir Jólaævintýri Þorra og Þuru í Tjarnarbíói.

    Þorri og Þura eru að undirbúa jólin. Þegar afi Þorra þarf að bregða sér frá biður hann þau að passa jólakristalinn sem er uppspretta allrar jólagleði í öllum heiminum. En það gengur alls ekki nógu vel hjá þeim, því þau slökkva óvart á honum. Þorri og Þura leggja af stað í ævintýraferð til að finna leið til að kveikja aftur á kristalnum og finna jólagleðina í hjartanu. Þau lenda í ýmsum hremmingum, en allt fer þó vel að lokum. Þetta er hugljúf saga sem minnir okkur á að lítil góðverk geta haft mikil áhrif og kærleikurinn er sterkasta aflið í heiminum.

    Álfarnir Þorri og Þura hafa heimsótt þúsundir leikskólabarna með farandssýningum sínum síðan árið 2008, komið fram á ýmsum hátíðum og slógu í gegn með jólaþáttunum Týndu jólin sem sýndir voru á RÚV síðustu jól. Þorri og Þura eru bestu vinir og miklir fjörkálfar, en sýningar þeirra einkennast af gleði, vináttu og dillandi skemmtilegri tónlist.

    Handrit: Agnes Wild og Sigrún Harðardóttir 
    Leikstjórn: Sara Martí Guðmundsdóttir
    Leikmynd og búningar: Eva Björg Harðardóttir 
    Ljós: Hafliði Emil Barðason 
    Dans og sviðshreyfingar: Elísabet Skagfjörð
    Leikarar: Agnes Wild, Sigrún Harðardóttir og Sveinn Óskar Ásbjörnsson



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!