Bót og betrun

Leikfélag Kópavogs sýnir Bót og betrun sem er grenjandi farsi og segir frá bótasvindlaranum Eric Swan. Eric grípur til þess ráðs að svíkja bætur út úr félagslega kerfinu þegar hann missir vinnuna. Svindlið fer hins vegar úr böndunum og Eric kemst að því að það er stundum einfaldara að komast á bætur en af, þegar boltinn er einu sinni farinn að rúlla. Að endingu er hann rígfastur í eigin lygavef, fulltrúar Félagsmálastofnunar sækja að honum úr öllum áttum og eiginkonan er full grunsemda. Til að höggva á hnútinn þarf Eric að losa sig við upplogna bótaþega sína en vandinn vex bara með hverri viðleitni hans til að snúa við blaðinu.