Blæði : obsidian pieces | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Blæði : obsidian pieces

    blæði stórÍslenski dansflokkurinn og Listahátíð í Reykjavík sameinast í stórverkefni. BLÆÐI er einstakt danskvöld þar sem sýnd verða verk eftir þrjá heimsþekkta danshöfunda.

    Danshöfunarnir þrír eru þessir:

    Damien Jalet hefur t.a.m. samið verk fyrir Parísar Óperuna, Skoska Dansleikhúsið, Louvre safnið í París og Íslenska dansflokkinn við mjög góðan orðstír og unnið með stórstjörnum úr listaheiminum á borð við Marinu Abramovic, Bernhard Willem og Christian Fennesz. 

    Erna Ómarsdóttir er einn virtasti dansari og danshöfundur Íslendinga. Hún hefur unnið með nokkrum fremstu dans- og sviðlistahópum Evrópu og starfar núna sem listrænn ráðgjafi Íslenska dansflokksins. 

    Sidi Larbi Cherkaoui er einn sá allra eftirsóttasti danshöfundur heims í dag og hefur meðal annars samið fyrir Parísar Óperuna, Cedar Lake í New York og Konunglega danska ballettinn. Hann tók nýverið við starfi listræns stjórnanda Flæmska Konunglega Ballettsins. 

    Verkin eru þessi:

    Black Marrow eftir Damien Jalet og Ernu Ómarsdóttur við frumsamda tónlist Ben Frost.

    Í Black Marrow birtist tær máttur líkamans sem reynir að lifa af í kæfandi heimi þar sem eðlishvötin hefur verið iðnvædd. Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move, einn helsta nútímadansflokk Ástralíu, og sýnt á Alþjóðlegri Listahátíð Melbourne árið 2009. Verkið birtist hér í nýrri mynd, sérstaklega útfært fyrir og með Íslenska dansflokknum. 

    Les Médusées eftir Damien Jalet.
    Ásækið kventríó, upphaflega samið fyrir Louvre listasafnið í París, sem sækir innblástur sinn í hið töfrandi eðli gyðjustyttnanna í Marly garði safnsins.

    Tvö brot úr hinu geisivinsæla verki Babel(words) eftir Damien Jalet og Sidi Larbi Cherkaoui.

    Sin er nautnafullur og kraftmikill dúett sem sækir innblástur sinn í goðsagnirnar um hið upprunalega par og þeirra sameinuðu og sundruðu krafta. 

    The Evocation er nútíma túlkun á Zikr, athöfn innan súfisma, þar sem endurtekning á einu orði er notað til að varpa burt álögum. 

     



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!