Augasteinn | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Augasteinn

    Ævintýrið um Augastein var upphaflega samið á ensku og frumsýnt í Drill Hall leikhúsinu í London 2002, en ári síðar var verkið frumflutt í íslenskri útgáfu í Tjarnarbíói. Þá kom ævintýrið einnig út á bók, sem notið hefur mikilla vinsælda æ síðan.

    Verkið byggir á sögunum um sveinstaulana þrettán, syni Grýlu og Leppalúða, sem áttu það til að hrella fólk um jólaleytið. En í ævintýri leikhópsins er það drengurinn Augasteinn sem allt snýst um. Hann lendir fyrir tilviljun í höndum jólasveinanna hrekkjóttu, sem vilja ólmir taka hann að sér, en þegar Grýla kemst á snoðir um tilvist hans æsist leikurinn.

    Ná jólasveinarnir að bjarga Augasteini úr klóm Grýlu og jólakattarins áður en jólin ganga í garð?

    Felix Bergsson skrifaði Ævintýrið um Augastein í samstarfi við Kolbrúnu Halldórsdóttur leikstjóra og Helgu Arnalds brúðulistamann. Fyrstu 10 árin lék Felix hlutverk Steins gamla sölumanns minninga og minjagripa en fyrir tveimur árum tók Orri Huginn Ágústsson við hlutverkinu. Í þetta sinn munu þeir Felix og Orri Huginn skipta með sér sýningunum.

    Brúður og leikmynd eru eftir Helgu Arnalds, lýsingu hannaði Jóhann Bjarni Pálmason og tónlistina útsetti Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson fyrir Háskólakórinn undir stjórn Hákons Leifssonar. Hljóðmynd verksins er unnin af Sveini Kjartanssyni. Leikstjóri er Kolbrún Halldórsdóttir.

    Sýningardagar 6., 7. og 14. desember.
     



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!