Improvision í Salnum 14. maí

Improv Ísland hefur kitlað hláturtaugar Íslendinga í Þjóðleikhúskjallaranum í 10 ár og fjöldi gesta kemur aftur og aftur, enda eru engar tvær sýningar eins. Það má óhikað halda því fram að sýningar Improv séu langlífasta sviðsverk leikhússögunnar með yfir 300 sýningar
Spunaformið er fjölbreytt og fyrir 5 árum byrjuðum við með Improvision í anda söngvakeppninnar með spunaformið að leiðarljósi. Spunaleikararnir vita ekkert hvað þau eru að fara að syngja og hljómsveitin veit ekkert hvað hún er að fara að spila. Improvision eðlilega sló í gegn og hefur verið hápunktur leikársins hjá Improv Ísland síðan. Í ár fögnum við Improvision með sérstakri Hátíðarsýningu í Salnum Kópavogi 14. maí. Kynnir verður engin önnur en Ragnhildur Steinunn og henni til fulltyngis okkar eigin Máni Arnarson og þulur verður okkar allra Gísli Marteinn – já hann verður með lifandi lýsingu á því sem fram fer í Salnum.




