Gæðablóð

Rappari úr Vesturbænum, fyrrum knattspyrnumaður úr Garðabænum og tónlistarmaður úr miðbænum sameina krafta sína í skemmtilegri og hispurslausri sýningu þar sem þeir segja sögur úr eigin lífi.
Á undanförnum árum hefur leikhúslistafólk með fjölbreyttan bakgrunn miðlað sögum sínum með áhrifamiklum hætti í Þjóðleikhúsinu og veitt okkur öllum nýja innsýn inn í hinn margbreytilega veruleika okkar. Má þar nefna sýningar á borð við Góðan daginn faggi, Á rauðu ljósi og Taktu flugið beibí.
„Mig langar að túristar sjái mig og spyrji: Where is Hallgrímskirkja?“
Nú er er komið að þeim Davíð Þór, Jónmundi og Unnsteini að helga sér Stóra sviðið! Þessir þrír listamenn eiga það sameiginlegt að vera rammíslenskir en geta hver um sig rakið uppruna sinn til tveggja heimsálfa. Í þessari einlægu sýningu deila þeir reynslu sinni og sviðsetja sprenghlægileg og grafalvarleg atvik úr eigin lífi sem afhjúpa samfélagið á óvæntan hátt.




