Beint í æð | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Beint í æð

    Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir.

    Litli leikklúbburinn sýnir farsann Beint í æð eftir Ray Cooney, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, í Edinborgarhúsinu á Ísafirði um helgina.
    Beint í æð er klassískur farsi eins og þeir gerast bestir: Leyndarmál, misskilningur á misskilning ofan og allt á suðupunkti. Alls koma um 30 manns að uppsetningunni og þar af eru 10 leikarar.

    Jón Borgar Eskildsen,   stendur á barmi stærsta tækifæris starfsferilsins: Hann á að flytja Hippókratesarfyrirlesturinn og sjálf yfirlæknisstaða Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða er undir. Í salnum eru allir sem máli skipta, ráðherrar, taugalæknar og fjáðir frumkvöðlar, auk eiginkonunnar auðvitað. En augnabliki áður en Jón Borgar á að stíga á svið dúkkar upp gömul vinkona sem hann hefur ekki séð síðan þau tóku „dálítið skrens“ bakvið svæfingavélina hér um árið og flytur honum óvæntar fréttir sem setja öll hans framtíðarplön í uppnám.

    Hér er allt á suðupunkti – misskilningur, leyndarmál og ótrúlegar aðstæður sem fara hratt úr böndunum. Hraðinn er mikill, flækjurnar margar og hláturinn aldrei langt undan. Klassískur Cooney-farsi eins og hann gerist bestur! 

    Leikstjóri er Birgitta Birgisdóttir, en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikstýrir hjá LL. Birgitta hefur þó áður leikstýrt á Ísafirði, hjá Leikfélagi Menntaskólans á Ísafirði, svo hún er öllum hnútum kunnug í Edinborgarhúsinu.

    Sýningar
    Sunnudagur 8. febrúar kl. 20:00
    Miðvikudagur 11. febrúar kl. 20:00
    Föstudagur 13. febrúar kl. 20:00
    Sunnudagur 15. febrúar kl. 20:00
    Fimmtudagur 19. febrúar kl. 20:00



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!