Með kjafti og klóm!

Leikfélag Flateyrar kynnir nýtt og spennandi íslenskt leikrit eftir tvítuga Flateyringinn Ölmu Sóleyju Önnudóttur Wolf.
Sagan gerist á afskekktum bóndabæ á Íslandi undir lok 18. aldar. Þegar ókunnug hjón koma óvænt á bæinn fer af stað atburðarás sem enginn sér fyrir endann á. Leyndarmál, spenna og óútskýrðir atburðir fléttast saman í áhrifamikilli sýningu sem heldur áhorfendum á tánum.




