Nifl­unga­hring­ur­inn – all­ur | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Nifl­unga­hring­ur­inn – all­ur

    Hundur í óskilum heldur áfram för sinni um stórvirki listasögunnar.

    Stórvirki listasögunnar dregin saman í tveggja tíma hláturskast!

    Enn og aftur eru þeir mættir í Borgarleikhúsið. Hundur í óskilum ríður aldrei vafurlogann þar sem hann er lægstur. Síðast fór hann flikkflakk og heljarstökk í öllum herklæðum í gegnum Njálu á hundavaði. Nú tekst hann á hendur að færa Íslendingum í fyrsta sinn allan Niflungahring Richards Wagners – eins og hann leggur sig.

    Þetta epíska stórvirki sem tónskáldið samdi upp úr íslenskum fornaldarsögum eru fjórar óperur: Rínargullið, Valkyrjan, Sigurður Fáfnisbani og Ragnarök og tekur að jafnaði jafn mörg kvöld í flutningi. En Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson ásamt Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur geisast með himinskautum í gegnum allt verkið á einni kvöldstund og má með sanni fagna því að loksins, loksins sé Niflungahringurinn allur kominn heim – á sjálfa sögueyjuna.

    Leikstjóri er Ágústa Skúladóttir en um leikmynd og búninga sér Þórunn María Jónsdóttir.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!