Natan í Borgarleikhúsinu | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Natan í Borgarleikhúsinu

    Natan 1

    Fimmtudaginn 26. október var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins leikritið Natan sem er unnið í samstarfi við leikhópinn Aldrei óstelandi. Í verkinu er fjallað um morðið á Natani Ketilssyni og Pétri Jónsyni á Illugastöðum í Húnavatnssýslu í mars árið 1828. Málið er eitt þekktasta og umtalaðasta sakamál  Íslandssögunnar og leiddi til síðustu aftökunnar hér á landi.

    Þau Agnes Magnúsdóttir vinnukona og Friðrik Sigurðsson bóndasonur voru hálshöggvin á Þrístöpum 12. janúar 1830, en bústýran Sigríður Guðmundsdóttir var send til fangelsisvistar í Kaupmannahöfn fyrir aðild sína að málinu og lést þar. Atburðir þessir tóku snemma á sig goðsagnakenndan blæ og sögusagnir fóru á kreik um ástir og afbrýði þeirra sem hlut áttu að máli og hefur saga þeirra verið endalaus uppspretta skáldsagna, leikrita, kvikmynda og fræðigreina.

    Leikhópurinn Aldrei óstelandi leggur hér út í rannsókn á tildrögum morðsins og leitar meðal annars fanga í dómsskjölum og þeim fjölmörgu fræðigreinum, bókum, kvikmyndum og sjónvarpsefni sem komið hafa út um þetta efni. Hvað varð til þess að þessar venjulegu manneskjur frömdu svo hryllilegan glæp? Er nokkurn tíma hægt að komast að sannleikanum í svo gömlu sakamáli?

    Marta Nordal leikstýrir verkinu og Salka Guðmundsdóttir aðstoðaði við skrif á handriti. Axel Hallkell Jóhannesson sér um leikmynd, Helga I. Stefánsdóttir sér um búninga, Kippi Kanínus um tónlist og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir er aðstoðarleikstjóri.

    Leikarar í verkinu eru þau Birna Rún Eiríksdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson og Stefán Hallur Stefánsson.

     



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!