Vincent hefur fengið nóg af áreiti hversdagsins og lætur leggja sig inn á sjúkrahús í von um langþráðan frið. Friðurinn er þó víðs fjarri þar sem læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir sjúklingar, hver öðrum sérstakari, vaða inn og út úr sjúkrastofunni. Erillinn í lífi Vincents er meiri en nokkru sinni fyrr. Í sýningu Borgarleikhússins er áhorfendum boðið á tökustað þar sem verið er að taka upp þætti um Vincent og upptökunum er varpað á stóra skjái. Þar má sjá hvernig brögðum og brellum er beitt þegar sviðsmyndinni/ sjúkrastofunni, er snúið á alla kanta til að framkalla trylltar hugmyndir leikstjórans. Á sama tíma fara undarlegir hlutir að gerast á tökustað, hugmyndir fá vængi og fara á stjórnlaust flug.
Áhorfendur dragast hægt og rólega inn í sjálfa atburðarásina. Við lofum ótrúlegri leikhúsupplifun — þetta hafið þið aldrei séð áður. ROOM 4.1 LIVE var tilnefnt til Reumert-verðlaunanna, sviðslistaverðlauna Danmerkur. Árið 2012 sýndi Borgarleikhúsið stjörnusýningu Kristjáns, BLAM!, við miklar vinsældir. BLAM! var heiðruð með Reumert-verðlaununum árið 2012 og Grímunni árið 2013.
Ó María er kvöldskemmtun í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ til heiðurs Maríu Guðmundsdóttur þar sem lifandi tónlist, söngur, grín og gleði ráða för. Leiknir eru nokkrir af ógleymanlegu leikþáttum Maríu og skemmtileg kaffihúsastemming ríkir í salnum þar sem leikhúsgestir sitja til borðs á sviðinu. Þetta er frábær skemmtun í anda okkar yndislegu Maríu sem hentar öllum sem vilja hlæja, hlusta á ljúfa tóna og eiga góða kvöldstund.
Frumsýning föstudaginn 29. apríl kl. 20 – UPPSELT 2. sýning laugardaginn 30. apríl kl. 20 3. sýning föstudaginn 6. maí kl. 20 4. sýning laugardaginn 7. maí kl. 20 5. sýning föstudaginn 13. maí kl. 20
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir Nei ráðherra 24. apríl
Leikfélag Sauðárkróks frumsýnir sunnudaginn 24. apríl klukkan 20:00 leikritið Nei ráðherra eftir Ray Cooney í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Jóel Sæmundsson.
Alls koma 35 manns að sýningunni þar af eru 10 á sviði. leikarahópurinn er blandaður af bæði reynsluboltum og þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu.
Myndirnar eru teknar á æfingu. Ljósmyndari er Gunnhildur Gísladóttir.
Nei ráðherra er allt í senn sigildur, hraður, snúinn og fyndinn gamanleikur en samt fullur að misskilningi, framhjáhöldum, ást og hurðaskellum.
Æfingatímabilið hefur gengið vel og það er ótrúlegt þakklæti að ekki séu ýmis boð og bönn í gildi eins og var þegar Covid var.
Sýningar verðar 13 talsins og miðasala er hafin í síma 8499434.
Hvetjum alla til að byrja sumarið á því að mæta í leikhús og hlægja svolítið saman.
Leikfélag Hólmavíkur frumsýnir Bót og betrun á páskadag
Leikfélag Hólmavíkur setur upp farsann Bót og betrun eftir Michael Cooney, í leikstjórn Sigurðar Líndals. Frumsýnt verður á páskadag kl. 20:00 og eru allar sýningar í Sævangi.
Verkið gerist í London og fjallar um Eric Swan, sem hefur verið duglegur að svíkja út bætur síðustu tvö árin. Hann ætlar sér þó að minnka svindlið, en þá vindur það upp á sig með sífellt skrautlegri afleiðingum. Inn í málið flækjast meðal annars leigjandinn hans, sambandsráðgjafi og útfararstjóri, ásamt ýmsum öðrum.
Þeir tíu leikarar sem leika eru allt frá því að vera nýliðar á fjölunum, yfir í gamlar kempur innan leikfélagsins. Æfingar hófust í lok janúar og hafa gengið merkilega vel þrátt fyrir ótal plágur og flensur sem leggjast á landann þessi misserin!
Eitt af helstu einkennum Leikfélags Hólmavíkur hafa verið leikferðir út um hvippinn og hvappinn. Því miður er ekki víst hvort hægt verði að komast í slíka í ár, og því við hvetjum alla til að mæta í Sævang og upplifa alvöru skemmtun á Ströndum!
Hægt er að kaupa súpu á Sauðfjársetrinu fyrir sýningar Miða- og súpupantanir í síma: 693 3474 (Ester) ókeypis aðgangur fyrir þá sem ekki tala eða skilja mikla íslensku.
Aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn laugardaginn 30. apríl 2022
Boðað
er til aðalfundar Bandalags íslenskra leikfélaga laugardaginn 30. apríl 2022.
Fundurinn verður haldinn á Park Inn hótelinu, Hafnargötu 57 í Reykjanesbæ. Á
dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn hefst kl. 9.30.
Félög sem hyggjast senda fulltrúa þurfa að fylla út kjörbréfsform á vefnum. Nauðsynlegt er að vera innskráð á aðgangi viðkomandi leikfélags.
Þetta er fyrsti fundurinn síðan árið 2019 sem ekki verður markaður
af samkomutakmörkunum. Það er sannarlega kominn tími til að treysta
félagsböndin og stilla saman strengi nú þegar við virðumst loks komin úr
kófgöngunum út í ljósið. Í tilefni þess hefst þingið á óformlegri málstofu
föstudagskvöldið 29. apríl undir yfirskriftinni Áhugaleiklistin eftir Covid. Í
ráði er að ræða almennt stöðu áhugaleiklistarinnar, almenn og sértæk vandamál
sem að félögunum steðja og velt upp möguleikum og lausnum.
Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar 14. maí og nú er tíminn til að ræða og
ýta við fulltrúum í sveitarstjórnum vegna hagsmuna félaganna.
Í boði eru eftirfarandi pakkar fyrir BÍL-þingið:
Pakki 1: 39.750 kr.
Gisting á Park Inn í 2 nætur (m.v. gistingu í 2ja manna herbergi) + morgunverður
Fundarveitingar, kaffi og hádegisverður meðan á fundi stendur á laugardag
Hátíðarkvöldverður laugardag
Pakki 2: 28.500 kr.
Gisting á Park Inn í 1 nótt (m.v. gistingu í 2ja manna herbergi) + morgunverður
Fundarveitingar, kaffi og hádegisverður meðan á fundi stendur á laugardag
Hátíðarkvöldverður laugardag
Pakki 3: 14.000 kr.
Fundarveitingar, kaffi og hádegisverður meðan á fundi stendur
Hátíðarkvöldverður laugardag
Pakki 4: 8.500 kr.
Fundarveitingar, kaffi og hádegisverður meðan á fundi stendur
Vonir standa til að hægt verði að bjóða fundargestum á Rokksafnið
meðan á þinginu stendur.
Sendið póst á info@leiklist.is til að bóka pakka fyrir hádegi 20. apríl.
Fyrrverandi er frumsýnt 9. apríl í Borgarleikhúsinu
„Þetta hjónaband stefndi bara í áttina að lestarslysi. Svo ég ákvað að stökkva út.“
Vinir hittast til að kryfja málin í „symposium“; samræðum með víni, þar sem allt er undir; samböndin, samlífið, draumarnir, áföllin, sjálfshjálparnámskeiðin, samskiptin við tengdó og stjúpbörnin og síðast en ekki síst fyrrverandi! Hversu oft hugsarðu um fyrrverandi? Er eðlilegt að stjúpsystkini klóri augun úr hvoru öðru? Hvað eru eiginlega margir í þessu hjónabandi? Er hundurinn ekki óeðlilega ástleitinn? Hver var að tala um opið samband?
Þúsundþjalasmiðurinn Valur Freyr Einarsson leikstýrir hér eigin verki með aðra meðlimi CommonNonsense sér við hlið en hópurinn, með Ilmi Stefánsdóttur myndlistarkonu og leikmyndahöfundi og tónlistarmanninum Davíð Þór Jónsson innanborðs, á að baki dásamlegar sýningar á borð við Söngleikinn Leg og Tengdó.
Útkoman er myljandi fyndið og hjartnæmt verk sem speglar flókið fjölskyldulíf og sambönd nútímans þannig að við finnum samhljóm við okkar eigin grátbroslegu tilveru.