apríl | 2015 | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Archive from apríl, 2015

    Billy Elliot

    apr 7, 2015   //   by admin   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    billy

    Billy er á leiðinni í boxtíma þegar hann lendir fyrir slysni á dansæfingu. Hann byrjar að hreyfa sig í takt við tónlistina og uppgötvar sér til furðu að þetta er ekki einungis það skemmtilegasta sem hann hefur gert heldur er hann einfaldlega fæddur til að dansa.

    Billy á sér draum sem samræmist ekki hugmyndum fullorðna fólks- ins, hann dreymir um að verða dansari á heimsmælikvarða og er tilbúinn að leggja allt í sölurnar. Billy Elliot er þroskasaga unga fólksins og hinna fullorðnu – mögnuð og falleg saga um baráttu drengs við fordóma samfélagsins og fjölskyldunnar um að fá að vera sá sem hann er. Þetta er kraftmikið verk um alvöru fólk með skotheldri og grípandi tónlist eftir Elton John, stórfenglegum hópdansatriðum og ótrúlega hæfileikaríkum dreng í aðalhlutverki sem á eftir að fá áhorfendur til að gapa af undrun.

    Söngleikurinn um Billy Elliot var frumsýndur á West End í London árið 2005 og hefur vakið gríðarlega athygli um víða veröld. Sýningin hlaut mikið lof og fjölda verðlauna og er nú loksins komin í Borgarleikhúsið undir stjórn sama hóps og færði okkur Mary Poppins. Hér blandast saman blússandi húmor og stórkostleg dans- og söngatriði svo úr verður sann- kölluð flugeldasýning með einvala liði leikara og auðvitað íslenskum Billy

    Höfundar: Lee Hall og Elton John
    Leikstjóri: Bergur Þór Ingólfsson Meðframleiðandi: Baltasar Kormákur
    Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson
    Danshöfundur: Lee Proud
    Leikmynd: Petr Hlousek
    Búningar: Helga I. Stefánsdóttir
    Tónlist: Elton John
    Tónlistarstjóri: Agnar Már Magnússon Lýsing: Þórður Orri Pétursson
    Hljóð: Gunnar Sigurbjörnsson
    Aðstoðarleikstjóri: Hlynur Páll Pálsson
    Leikarar: Álfrún Örnólfsdóttir, Björn Stefánsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Jóhann Sigurðarson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Halldór Gylfason, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Magnús Guðmundsson, Sigurður Þór Óskarsson, Baldvin Alan Thorarensen, Hjörtur Viðar Sigurðarson, Sölvi Viggósson Dýrfjörð, Örn Árnason o.fl.

    Kuggur og leikhúsvélin

    apr 6, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    kuggsKuggur og Mosi fara í Þjóðleikhúsið til að horfa á skemmtilega leiksýningu. Málfríður og mamma hennar eru líka mættar með skrítin tól og tæki. En hvar eru leikararnir eiginlega? Hér eru furðuverur eins og ruslaskrímsli og geðill geimvera en engir leikarar. Kuggur veit ekki hvað hann á að halda. Hann hélt að það væri allt öðruvísi að fara í leikhús!

    Kuggur er klár strákur sem á frekar óvenjulega vini. Þeir eru Mosi sem er lítill og grænn og svo mæðgurnar Málfríður og mamma hennar. Málfríður er gömul kerling en mamma hennar er ennþá eldri! Þessar mæðgur eru svo sannarlega skemmtilegar og uppátækjasamar. Það er líf í tuskunum þegar þær fara í Þjóðleikhúsið!

    Um Kugg og félaga hans hafa verið skrifaðar margar vinsælar bækur, en vinirnir stíga nú á svið í Þjóðleikhúsinu í fyrsta sinn.

    Aldurshópur: 3-8 ára. 

    Næstu sýningar:
    sun. 12. apr. 2015, kl. 13:30

    sun. 12. apr. 2015, kl. 15:00
    sun. 19. apr. 2015, kl. 13:30
    sun. 19. apr. 2015, kl. 15:00

    Leiklistarskóli Bandalagsins

    apr 5, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    bíl

    Opnað hefur verið fyrir skráningu í hinn árlega Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga (BÍL). Skólinn hefur verið haldinn á hverju ári síðan 1997, lengst af á Húsabakka í Svarfaðardal en síðustu árin að Húnavöllum í A-Húnavatnssýslu.  

    Skólinn er opinn öllum 18 ára og eldri og þar hefur verið boðið upp á fjölbreytt úrval vandaðra námskeiða í leiklist, leikstjórn, leikritun, söng, förðun og fleiru auk þess sem höfundum hefur verið boðið í heimsókn þau ár sem ekki hafa verið ritunarnámskeið. Skólinn hefur verið mjög mikilvæg vítamínsprauta inn í starf áhugaleikfélaganna. Félagar úr Leikfélagi Selfoss hafa verið mjög duglegir að sækja skólann í um áratug sem hefur skilað sér í miklum metnaði, áhuga og drifkrafti.  

    Í ár er boðið upp á eftirfarandi námskeið: Leiklist II í umsjón Ágústu Skúladóttur, leikstjórn I í umsjón Rúnars Guðbrandssonar og sérnámskeið í long-form improv eða langspuna í umsjón Dóru Jóhannsdóttur. Einnig er höfundum boðið að koma í heimsókn.

    Starfstími skólans í ár er 6. – 14. júní. Skráningarfrestur er til 15. apríl.  

    Elsku Míó minn í Útvarpsleikhúsinu um páskana

    apr 4, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Elsku mio minn1

    Um páskana frumflytur Útvarpsleikhúsið á Rás 1 fjölskylduleikritið Elsku Míó minn eftir skáldsögu Astrid Lindgren í nýrri þýðingu Þórarins Eldjárns. Þetta fallega verk, um hugrekki og vináttu, er það stærsta sem Útvarpsleikhúsið ræðst í á þessu leikári.

    Elsku Míó minn segir frá Bússa sem er munaðarlaus strákur sem býr hjá fósturforeldrum sínum, sem er ekki alltof vel við hann. Þau hefðu frekar viljað fá stelpu. Þau hafa sagt honum að mamma hans hafi dáið við fæðingu hans og að pabbi hans sé örugglega bara einhver ónytjungur. Einn daginn fer Bússi í sendiferð út í bakarí. Í ferðinni finnur hann flösku sem er engin venjuleg flaska. Bússi sér eitthvað hreyfa sig ofan í henni og þó að hann hafi oft heyrt sögur um anda sem búa í flöskum trúir hann ekki sínum eigin augum þegar andi skýst út um stútinn á flöskunni hans. Bússi á líka bágt með að trúa því sem andinn segir – að hann sé kominn frá Landinu í fjarskanum til að sækja hann! Bússi sé í rauninni sonur konungsins þar og heiti í raun og veru Míó. Hans bíði mikið og stórt hlutverk í Landinu í fjarskanum. Bússi eða Míó eins og hann heitir í raun og veru, ferðast með andanum yfir í Landið í fjarskanum.

    Kolbrún Halldórsdóttir er leikstjóri verksins og Einar Sigurðsson sér um tónlist og hljóðvinnslu á verkinu. Átján leikarar taka þátt í uppfærslunni og þar af átta börn. Ágúst Beinteinn Árnason er í hlutverki Míós og vin hans JúmJúm leikur Theodór Pálsson. Konungurinn, faðir Míós, er leikinn af  Ingvari E. Sigurðssyni og Kató, riddarann illa, leikur Benedikt Erlingsson. Aðrir leikendur eru: Hanna María Karlsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Brynhildur Guðjónsdóttir, Þórhallur Sigurðsson (Laddi), Þorsteinn Bachmann, Atli Þór Albertsson, Hinrik Ólafsson og Ólafur Darri Ólafsson. Börnin sem Míó og JúmJúm kynnast í Landinu í fjarskanum eru leikin af Kolbeini Högna Gunnarssyni, Skarphéðni Vernharðssyni, Degi Brabin Hrannarssyni, Steinunni Lárusdóttur, Matthíasi Davíð Matthíassyni og Emilíu Bergsdóttur.

    Elsku Míó minn verður flutt í þremur hlutum: 1. hluti á föstudaginn langa, 2. hluti á páskadag og 3. og síðasti hluti á annan dag páska, á Rás 1 alla dagana klukkan 15.00. 

    Gói til Þjóðleikhússins

    apr 4, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    gói

    Leik­ar­inn Guðjón Davíð Karls­son (betur þekktur sem Gói) stend­ur á tíma­mót­um – næsta haust mun hann fara yfir í Þjóðleik­húsið en hann hef­ur verið fa­stráðinn í Borg­ar­leik­hús­inu. Ari Matth­ías­son þjóðleik­hús­stjóri er að vinna að sínu fyrsta leik­ári með til­heyr­andi breyt­ing­um. 

    Gói hef­ur um ára­bil leikið fjöl­mörg burðar­hlut­verk í Borg­ar­leik­hús­inu og þar áður hjá Leik­fé­lagi Ak­ur­eyr­ar en á báðum stöðum var hann einn helsti burðarás leik­hús­anna. Börn lands­ins þekkja hann einnig sem Góa í Stund­inni okk­ar og úr bíó­mynd­um með Sveppa sem slegið hafa í gegn hjá yngstu kyn­slóðinni. Fyrsta hlut­verk Góa hjá Þjóðleik­hús­inu verður eitt aðal­hlut­verkið í Hróa hetti sem  Þjóðleik­húsið frum­sýn­ir í sam­starfi við Vest­urport í sept­em­ber. 

    „Mark­mið okk­ar í Þjóðleik­hús­inu er að ráða bestu leik­ara lands­ins til starfa og við erum spennt að fá Guðjón Davíð til liðs við okk­ur. Hann er fjöl­hæf­ur leik­ari og elskaður og dáður,“ seg­ir Ari. 

    Eddan

    apr 3, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Eddann

    Verkið fjallar um leikkonu á besta aldri að nafni Edda Björgvinsdóttir. Leikkonan er boðuð í viðtal í vinsælan spjallþátt til að ræða um feril sinn og slá á létta strengi.

    Stjórnandi þáttarins, Gunnar Hansson, og aðstoðarmaður hans, Bergþór Pálsson, átta sig þó fljótlega á að leikkonan hefur aðrar hugmyndir um þáttinn en þeir. Lengi getur vont versnað og sjaldan hefur það átt betur við en einmitt núna.

    Handrit er eftir Björk Jakobsdóttur og Eddu Björgvinsdóttur. Leikstjórn er í höndum Gunnars Helgasonar.

    Sýningin er sett á svið í Gamla bíói þaðan sem flesit Reykvíkingar eiga góðar minningar. Salurinn hefur verið endurnýjaður á glæsilegan hátt og það er Eddunni mikill heiður að fá að vera fyrsta sýningin sem sett er upp i þessu nýja leikhúsi borgarinnar.

    Leiklistarnámskeið í apríl

    apr 2, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Kopleik

    Leiklistarnámskeið í apríl

    Leikfélag Kópavogs stendur fyrir leiklistarnámskeiði í apríl. Námskeiðið er aðallega ætlað félögum með minni reynslu  sem hafa áður sótt námskeið hjá félaginu og/eða tekið þátt í styttri uppsetningum. Ekki er þó loku skotið fyrir að aðrir  komist að en núverandi félagar ganga þó fyrir. Leiðbeinandi er Hörður Sigurðarson sem haldið hefur nokkur  byrjendanámskeið hjá félaginu á undanförnum árum og er þetta námskeið öðrum þræði hugsað sem framhald á  þeim. Námskeiðið verður í 6 skipti og tekur hver tími um 3 klst. Nánari tímasetningar auglýstar síðar.

    Aðgangur er ókeypis fyrir núverandi félaga en námskeiðsgjald er annars 7.500 kr.

    Áhugasamir sendi póst á lk@kopleik.is.

    Carroll: Berserkur

    apr 2, 2015   //   by test   //   Uncategorized  //  Engar athugasemdir

    Carroll

    Hver er þín staða og hlutverk á taflborðinu? Stjórnar þú þínu eigin lífi, eða er einhver annar sem leikstýrir því?

    Ferðist með litríkum persónum úr undralandi Lísu í gegnum draumkennda heima sem leitast við að svara þessum spurningum.

    Leikhópurinn Spindrift kynnir gagnvirkt þáttökuleikhús um hinar ólíku hliðar mannsins í gegnum kynjaverur Undralands.

    Atburðirnir eru spunnir út frá spurningum hópsins um samfélagsleg gildi og rannsakar hvað megi sýna og hvað þurfi að fela í daglegu lífi.

    Galsafull og ryþmísk skrif rithöfundsins Lewis Carroll eru nýtt fyrir áþreifanlegan og tilraunakenndan stíl leikhópsins. Sýningin sameinar raunveruleika okkar og skáldskap Lísu í Undralandi í gegnum gagnvirt þáttökuleikhúss sem ferðast um ólík rými Tjarnarbíós. Áhorfandinn gengur inn í draumaheim þar sem töfrar leikhússins skapa ævintýralega veröld með óvanalegum uppákomum.

    Lísa gengur í gegnum sjálfsþekkingarleit þar sem hún stækkar og minnkar eftir því sem hún mætir ólíkum hliðum manneskjunnar í hinum ófyrirsjáanlegu verum Undralands.

    Leikhópurinn
    Spindrift Theatre er norrænn leikhópur sem hefur verið starfandi síðan árið 2013. Hópinn skipa fjórar ungar konur, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir (Íslandi), Sólveig Eva Magnúsdóttir (Íslandi), Henriette Kristensen (Noregi) og Anna Korolainen (Finnlandi). Meðlimir hópsins lærðu og útskrifuðust úr breska leikhússkólanum Rose Bruford College árið 2013. Spindrift Theatre er tilraunagjarn og framsækinn leikhópur sem leggur áherslu á að skapa út frá forvitni leikarans á eðli mannsins og lífinu sjálfu.

    Spindrift sýndi fyrst á Íslandi árið 2013 sýninguna Þríleikur í Gaflaraleikhúsinu og Frystiklefanum í Rifi. Hópurinn sýndi fyrstu þróun að Carroll: Berserk í Drayton Arms Theatre í London á síðasta ári.

    Takmörkuð fatageymsla verður í boði og ekki verður hægt að taka bakpoka og töskur með í salinn.

    Áhorfendur munu gangi í gegnum Tjarnarbíó í 90 mínútur.

    Sýningin fer fram á íslensku og er ekki við hæfi barna.
     

    Síður:«123
    loading

    Takk fyrir að skrá þig!