Leikfélag Ölfuss æfir nú af krafti Blessað barnalán | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Leikfélag Ölfuss æfir nú af krafti Blessað barnalán

     

    Leikfélag Ölfuss - blessað barnalánLeikfélag Ölfuss æfir nú af krafti Blessað barnalán eftir Kjartan Ragnarsson í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundssonar.Leikarar að þessu sinni eru: Helena Helgadóttir, Ásta Margrét Grétarsdóttir, Róbert Karl Ingimundarson, Aðalsteinn Jóhannesson, Ingólfur Arnarson, Erla Dan Jónsdóttir, Jóhanna Hafdís Leifsdóttir, Oddfreyja H. Oddfreysdóttir, Kristín Svanhildur Helgadóttir, Kolbrún Dóra Snorradóttir, Ragnhildur Ýr Gunnarsdóttir og Árný Leifsdóttir.

    Þetta er í fjórða skipti sem Gunnar Björn leikstýrir hjá LÖ en áður hefur hann sett upp verkin Blúndur og blásýra, Maður í mislitum sokkum og Himnaríki.

    Blessað barnalán fjallar um Þorgerði gömlu sem á fimm uppkomin börn en gamla konan þráir ekkert heitar  að öll börnin komi saman á æskuheimilinu þar sem hún býr enn ásamt Ingu einni af dætrunum. Mæðgurnar plana sumarfríið og eiga von á að öll systkinin snúi heim til að njóta austfirsku sumarblíðunnar með þeim. En hvað gerist þegar systkinin afboða komu sína hvert af öðru? Jú, Inga grípur til sinna ráða, arkar uppá símstöð og sendir skeyti: „mamma er dáin – komið strax – Inga“.  Atburðarásin sem fer af stað í kjölfar skeytisins er hreint óborganleg og óhætt að lofa því að magavöðvarnir fái ærlega hreyfingu. Stefnt er að frumsýningu um miðjan október. Hlökkum til að sjá ykkur í leikhúsinu ?

    Leikfélag Ölfuss



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!