Kristín Þóra og Hilmar Guðjónsson bætast í leikarahóp Þjóðleikhússins og leika í Upphafi | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Kristín Þóra og Hilmar Guðjónsson bætast í leikarahóp Þjóðleikhússins og leika í Upphafi

    Leikararnir Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjónsson hafa nú bæði gengið til liðs við Þjóðleikhúsið. Þau mun leika saman í verkinu Upphaf sem María Reyndal leikstýrir og verður frumsýnt 11. september.Verkið var frumsýnt í Breska þjóðleikhúsinu í London fyrir þremur árum og hlaut afar góðar viðtökur. Það gekk fyrir fullu húsi, var flutt yfir á West End og hefur síðan verið sviðsett víða um heim.

    Leikararnir Kristín Þóra Haraldsdóttir og Hilmar Guðjónsson hafa nú verið ráðin á fasta samninga hjá Þjóðleikhúsinu, bæði hafa þau verið í fremsta flokki íslenskra leikara, hlotið Grímuverðlaun og aðrar viðurkenningar fyrir lutverk sýn. og munu fara með hlutverk í verkinu Upphaf, eftir Davids Eldridge en verkið er einstaklega vel skrifað nýtt leikrit, fyndið og ljúfsárt, um hina sársaukafullu þrá eftir að verða náinn annarri manneskju og eignast fjölskyldu, og óttann við að tengjast öðrum of sterkum böndum. María Reyndal leikstýrir en verkið er frumsýnt í Kassanum 4. september næstkomandi.

    Kristín Þóra og Hilmar bætast því í hóp þeirra fjölmörgu leikara og listrænu stjórnenda sem hafa gengið til liðs við Þjóðleikhúsið á undanförnum vikum og mánuðum, en nú þegar hafa leikararnir og leikstjórarnir Þorleifur Arnarsson, Ólafur Egill og Unnur Ösp bæst í hópinn, auk þess sem lýsingahönnuðurinn Björn Bergsteinn, leikmyndahöfundurinn Ilmur Stefánsdóttir og Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir dramaturg hafa gengið til liðs við Þjóðleikhúsið. Kristín Þóra Haraldsdóttir útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2007 og síðan þá hefur hún tekið þátt í tugum leiksýninga ýmist hjá Leikfélagi Akureyrar, Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Af nýlegum sjónvarps- og kvikmyndaverkefnum má nefna þættina Fanga, Brot og Stellu Blomkvist og kvikmyndirnar Andið eðlilega og Lof mér að falla. Kristín Þóra hefur verið tilnefnd sex sinnum til Grímunnar og tvisvar sinnum til Eddunar. Kristín Þóra hlaut Stefaníustjakann frá minningarsjóði frú Stefaníu Guðmundsdóttur árið 2014 og Grímuverðlaunin 2016 sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir hlutverk sitt í auglýsingu ársins. Árið 2018 vann hún Edduna fyrir hlutverk sitt í Lof mér að falla. Auk þess hefur Kristín verið valin sem Shooting Star 2018 ásamt 10 öðrum efnilegum leikurum í Evrópu. Fyrir hlutverk sín í Andið Eðlilega og Lof mér að falla hefur hún fengið fjölda tilnefninga til Alþjóðlegra verðlauna.

    Hilmar Guðjónsson útskrifaðist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2010 og var þegar fastráðinn við Borgarleikhúsið. Eftir útskrift hafa hlutverkin verið ótalmörg. Hann hlaut grímuverðlaun fyrir hlutverk sitt í Rautt og nú í vor var hann tilnefndur til Grímuverðlauna fyrir Helgi Þór rofnar. Meðal annarra verka sem hann hefur leikið í eru  Fanný og Alexander,  Ríkharður  III, Mávurinn og Salka Valka. Þá hefur Hilmar farið með hlutverk í kvikmyndunum Bjarnfreðarson og Á annan veg og fékk hann tilnefningu til Edduverðlaunanna fyrir hlutverk sitt í myndinni. Í sjónvarpi hefur Hilmar tekið að sér hlutverk í sjónvarpsmyndinni Fiskar á þurru landi og svo þáttaröðunum Fólkið í blokkinni, Drekasvæðinu, Stellu Blomkvist og Venjulegu fólki auk hlutverka í Áramótaskaupum, Jólastundinni okkar og Ævari Vísindamanni. Þá hefur Hilmar leikið í fjölda stuttmynda, nú síðast Ráðabruggi Regínu. Haustið 2011 var Hilmar valinn í hóp Shooting Stars, ungra og efnilegra kvikmyndaleikara í Evrópu.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!