Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Allra síðasta sýning! | |
|
|
Leiksýningin ÉG ER EKKI HOMMI eftir Daniel Guyton var frumsýnd í Loftkastalanum þann 22. janúar. Allra síðasta sýning verður föstudagskvöldið 15. apríl kl. 20.
ÉG ER EKKI HOMMI ætti að höfða til unnenda ögrandi leiklistar því hér er á ferðinni djörf og spennandi uppsetning á þessu glænýja leikverki. Þetta er myrkur og drepfyndinn gamanleikur sem fjallar um Garðar, ferkantaðan, ófrumlegan og fordómafullan karlmann sem efast stöðugt um kynhneigð sína.
Hann er óhamingjusamlega giftur skapstyggri kellingu, sem er yfir fjögurhundruð kíló í þokkabót. Þau hjónin búa við hliðina á hommapari sem gera ekkert annað en að njóta ásta öll kvöld með miklum tilþrifum. Garðar ályktar, þvert á eigin fordóma, að hamingjan sé fólgin í því að vera samkynhneigður og leitar allra leiða til að fá staðfestingu á hugmyndum sínum. Hann kemst þó fjótt að því að lífið er mun flóknara og hefur örvæntingafulla leit að lífshamingjunni. Á vegi hans verða ýmsar persónur einsog undarlegur prestur, samkynhneigð lögga og útbrunnin díva sem taka þátt í að mynda skoðanir Garðars um lífið og tilveruna. Í sýningunni eru nokkur skondin tónlistaratriði þar sem fiktað er í Deep Purple, Village People, Bubba, Írafári og fleirum.
Höfundur verksins er bandaríska leikskáldið Daniel Guyton. Hann er fæddur á Long Island í New York og hefur verið valinn eitt efnilegasta leikskáld Bandaríkjanna um árabil og tvisvar sinnum hlotið hinnn virta leikskáldastyrk Kennedy Center. Hafa verk hans verið flutt víða um Bandaríkin en lítið utan þeirra ennþá. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann er þýðandi verksins á íslensku.
Aðstandendur sýningarinnar eru leikararnir Gunnar Helgason, Friðrik Friðriksson og Höskuldur Sæmundsson, leikstjóri er Guðmundur Ingi Þorvaldsson, tónlistarstjóri er Ásgrímur Angantýsson, Sigurður Kaiser hannar leikmynd og lýsingu, Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann sér um búninga, Kristín Thors sér um hárgreiðslu og förðun, gervahönnun er í höndum Helgu Lúðvíksdóttur og sýninga- og tæknistjórn er í höndum Arnars Tuma Þorsteinssonar, Sverris Árnasonar og Arnars Ingvarssonar. Sýningin er sett upp í samstarfi Loftkastalans og leikfélagsins Fimbulvetur. Um Evrópufrumsýningu á verkinu er að ræða. |
|