AIDA - Ástarþríhyrningurinn   Prenta  Netfang 

AIDU – ÁSTARÞRÍHYRNINGNUM FRESTAÐ VEGNA VEIKINDA

Vegna veikinda verður sýningu á Aidu - Ástarþríhyrningnum í Íslensku óperunni frestað um tvær vikur, til föstudagsins 5. mars kl. 20, en sýningin átti að fara fram annað kvöld, 19. febrúar.

Þeim sem þegar hafa keypt miða á tónleikana er bent á að snúa sér til miðasölu Íslensku óperunnar, með því að hringja í síma 511-4200, svarað í síma frá 10-18 alla virka daga og frá kl. 12 um helgar, eða með tölvupósti á midasala@opera.is, til að fá miða á nýja sýningu eða endurgreitt.

Sviðsettir tónleikar með völdum köflum úr óperunni Aidu eftir Giuseppe Verdi

í Íslensku óperunni föstudagskvöldið 5. mars kl. 20

Aida-Ástarþríhyrninginn fer á svið í Íslensku óperunni föstudaginn 19. febrúar kl. 20. Hér er um að ræða sviðsetta tónleika þar sem öll helstu ein- og samsöngsatriði óperunnar Aidu eftir Verdi verða flutt, en Aida er ein þekktasta ópera sögunnar, og var síðast sett upp í Íslensku óperunni árið 1987. Á þessum sviðsettu tónleikum er tekinn fyrir ástarþríhyrningur aðalsöguhetja óperunnar; elskendanna Aidu, Radamesar og Amnerisar. Leikið er undir á píanó og byggir efnisskráin á hinum hrífandi aríum og samsöngvum sem flestir þekkja úr óperunni, en meðal þekktra kafla úr Aidu eru aríurnar „Celeste Aida“ og „Ritorna vincitor“, auk dúettsins „Morir, si pura e bella“, svo dæmi séu tekin.

Flytjendur eru nokkrir af okkar fremstu listamönnum á tónlistarsviðinu, stórsöngvararnir Elín Ósk Óskarsdóttir, sópran, og Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór, sem á undanförnum árum hafa sungið aðalhlutverkin í nokkrum af allra vinsælustu óperuuppfærslum Íslensku óperunnar, t.d. Macbeth árið 2003, Toscu árið 2005, La traviata árið 2008 og Cavalleria Rusticana og Pagliacci árið 2008, ásamt Hörn Hrafnsdóttur, mezzósópran, sem Íslenska óperan kynnir nú til leiks í aðalhlutverki í fyrsta sinn í uppfærslu á sínum vegum.

Meðleikari á píanó er Antonía Hevesi, píanóleikari við Íslensku óperuna.

Miðaverði er stillt í hóf, aðeins 2.500 kr.
 

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is