Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Bugsy Malone í Keflavík | |
|
|
Laugardaginn 31. október frumsýndi unglingadeild Leikfélags Keflavíkur söngleikinn Bugsy Malone í leikstjórn Ingólfs Níelsar Árnasonar. Æfingar hafa staðið yfir undanfarnar sex vikur en alls taka um 60 unglingar þátt í þessari skemmtilegu sýningu. Leikfélagið setur á hverju ári upp tvær metnaðarfullar sýningar og þessi er þar engin undantekning. Mikil gróska er í öllu leiklistarstarfi hjá LK og áhuginn mikill hjá unglingum. Það er einlæg ósk þeirra sem halda um stjórnartaumana hjá Leikfélagi Keflavíkur að bæjarbúar og aðrir nærsveitungar komi og sjái þennan öfluga unglingahóp takast á við þetta metnaðarfulla verkefni. |
|