Freyvangsleikhúsið
Halaleikhópurinn
Leikfélagið Hallvarður Súgandi
Leikfélag Vestmannaeyja
Leikhópurinn Lotta
Leynileikhúsið
Hugleikur
Leikfélag Dalvíkur
Leikfélag Hafnarfjarðar
Leikfélag Hólmavíkur
Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Kópavogs
Leikfélag Mosfellssveitar
Leikfélag Sauðárkróks
Leikfélag Selfoss
Leikfélag Ölfuss
Leikfélagið Grímnir
Leikfélagið Peðið
Stúdentaleikhúsið
| Fjölskyldan - ágúst í Osage-sýslu | |
|
Fjölskyldan – ágúst í Osage-sýslu eftir Tracy Letts verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins föstudaginn 30. október. Hér er á ferðinni stórbrotin fjölskyldusaga sem sópað hefur til sín verðlaunum. Leikritið er fjölskyldusaga Weston fjölskyldunnar sem kemur saman þegar ættfaðirinn, Bewerly Weston, hverfur. Verkið er um gleði og sorgir fjölskyldunnar og hvernig óvænt áföll geta ýtt löngu gleymdum atburðum aftur upp á yfirboðið. Hilmir Snær Guðnason leikstýrir verkinu og er þetta hans fyrsta verkefni eftir að hafa skrifað undir fastan samning við Borgarleikhúsið síðast liðið sumar. Þrettán leikarar taka þátt í verkinu, úrvals lið leikara Borgarleikhússins. Tónlistarmaðurinn KK fléttar síðan tónlistartöfra sína inn í verkið og verður lifandi tónlist á sviðinu sem rammar inn verkið. Sýningin er þrír þættir og verða tvö hlé, eftir 1. og 2. þátt. |
|