Ástardrykkurinn í íslensku óperunni   Prenta  Netfang 
ÁstardrykkurinnÁstardrykkurinn eftir Donizetti er bráðskemmtileg gamanópera, sem fjallar um tilraunir ungs manns til að vinna hug ungrar konu. Þegar allt annað bregst leitar hann á náðir kuklara nokkurs sem útvegar honum svokallaðan ástardrykk. Að lokum fer þó allt vel, eins og svo oft í óperum, og hin sanna ást sigrar að lokum.

Einvalalið ungra íslenskra söngvara syngur aðalhlutverkin í sýningunni. Með hlutverk unga mannsins, Nemorino, fer Garðar Thór Cortes, með hlutverk ungu stúlkunnar, Adinu, fer Dísella Lárusdóttir, kuklarann Dulcamara syngur Bjarni Thor Kristinsson, og í hlutverki keppinautarins Belcore er Ágúst Ólafsson. Með hlutverk vinkonunnar Gianettu fer Hallveig Rúnarsdóttir. Þá syngja þau Þóra Einarsdóttir og Gissur Páll Gissurarson einnig hlutverk Adinu og Nemorino á sýningatímabilinu.

Sama listræna stjórn og stóð að hinni vel heppnuðu uppfærslu á Cosí fan tutte Mozarts í Óperustúdíói Íslensku óperunnar vorið 2008 stendur að uppfærslunni á Ástardrykknum; þau Ágústa Skúladóttir leikstjóri, Guðrún Öyahals leikmyndahönnuður, Katrín Þorvaldsdóttir búningahönnuður og Páll Ragnarsson ljósahönnuður. Hljómsveitarstjóri er líkt og þá Daníel Bjarnason. Þá tekur kór og hljómsveit Íslensku óperunnar ennfremur þátt í sýningunni.

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is