Völva   Prenta  Netfang 
VölvaVölva, er rafrænn leikhússeiður, eftir Pálínu Jónsdóttur og Walid Breidi, sem miðlar hinum leyndardómsfulla spádómi Völuspár með nýrri gagnvirkri tækni. Leikkonan, holdgervingur Völvunnar, stjórnar framvindunni í gegnum íklæðanlegan rafmiðil sem er galdratæki Völvunnar. Völva er framsækið samrunaverk sem leitast við að skapa nýja vídd innan leikhúslandslagsins við endurorta Völuspá Þórarins Eldjárns.

Verkið var frumsýnt þann 22. október síðast liðinn í Þjóðleikhúsinu.
 
Völuspá telst til Eddukvæða, er geyma kvæðabálka sem upphaflega lifðu í munnmælum þar til á 13. öld, er kvæðin voru skráð. Völuspá er óður um sköpun heimsins og endalok hans í Ragnarökum.
 
Verkið hlaut þróunarstyrk frá Leikritunarsjóðnum Prologos og Menntamálaráðuneytinu.
Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og Pálínu frá Grund.
Sýningin nýtur stuðnings franska sendiráðsins á Íslandi og Reykjavíkurborgar.
 
Ein sat ég úti
er Óðinn gamli kom.
Hann óttaðist um Æsi
í augu mín leit.
Hvað viltu frétta?
 
........Viljið þið meira eða hvað?

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is