Skoða daginn í dag
Í þessum mánuði
Mánuðurinn á undan Dagurinn á undan
Næsta dag Næsta mánuð

Blóðbrúðkaup Prenta 
 

eftir F. G. Lorca

Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands

Blóðbrúðkaup er allt í senn - blanda af hreinræktuðu raunsæi, ljóðlist og ævintýri. Harmsaga um ástir og hefndir í óbilgjarnri veröld sem endurtekur grimmdarverk og fávisku ætt fram af ætt, mann fram af manni, jafnvel þó að allir viti að það endi aðeins með blóðbaði.

Þetta er hin klassíska saga óleysanlegra átaka ástríðna og hefða. Ung stúlka er lofuð eigulegum pilti, en hjarta hennar tilheyrir enn fyrrum unnusta hennar sem þó er giftur annarri konu. Á brúðkaupsdegi stúlkunnar hleypur hún á brott með unnustanum fyrrverandi út í skóg. Brúðguminn og fjölskylda hans fylgja fast á hæla parsins í leit að hefnd og dauðinn virðist óumflýjanlegur.

Leikstjóri er Kamilla Bach Mortensen, leikmynda- og búningahönnun er í höndum Barkar Jónssonar, Egill Ingibergsson sér um ljósahönnun og tæknistjórn og tónlistina semur Egill Guðmundsson, nemi í tónlistardeild LHÍ.

Nemendaleikhúsið í vetur skipa þau Anna Svava Knútsdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Hallgrímur Ólafsson, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Magnús Guðmundsson, Sara Marti Guðmundsdóttir, Sigrún Huld Skúladóttir, Tinna Lind Gunnarsdóttir og Vignir Rafn Valþórsson.

Miðasala fer fram í Borgarleikhúsinu í síma 568 8000.

Almennt miðaverð er 1.500.kr. og nemendaverð er 1.000 kr.

Áætlaður sýningartími er frá 24. nóvember til 10. desember.



Borgarleikhúsið - Litla svið

Bakka

Events v1.0 RC5 final Copyright © 2003-2004 by Eric Lamette, Dave McDonell

 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is