Gefðu þitt álit þitt á sýningum sem þú hefur séð:
Sýning: *
Þitt nafn: *
Netfang: *
Stjörnugjöf:   ( hreinsa )
Þitt álit:
Nauðsynlegt er að gefa upp nafn og netfang til að geta skráð þína skoðun á umræddri sýningu. Netfangið verður eingöngu sjáanlegt umsjónarmönnum leikhús.is.

Ekki er nauðsynlegt að skrifa álit þitt á sýningu til þess að gefa henni stjörnur.
Sömuleiðis er ekki nauðsynlegt að gefa sýningu stjörnu til að skrifa álit þitt á henni.

Áður en skrif þín birtist á vefnum fara umsjónarmenn leikhús.is yfir textan til að koma í veg fyrir að óþarfa og gagnslausar skoðanir líti ljós á vefnum. Þér er velkomið að skrifa neikvæða umfjöllun en vandaðu orðavalið og ekki skrifa niðrandi orð um einstaka leikara eða aðra sem koma að sýningunni enda gagnast slíkt engum.

IP-tala þín verður skráð samhliða skoðun þinni. ( 38.107.191.101 )

Milljarðamærin snýr aftur
Sigrún Edda er stórkostleg í þessari sýningu, Hilmir Snær er náttúrlega alveg dásamlegur og geldingatvíeykið áhugavert, en það kom mér á óvart hvað leikurinn var misþroska í sýningunni og það var eins og sumir leikarar næðu sér ekki á strik, að vísu á frumsýningu, kannski ekki alveg að marka það. Þetta er óhugguleg og fyndin sýning og á erindi við okkur í dag í breyttum siðferðisgildum og naflaskoðun sem þarf að gerast hjá þjóðinni.
Nanna Þórarinsdóttir
(4 stjörnur)



Rokkóperan !HERO
Glæsileg sýning og gífurlega hæfileikaríkir leikarar og söngvarar sem standa að henni þó að flestir séu ungir að árum. Ég vissi ekki við hverju ég ætti að búast þegar ég og vinkona mín skelltum okkur á !Hero, en við urðum svo sannarlega ekki fyrir vonbrigðum!
Að mínu mati stórglæsilegt hjá þeim!
Helena
(4 stjörnur)



Sannleikurinn
Pétur fékk mig til að brosa í byrjun og náði ég að halda brosinu út leikritið. Náði aldrei að deyja úr hlátri. Ekki þess virði að sjá.
Kári
(2 stjörnur)



Fló á skinni
Meirháttar sýning.
Hló stanslaust í 2,5 klst
Sú besta sem ég hef séð í leikhúsi!
Klárlega skyldusýning og er ég búin að koma þeim skilaboðum á framfæri við mitt fólk!
Hjördís
(5 stjörnur)



Sannleikurinn
Mjög hresst og skemmtilegt uppistand með óvæntum snúningum. Pétur Jóhann gerir grín að öllu milli himins og jarðar á meðan hann leitar að tilgangi lífsins og tekst vel til.
Sýning sem maður fer brosandi út af. :)
Andrea
(3 stjörnur)



Fló á skinni
Ég var svo heppinn að sitja við hliðná stelpu sem var með svo smitandi hlátur að ég gat ekki gert annað en skellt uppúr. Upplagt fyrir þá sem hafa gaman af fimmaurabröndurum að taka glósubók með á sýninguna. Aðdáendur dramaþátta á borð við Guiding Light ættu einnig að hafa gaman af þessu. Ágætis skemmtun, 3 stjörnur
Karl Gunnarsson
(3 stjörnur)



Rústað
Þegar ég sá að það voru byrjaðar sýningar á ofbeldifullu verki með þeim Ingvari E. og Birni Thors þá vissi ég að þetta væri eitthvað fyrir mig. Ég varð alls ekki fyrir vonbrigðum.

Verkið lýsir blákallt öllum þeim viðbjóði sem á sér stað í styrjöldum. Magnað hversu vel tekst til að umturna sviðsmyndinni og framkalla trúverðuga borgarastyrjöld í Borgarleikhúsinu á einu augabragði.

Við viljum helst ekki vita og trúa því að allur hryllingurinn sem settur er á svið eigi sér stoðir í raunveruleikanum. Rústið er leikrit sem getur hrisst vel upp í fólki.. eldra en 16 ára.

Karl Gunnarsson
(4 stjörnur)



Heiður
Ákaflega fallega framsett leikrit. Leikmynd til prýði og leikurinn eftir því, hnökralaus og eðlilegur. Lýsingin var einnig nokkuð skemmtileg og senuskipting oftast nær þægileg.

Verkið sjálft er áhugavert og sagan góð og falleg, þótt efnistökin séu ekki kannski af fallegri kantinum. Mæli með þessari sýningu fyrir alla!
Tomage
(4 stjörnur)



Fló á skinni
Líklega sæmilegasta kvöldskemmtun fyrir þá sem fara sjaldan í leikhús og vilja fá mikið fyrir aurinn, stóra leikmynd, marga leikara og heilan haug af fimmaurabröndurum og misskilningi.

Fyrir hina sem vilja eitthvað meira en hugsanalaust fjaðurvigtargrín er þetta ekki rétta sýningin. Í mínum hugsa er nauðsynlegt að vera búinn að ákveða að hlæja fyrirfram því grínið er ekki þess eðlis að það sé í raun fyndið ef maður heyrði það annarsstaðar en þarna.

Þokkalegasta sýning sem slík, en stórlega ofmetin.
Arnar
(2 stjörnur)



Brák
Mögnuð sýning sem kom skemmtilega á óvart. Lítið er skrifað um Brák í Egilssögu en Brynhildi tekst að fylla 2 tíma með frábærri persónusköpun og einstaklega lifandi leik sínum. Návistin við hana og aðra áhorfendur gerir þessa sýningu að sérstakri upplifun, hið þrönga Söguloft Landnámssetursins lifnar við með skemmtilegri blöndu ljósa og búninga. Hefði varla trúað að einleikur gæti verið svona sterkur.

Sýning sem stendur upp úr og er alls ekki síðri, jafnvel betri, en hin víðfræga Mr. Skallagrímsson.
Arnar Þór
(5 stjörnur)



Dubbeldusch
Við hjónin skemmtum okkur frábærlega á Dubbeldusch, sem og tvenn vinahjón sem fóru daginn eftir. Okkur fannst sonurinn slá algjörlega í gegn, Hilmar Jónsson sem pabbinn var frábær og mamman og stelpan líka. Mjög íslenskur veruleiki.
Soffía
(5 stjörnur)



Skugga-Sveinn
Sá þessa sýningu tvisvar, frískleg og fyndin og með góðum drama .
Ingvar H. Jakobsson
(4 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
Ég sá þessa sýningu ásamt þrem öðrum. Álit okkar var að sýningin væri frábær. Efnið er létt og skemmtilegt, leikarar stóðu sig mjög vel og umgjörðin var skemmtilega öðruvísi og skilaði sér ekki ver en á sviði. Ég ætla ekki að tala um einstaka leikara en túlkunin á Óla var alveg spes að mínu mati. Takk fyrir góða sýningu.
Úlfar Hermannsson
(4 stjörnur)



Sumarljós
Mjög góð sýning! Eins og í bókinni er manni sýndar margar "myndir" sem raðast vel saman.
Skilaboðin mjög skýr! "Ekki geyma lífið/ástina til morguns"
Guðrún S. Jakobsdóttir
(3 stjörnur)



Sumarljós
Ágætis kvöldstund sem ég átti. Þetta er ekki sýning sem kveikir mikið á hlátrinum en mér fannst þetta þó skemmtileg uppsetning og greinilegt að leikstjórinn veit hvað hann er að gera.

Var samt atriði undir lokinn sem var alltof langdregið en þjónaði alls engum tilgangi í leikritinu að mér fannst.

Verkið gerist í litlu þorpi út á landi og þar sem ég er dreifbýlisdrengur þá fannst mér skondið að sjá álit borgarbúa á smáþorpum á landsbyggðinni, dálítið ýkt en þó á einhvern hátt náðu þau alveg stemmingunni.

Sem sagt þrjár stjörnur, ekkert alslæmt en vantar samt aðeins meira tilefni til hláturs.
Birgir Þór
(3 stjörnur)



Sumarljós
alveg frábær sýning, kom við allan minn tilfinninga skala og þá er tilgangium náð.
takk fyrir mig
Jóhanna Ragnarsdóttir
(4 stjörnur)



Rétta leiðin
Mjög gaman, fjörug sýning og efnilegir krakkar.
Hildigunnur Hlíðar
(5 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
verkið dregur mann hratt og örugglega burt frá þjóðfélags harmleiknum sem er að tröllríða okkur þessa dagana.

hressandi flott. Flottur hópur af leikurum, samspil sviðsmyndar og áhorfendapalla töff.
ágúst Guðmundsson
(5 stjörnur)



Vestrið eina
hrein snild! heldur manni á tánum. hræðir kætir og grætir allt í senn.

Björn THOR með fullkomlega fullkominn karakter, 100% edduverðlaun
ágúst Guðmundsson
(5 stjörnur)



Rétta leiðin
Sunnudaginn 30.nóv.fór ég ásamt fjölskyldu alls 7 manns á öllum aldri á sýningu hjá hóp 2. Þessi sýnining var í alla staði frábær, bæði létt,skemmtileg og rann vel í gegn. Við fórum öll glöð og ánægð heim. Takk fyrir bæði leikarar og stjórnendur.
Pamela Morrison
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Frábært að fá þessa sýningu til Reykjavíkur.
Sigríður Oddný
(5 stjörnur)



Vestrið eina
Vestrið eina er ein allra besta sýning sem ég hef séð og mæli eindregið með henni. Frábær leikur hjá leikurum og flott uppsetning.
Soffía Káradóttir
(5 stjörnur)



Hvar er (K)Lárus?
Skemmtilegur farsi sem veitir leikhúsi fólki innsýn í leiklistarmenningu heyrnarlausra. Allir geta notið þessarar sýnignar. Heyrn er engin fyrirstaða.
Hildur Heimisdóttir
(4 stjörnur)



Vestrið eina
Frábær sýning. Maður hlær en er þó ekki viss hvort það eigi við. Leikararnir skila sínum rullum einstaklega vel og sviðssmyndin er skemmtilega útfærð.
Mæli með þessari fyrir alla þá sem hafa gaman af kaldhæðni:)
Ásta Sturludóttir



Brúðarræninginn
21 manns saknað er frábær skemmtun. Víðir Guðmundsson sem leikur aðalhlutverkið fer á kostum í þessu þrælskemmtilega leikriti sem er ótrúlega vel sett upp hjá Bergi Ingólfssyni leikstjóra þessa verks.
Jón Berg Reynisson
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Þessi sýning er algjör snilld. Mæli með því að fólk fari og sjái þessa frábæru sýningu!!!
HG
(5 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
Hreint út sagt þá er þetta skemmtilegasta sýning sem ég hef séð í leikhúsi, sýningin kom verulega á óvart vegna sniðugrar útfærslu og svo voru karakterarnir hver öðrum betri en af öðrum ólöstuðum var Óli frábær. Músíkin bara snilld.
Takk fyrir mig

Guðbjörg S. Björgvinsdóttir
(5 stjörnur)



Brúðarræninginn
Til hamingju með þessa sýningu. Þetta var allveg frábær sýning góður leikur mjög gaman. Mæli fastlega með þessu Takk fyrir mig.
Margrét Erla
(5 stjörnur)



Vestrið eina
Gargandi snilld! Björn Thors fer bókstaflega á kostum sem Valene. Sviðsmyndin mjög lifandi og skemmtileg, býður upp á margt að skoða. Verkið er troðfullt af húmor en undirtónninn er alvarlegur enda bræðurnir ekki eins og fólk er flest.
Sýning sem á erindi við alla sem geta hlegið að kolsvörtum bröndurum. Stórskemmtilegar persónur, stórskemmtileg samtöl og algerlega óútreiknanlegur söguþráður gera það að verkum að maður stendur sig að því að hlakka til að sjá hvernig endirinn verður.. en að sama skapi óska þess að leikritið klárist ekki sökum skemmtanagildis!
Mæli sterklega með þessari sýningu, sérstaklega fyrir þá sem fara sjaldan í leikhús og vilja skemmta sér konunglega þegar þeir fara, en ekki sitja yfir grautfúlu "stórvirki".
Arnar Gunnarsson
(5 stjörnur)



Vestrið eina
Vestrið eina, að ég skyldi velja þessa sýningu af öllum, þar sem ég fer afar sjaldan í leikhús en átti gjafakort sem ég splæsti á þessa sýningu. Veruleg vonbrigði engin boðskapur, reyndar er sviðsmyndin nokkuð góð en þröng, tæknibrellur góðar, leikur Þrastar Leó góður, enda þrautþjálfaður leikari, annað nálgast núll, atburðarrásin hæg og ég hafði á tilfinningunni að leikarar kynnu ekki rulluna, ég dauðsé eftir að velja þessa sýningu og spái að hún gangi ekki lengi.
Ragnhildur Valgeirsdóttir



Vestrið eina
Hrein snilld bæði í texta og ekki síður í leik.
Allir leikarar góðir. Texti þannig að maður sveiflast á milli bræðranna til skiptis og hreinlega bíður þess að verkið endi til að sjá hvernig þeir enda þetta. Mæli með þessu og fullt hús af stjörnum.
Takk fyrir frábæra sýningu.
Guðrún Esther Árnadóttir
(5 stjörnur)



Pétur og Einar
Flott sýning og skemmtileg.
Andri Jónsson
(5 stjörnur)



Pétur og Einar
Stórskemmtileg sýning sem vert er að sjá. Bæði sprenghlægileg og tilfinningaþrungin.
Þórunn Inga Kristmundsdóttir
(5 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Vel unnin sýning, brandararnir orðnir heldur þreyttir en gaman að heiðra þennan góða gamanleikara með því að sjá sýninguna.
Ásta Björgvinsdóttir
(3 stjörnur)



Private Dancer
Mjög áhugaverð sýning. Nauðsynlegt er þó að lesa um hvað hún er áður en farið er að sjá hana. Þessi sýning fer út fyrir hið venjulega dans-leikhúsform sem maður þekkir og því nauðsynlegt að horfa á hana með opnum huga.

Vel unnin sýning.
Ásta Björgvinsdóttir
(3 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
Stórskemmtileg sýning sem fyrir alla aldurshópa. Skemmtileg lög og góðir leikarar. Fín afþreying.
Ásta Björgvinsdóttir
(4 stjörnur)



Macbeth
Mjög áhugaverð sýning, skemmtileg ljósanotkun, stílhreinsað og kemur sér að aðalatriðunum. Óhefðbundin en þrælskemmtileg. Frábær sýning fyrir 15 ára og eldri.
Ásta Björgvinsdóttir
(3 stjörnur)



Vestrið eina
Klárlega sýning sem hæfir öllum. Mjög skemmtileg og áhugaverð. Hún kemur inn á allt sem gerir sýningu frammúrskarandi. Góðir leikarar, skemmtilegur söguþráður, flott sviðsmynd, gleði, sorg, húmor. Mæli með þessari sýningu fyrir alla (yfir 13 ára)
Ásta Björgvinsdóttir
(5 stjörnur)



Pétur og Einar
Frábær sýning og Elvar Logi vinnur leiksigur enn einu sinni. Sagan um Pétur og Einar er mjög merkileg og eru henni gerð góð skil á afar skemmtilegan og magnþrungin máta, allt í einum pakka.

Ég bæði hló mig vitlausan sem og þurfti að þurrka tár af hvarmi þar sem erfið atvik úr sögu Bolvíkinga voru rifjuð upp.

Skylda að sjá þessa sýningu.
Benedikt Sigurðsson
(5 stjörnur)



Pétur og Einar
Þessi einleikur var settur upp í Einarshúsi í Bolungarvík. Elvar Logi leikari rekur sögu fjölskyldna Einars og Péturs í húsinu. Hann kemur því vel til skila og þetta er stórvel skrifað og skilar Elvar Logi því frábærlega til áhorfenda. Systurnar hlátur og grátur bjuggu í góðu samkomulagi lengi í Einarshúsi, Þetta stykki hrífur mann til baka í söguna og skilur eftir ilminn lengi á eftir.
Halla Signý Kristjánsdóttir
(4 stjörnur)



Pétur og Einar
Ég átti þess kost fyrir nokkru síðan að sjá einleikinn Pétur og Einar sem sýndur hefur verið að undanförnu í svokölluðu Einarshúsi í Bolungarvík. Eins og segir í kynningu hér að framan þá bjuggu þeir báðir í húsinu á sínum tíma, Pétur og Einar. Þegar ég var að alast upp í Bolungarvík stóð veldi Einars Guðfinnsonar einna hæst, en ég er fæddur árið 1955. Mér fannst ég raunverulega vera tekinn aftur um tugi ára, svo sannfærandi var túlkun og framsetning Elvars Loga á viðfangsefninu. Þar hafði umgjörðin auðvitað sitt að segja, en húsið hefur nýlega verið gert upp með snilldarlegum hætti þannig að gamli tíminn hefur fengið að njóta sín. Elvari Loga tekst síðan með framsetningu sinni að glæða húsið lífi og draga fram "sál" þess ef svo má að orði komast. Þeim Elvari Loga og höfundinum, Soffíu Vagnsdóttur, hefur tekist þarna afar vel til og Ragna Magnúsdóttir, vert í Einarshúsi, á heiður skilinn fyrir framtakið. Ég skora á alla þá sem hafa þess kost, að láta þessa sýningu ekki fram hjá sér fara og skella sér á aðra hvora sýninguna nú síðar í mánuðinum.
Jónmundur Kjartansson
(4 stjörnur)



Hart í bak
Frábærlega leikið, mikið drama en samt hægt að skella upp úr inn á milli. Virkilega vel skrifað. Naut hverrar mínútu.
Björn Ó
(4 stjörnur)



Vestrið eina
Vestrið eina er frábær sýning sá lokaæfingu og hreifst mjög af leik þeirra allra en "bræðurnir" þeir eru mjög mjög góðir og allur texti er frábær maður hálfengist undan honum og tekur afstöðu með þeim til skiptis og andar léttar þegar sýningu líkur!! Gef þeim fullt hús og sendi rósir í huganum.
Guðrún Esther Árnadóttir
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Frábær skemmtun, góður leikur og mikið hlegið ekki hægt að hafa það betra..
Guðrún Guðmundsdóttir
(5 stjörnur)



H.V.S.F.Í.
Skemmtileg sýning sett upp af áhugamannaleikhóp - hér er húmorinn aðalatriðið og er sýningin skemmtileg þrátt fyrir að umgjörðin sé ekki fullkomin enda er það ekki alltaf nauðsynlegt.
Leikararnir voru mismunandi en nokkrir þeirra fóru hreint á kostum með að túlka sínar persónur og þar á meðal fannst mér túlkunin á Hitler og Marilyn standa uppúr.
Vel benda fólki á að aðeins tekur um 40 mínútur að skjótast úr miðbæ Reykjavíkur til Hveragerðis.
Birgir Þór
(3 stjörnur)



Fló á skinni
SKEMMTUN frá upphafi til enda.Það er langt síðan að maður hefur fengið sér sæti í leikhúsi með rauðan OPAL og áttað sig á því að hann er enn fullur þegar sýningin er búin.Leikritið hefur uppá allt að bjóða, humor drami og spenna frábærir leikarar gera allt svo sannfærandi að mér leið alltaf vel.
Stefán Sæbjörnsson
(5 stjörnur)



Ástin er diskó - lífið er pönk
þetta er fyndið, fullkomið leikrit sem ég væri til í að sjá aftur og aftur. Ég sat á fremsta bekk og það var bara lúxus svo ég mæli með að allir færu á það en þetta er söngleikur sem gerir það ennþá skemmtilegra og ég var mjög sár þegar leikritið var búið.
Salka Ósk
(5 stjörnur)



H.V.S.F.Í.
Að sjá frumsýningu á nýju verki er alltaf upplifun og að njóta þess að hlægja allan tímann og njóta er svo sannarlega bónus...
Hvað eiga Marilyn Monroe, Hitler, Lennon, Jesús og Bob Marley sameiginlegt annað en að vera fræg,- jú þau lifna eftirminnilega fyrir augum manns á litla sviðinu í Völundi í Hveragerði!
Handritið er svo sannarlega ekki hnökralaust en þó skemmtileg frumraun höfundanna og leikstjórinn Ólafur Jens Sigurðsson nýtir alla möguleika þess á afar hugvitsamlegan hátt og kemur manni sífellt á óvart. Leikhópurinn er sterkur og virtist ótrúlega afslappaður og fumlaus, þó þetta væri frumsýning. Að taka einhvern út úr hópnum er í raun ósanngjarnt, svo vel unnu þau úr hlutverkum sínum en ég get þó ekki stillt mig um að nefna frammistöðu Ásu Ninnu í hlutverki Marilyn og Steindór í hlutverki Jesú en þau voru einfaldlega dásamleg og áttu bæði ógleymanlega spretti á sviðinu. Takk fyrir afar ánægjulega kvöldstund, fullkomin nauðsyn nú þegar fátt gleður mann í dagsins önn. Leikfélag Hveragerðis, takk ástsamlega fyrir mig!
Guðrún Halla Jónsdóttir
(4 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
ekki allveg nógu frábært leikrit en ágætt,
mæli ekki mikið með þessu!
Kristrún
(1 stjörnur)



Góðverkin kalla
Ég vil þakka Leikfélagi Fljótsdalshéraðas fyrir sýninguna. Ég skemmti mér konunglega og það er gott að hlægja og gleyma sé í því eina kvöldstund á þessum síðustu og verstu tímum. Það er líka notalegt að koma aftur í Valaskjálf, en félagið hefur verið á hrakhólum í nokkur ár. Leikritið hefur staðist vel tímans tönn og á vel við í dag. Margir leikararnir fóru á kostum en allir stóðu sig mjög vel og sköpuðu eftirminnilegar persónur. Ég hvet Héraðsbúa að skreppa í Valaskjálf og hlægja duglaega. Hláturinn lengir nefnilega lífið. Kveðja frá Gullu.
Guðlaug Ólafsdóttir



Gosi
Ég fór á Gosa í dag, í annað skipti. Fyrsta skiptið fór ég með ömmu. Henni fannst ægilega gaman og talar enn um þessa lífsreynslu. Í dag fór ég hins vegar með tvo litla 1.árs gutta, þetta var þeirra fyrsta leikhúsferð og þeir sátu stjarfir allann tímann og horfðu, skemmtu sér konunglega. Ég verð bara að segja að þessi sýning er æðiselg í alla staði, hvort sem er fyrir börn eða fullorðna. Frábært verk.
Olga Helgadóttir
(5 stjörnur)



Janis 27
Sá Janis í gær. Hreint frábær sýning og performans Bryndísar og Ilmar stórkostlegur. Ég er eiginlega orðlaus yfir söng Bryndísar ekki vafi að þar fer söngkona í heimsklassa. Mæli eindregið með verkinu.
Hallgrímur Jónasson
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Það stendur fyllilega undir væntingum og meira til hláturtaugarnar eru kitlaðar allan tíman enginn dauður tími. Helsti ókosturinn er að maður er kominn með miklar harrðsperrur í magann af krampakenndum hlátri.
Þeir sem hafa ekki séð leikritið enn ættu ekki að láta það fram hjá sér fara. Það gott að hlæja á þessum síðustu og verstu tímum.
Helga Magnúsdóttir
(5 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
Skemmtileg upplifun að sitja á snúningspalli sem að ferðaðist með mann um blokkina. Margir mjög fyndnir karektar, sérstaklega þeir Robbi og Óli. Hressandi sýning sem að ætti að geta komið öllum í fjölskyldunni í gott skap.
Karl Gunnarsson
(4 stjörnur)



Fólkið í blokkinni
Ótrúlega flott sýning. Skemmtileg og fyndin og átakanleg. Líka mjög gaman hvernig hún er sett upp - algjörlega ný upplifun. Tónlistin er líka grípandi og það er mikill húmor í textunum. Mæli með þessari sýningu.
Sigurdur
(5 stjörnur)



Ástin er diskó - lífið er pönk
Alveg vel hægt að hlægja þó sýningin sé ekki fullkomin.
Sigurdur
(3 stjörnur)



Fýsn
Ég held að áhorfandinn þurfi að vera annaðhvort sjálfur með afbrygðilega kynhneigð eða vera í fjölskyldu þar sem samkynhneigð er til staðar til að geta öðlast trúverðuga samsemd með aðalpersónunum. Dramatísk innsýn í tilfinningaheim sumra þeirra sem eru í þjóðfélagslegum minnihluta samkynhneigðra er samt óhugnanlega hrollvekjandi, og er leikhúsið vissulega til þess fallið að veita manni slíka sýn. Að því leiti er leikritið gott. Hins vegar er leikfléttan brotagjörn og niðurstaðan of öfgafull, þrátt fyrir góða frammistöðu leikara. Skemmtanagildið er lítið. Því fær sýningin einungis tvær stjörnur hjá mér.
Sölvi Eysteinsson
(2 stjörnur)



Janis 27
Fín sýning, þrususöngur, fróðlegt fyrir þá sem ekki vissu neitt um Janis fyrir (var með 3 þannig meðferðis), frábær hljómsveit - Þær umsagnir sem "proffarnir" höfðu sett í blöðin dagana áður en við fórum voru ekki uppörvandi - en nú segjum við sem þarna vorum á 2. sýningu: Leikhúsgagnrýnendur hvað!!
E.Þ.
(4 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Frábær sýning mæli með henni og þú hlærð allan tímann :)
Hanna Lísa



Ástin er diskó - lífið er pönk
Ég fór að sjá Ástin er diskó, lífið er pönk. Ég er reyndar búin að fara tvisvar. Mér fannst að skemmtilegra í annað sinn, þetta er svona leikverk sem verður skemmtilegra með hverri sýningunni. Mér fannst þetta algjört æði, söngurinn svo flottur og dansinn æðislegur. Leikurinn mjög góður. Sviðsmyndin var einnig til fyrirmyndar og það var gaman að sjá hvernig sviðið gat breyst í ótrúlegustu aðstæður. Töfrar leikhússins alltaf jafn flottir. Söguþráðurinn fannst mér góður. Mér finnst þetta einn sá skemmtilegasti söngleikur sem ég hef séð, og mjög svo ófyrirsjáanlegur. Takk fyrir mig.
Olga Helgadóttir
(5 stjörnur)



Kommúnan
Mjög frumlegt og skemmtilegt leikrit..
Klara
(3 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Frábært í alla staði.. ekki verri en fyrri sýningin.. æðisleg lög og flottur leikur..
Klara
(4 stjörnur)



Janis 27
Fór á general prufuna..Svaka gaman.. flottur söngur.. langaði að standa upp og dansa við þessi frabæru lög..
Klara
(3 stjörnur)



Fló á skinni
Snilldar sýning í alla staði... ég hló allan timann... aldrei hlegið eins mikið í einu á ævi minni :) Gói stóð uppúr en hinir leikararnir voru samt alls ekki verri :) væri alveg til í að fara aftur :)
Klara



Fló á skinni
Æðislega skemmtileg sýning og frábærir leikarar. Sérstaklega verð ég að hrósa Guðjóni Karlssyni sem var æði! :)
Anna Kristín
(4 stjörnur)



Gangverkið
Þessi sýning er öðruvísi en þó ekki í þeirri meiningu að hún sé leiðinleg. Hér er litið innfyrir tjöldin í leikhúsunum.
Skemmtileg uppsetning hjá Nemendaleikhúsinu.
Birgir Þór Halldórsson
(3 stjörnur)



Macbeth
Sýning fyrir alla (nema viðkvæma). Þú þarft ekki að hafa þekkingu á bókmenntum Shakespears til að njóta þessarar uppsetningar. Blóð og meira blóð!

Mæli sérstaklega að ungir leikhúsaðdáendur skelli sér (þá er ég að meina 16 ára og eldri).
Birgir Þór Halldórsson
(4 stjörnur)



Ástin er diskó - lífið er pönk
Snilld! Ótrúlega skemmtilegt leikrit!
Kristína
(5 stjörnur)



Mammamamma

22. apríl 2008
Ónefnd grein
MYND

frá Valdísi Gunnarsdóttir

Ég fór að sjá frumsýningu leikhópsins OPið út Í HAFNARFJARÐARLEIKHÚSI
á föstudaginn var...
Næsta sunnudag ætla ég hins vegara að fjalla ítarlega um sýninguna ,
en núna ætla ég að mæla með henni...
Þessi leiksýning er byggð á sögum mæðra, dætra, kvenna, og er alveg
klárt mál, að við eigum öll sögu..og við eigum eða áttum öll okkar
mömmu, .. annars værum við ekki hér.
Sýningin er vel gerð, vel, leikin, falleg, frumleg, sorgleg, fyndin,
en umfram allt svo sönn og kvenleg..

Hlýjan sem umvefur mann er maður kemur inn í vinalegt
Hafnarfjarðarleikhúsið er söm við sig, nema núna eru manni færðir
bleikir ullarsokkar, konur á náttsloppum taka á móti manni og svo
situr maður með bleikan púða við bakið eða heldur honum í fangi sér,
þegar sýningin umvefur mann, ...

Mammamamma í Hafnarfjarðleikhúsi... er sýning sem þið verðið að sjá...

17. apríl 2008
Úr gagnrýni
MYND

Svo ætla ég líka að fullyrða að jafnvel þótt fólk hafi hvorki sérstakt dálæti á bleikum lit né kvennahjali, og sé kannski komið það vel við aldur að það hafi heyrt margt af þessu áður, þá muni það kætast yfir því sem það sér og hlýna oft um hjartaræturnar á
sýningunni Mamma mamma. Enda er mamma töfraorð sem kemur til- finningum á rót og fær hugann til að fljúga víða. M.K.-Morgunblaðið 15.apríl.



"Ég hvet fólk bara til að drífa sig á leikinn og njóta hans sjálfs"
***1/2 stjörnur - Jón Viðar Jónsson DV 16.apríl.


"Karnivalstemming eins og hún gerist best" A.Þ. 24 stundir 16.apríl

þórey Sigþórsdóttir



Ástin er diskó - lífið er pönk
Þessi sýning er snilld
Hemmi Ztuð
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Þessi sýning er snilld
Hemmi Ztuð
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Þetta er geðveikt leikrit, ég myndi endilega vilja eiga dvd diskinn og bara allt! þetta er mikill misskilningur og drama og mjög fyndið! ég myndi vilja fara aftur og aftur á þessa sýningu! Gói,Halli,Jói,Stína stóðu sig alveg framúrskarandi vel jafnt sem hinir í leikritinu!
Sonja Rún
(5 stjörnur)



Wake me up
Þetta var besti unglingasöngleikurinn sem ég hef farið á, allir voru alveg rosalega góðir, hvort sem það voru dansarar, söngvarar, leikarar eða hljómsveitin. Guðjón Davíð Karlsson (Gói) leikstýrði þeim vel og þetta var bara rosalega góð sýning.
Sonja Rún
(5 stjörnur)



Mr. Skallagrímsson
Frábær sýning þar sem Benedikt Erlingsson fer algerlega á kostum. Hann heldur athygli áhorfenda allan tímann og setur upp alveg bráðfyndna sýningu.
Hlynur
(4 stjörnur)



Dauðasyndirnar
Þetta er alveg stórmögnuð sýning, og alveg hrikalega skemmtileg. Ég hika ekki við að mæla með þessarri sýningu við alla þá sem eru að leita að góðri kvöldskemmtun.
Hlynur
(4 stjörnur)



Wake me up
Sko, ég hef farið oft í leikhús, en þetta var alra besta sýningin sem ég hef séð! Þetta var líka svo fyndið og dramatískt! Þetta er svona sýning sem ég væri til í að fara oft á, og eiga geisladiskinn og dvd disk! :)
Sædís
(5 stjörnur)



Dauðasyndirnar
Mér fannst þetta hreinnt yndislega fyndið og gaman. Ég hef sjaldan verið með jafn mikinn kjánahroll yfir mér öllum og fundist það gaman. Æðislega uppsett leikrit sem mér fannst allveg frábær skemmtun.
Viðar
(5 stjörnur)



Sá ljóti
Fór á forsýningu á hinum Ljóta, vissi ekkert um verkið, reiknaði með skrattanum sjálfum en verkið kom skemmtilega á óvart.

Það er um EIGINGIRNI og HÉGÓMA og það má eiginlega ekki segja meira.

Skörp ádeila á þjóðfélag og okkur.

Frábær uppsetning og leikur.

Leikararnir ná vel saman og leika fleira en eitt hlutverk allt verður ein frábær heild.

Besta verk á smíðaverkstæðinu í vetur.
Regina
(4 stjörnur)



Engisprettur
Ég fór á forsýningu á verkinu þannig að það var nú ekki fullunnið og enn með örlitlum hnökrum en engu að síður var þetta ágætis skemmtun. Sýningin var þó mun betri eftir hlé heldur en fyrir hlé en þá fóru málin úr fyrri hlutanum að skýrast.

Sviðsmynd og ljósahönnun fyrir þessa sýningu er alveg óaðfinnanleg. Dáðist að því allan tíman hversu sniðug hugmynd þessi uppsetning á sviðinu sem hringekja og hvernig ljósahönnuðurinn stýrði ljósunum vel og valdi litbrigðin, sérstaklega fannst mér lýsingin vera flott í lokaatriðinu.

Þetta er ekki sýning þar sem þú kippist um í hláturskrampa þótt að á stökum stað sé nú hægt að hlægja.
Birgir Þór
(3 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Frábær sýning sem ég hefði ekki viljað missa af.
Kærar þakkir fyrir mig.
Ingibjörg L. Ragnarsdóttir
(5 stjörnur)



Ást
Frábær sýning og frábærir leikarar, skemmti mér konunglega alla sýninguna. Hafið bestu þakkir fyrir.
Ingibjörg L. Ragnarsdóttir
(5 stjörnur)



Gosi
Mér fanst þetta mjög skemmtileg leiksýning, og syni mínum fannst það líka, hann er að verða 4 ára og hefur ekki náð að festa athyglina svona lengi við neina sýningu nema þessa. Ég gef Gosa því 5 stjörnur.
Ágústa Oddsdóttir
(5 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Ég varð fyrir vonbrigðum með þessa sýningu verð ég bara að segja, Krummi var engan vegin að skila sínu, hljómsveitin var góð og Jenni var maður sýningarinnar.
Ingibjörg L. Ragnarsdóttir



Jesus Christ Superstar
Sviðsetning einföld og flott
Tónlistin mjög góð
virkilega skemmtileg sýning
Við eigum flotta söngvara og leikara
Sigrún
sigrun
(4 stjörnur)



Kommúnan
Frábær sýning - leyndi á sér, sviði skemmtilega einfalt. Frábærir karekterar í leikritinu. Mæli með þessu leikriti
Sigrún
sigrun
(5 stjörnur)



Dubbeldusch
Grátbrosleg skemtun. Á sér líklega stoð í raunveruleikanum.
Guðni Á.
(4 stjörnur)



Baðstofan
Sýning sem stendur fyrri sýningum Hugleiks langt að baki - sérstaklega ef miðað er við "Forðist okkur". Síðasti hálftíminn var skelfilega lengi að líða.

Leikur ágætur, einkum hjá Stefáni, Vigni og Elmu Lísu. Hljóðheimur og umgjörð ágæt, en það vantar mikið í þetta verk af hendi höfundar til að það gangi upp.
AH
(2 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
Frábær sýning, bæði fyrir börn og foreldra :) svo dásamlegt að fylgjast með krökkunum lifa sig inní sýninguna. Skemmtilegir karakterar og frábærlega vel leikið.
Björg Helgadóttir
(5 stjörnur)



Ást
Frábær sýning og leikarar sem sýna svo glögglega að lífsneistann er hægt að tendra þótt flest annað virðist farið að hnigna.
Sigríður Klara Böðvarsdóttir
(5 stjörnur)



Sólarferð
Ég sá frumsýningu verksins og hafði bara gaman að henni. Fannst að vísu ekki margt öðruvísi en á uppfærslunni árið 1976 og heldur slappara fyrir hlé en það færðist heldur betur fjör í leikinn eftir hlé og var bara gaman. Sem sagt ágætis dægrastytting og raunsönn mynd af þessum "menningarferðum" í gamla daga.
Sigrún Guðjónsdóttir
(3 stjörnur)



Gosi
Alveg frábær sýning - fórum með 2 og 1/2 árs krili og skemmtum okkur öll alveg konunglega
Harpa Júlíusdóttir
(5 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Æi, ég varð fyrir gífurlegum vonbrigðum með þessa sýningu. Mér fannst Krummi falla algjörlega í skuggann af Jenna, enda Jenni með góða rokkrödd en Krummi heldur mjóróma. Einnig fílaði ég það bara ekki að "nútímafæra" þetta svona..... Jesús er kúl.........o.s.frv. Gamla uppfærslan að öllu leiti betri.
Fjóla



Laddi 6-tugur
Bráðfyndin sýning, Laddi fer á kostum!
Ingibjörg
(5 stjörnur)



Kommúnan
Algjörlega frábær sýning. Kom mér virkilega skemmtilega á óvart. Góður leikur, flott uppfærsla og ég skemmti mér æðislega!
Fjóla
(4 stjörnur)



Sólarferð
Frábær sýning. Leikararnir mjög góðir en Edda alveg stórkostleg og fim. Ein besta sýning sem ég hef séð lengi.
Soffía
Soffía Káradóttir
(4 stjörnur)



Hetjur
mer fannst syningin mjog god en hun hentar ommu og afa.
birgitta
(5 stjörnur)



Kommúnan
Æðisleg sýning. Allir leikarar frábærir í sínum hlutverkum.
Edda Arinbjarnardóttir
(5 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
Mjög skemmtileg sýning. Bæði fyrir fullorðna og börn. Krökkunum (5 og 9 ára) fannst skemmtilegst að fá að hjálpa til við að bjarga Putta litla.
Petra Rós Ólafsdóttir
(5 stjörnur)



Gosi
Virkilega falleg umgjörð og skemmtileg fyrir augað. Hélt syni mínum algerlega við efnið. Hnyttið og spennandi leikrit sem fékk bæði móður og son til að sitja hugfangin í gegnum allt leikritið.

Takk fyrir okkur
Hrafndís Bára



Kommúnan
frábær sýning í alla staði, æðislegir leikarar, allt gengur upp, alger snilld !
Halla Guðmundsdóttir
(5 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
Afar skemmtileg sýning! Skemmtilegir og eftirminnilegir karakterar (snigillinn var sprenghlægilegur). Fallegir litir og flott leikmynd. Tónlistin var líka stór skemmtileg. Ég kom með nokkra hópa af fötluðum börnum á aldrinum 6 til 16 og þau voru mjög upprifin. Við fullorðna fólkið skemmtum okkur engu minna en börnin. Mæli eindregið með því að allir sjái þessa sýningu! Ég lofa því að allir komast í gott skap. :)
Sigurbjörg G. Friðriksdóttir
(5 stjörnur)



Hetjur
Ég skemmti mér alveg konunglega á þessari sýningu. Mér finnst sýningar alls ekki þurfa að vera eitthvert svakalegt sjónarpil til að hægt sé að hafa gaman af þeim.
Maya Staub (21 árs)
(3 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Mjög góð sýning. Skemmtileg útfærsla á sögu Jesús. Krummi var ágætur en Jenni stal þó senunni. Tónlistin mjög góð. Fær fjórar stjörnur hjá mér.
Gróa Rán Birgisdóttir
(4 stjörnur)



Ævintýri í Iðnó
Fór með barnabarnið mitt að hlusta á sögu Iðnós og að halda upp á 50 ára leikafmæli Guðrúnar Ásmundsdóttur.
Þetta var sérlega skemmtileg dagstund.
Guðrún fer á kostum þegar hún segir sögu hússins og tilurð þess að farið var að leika í því hvernig búið var að leikurum í húsinu hve áhorfendur lögðu mikið á sig til að komast á sýningar gengu marga kílómetra til að komast á sýningarnar meðal annars.
Sagði frá fyrstu hringekju Íslands á tjörninni.
(Drífið ykkur bara og njótið)
Ekki skemmdi að fá að smakka rauðgraut í hléi.
Barnabarnið mitt sem er 11 ára drengur skemmti sér mjög vel og ætlar aftur með foreldrum sínum og systur áður en Guðrún hættir.
Það ætti að skylda reykvíkinga sérstaklega til að fara í Iðnó og hlusta á söguna hún er frábærlega sögð af einni bestu leikkonu okkar sem við sjáum því miður ekki nóg af.
Guðrún og Ólafur takk fyrir skemmtilega sýningu og ég fór út fróðari um húsið,tjörnina leikarana og fleira.
Takk fyrir mig og snáðann.

Guðrún E.
Guðrún Esther Árnadóttir
(5 stjörnur)



Sólarferð
ég kom á forsýningu. Mér fannst sýninginn frábær fyrir hlé, eftir hlé fannst mér hún tapa fluginu partý atriðið allt of langdregið. Ingavar og Ólafía Hrönn alveg frábær í sínum hlutverkum, ennig fannst mér Kjartan og Þröstur Leó mjög góðir. Benedikt takk fyrir góða sýningu.
Brynhildur
(4 stjörnur)



Baðstofan
Efast ekki um að baðstofulíf hafi verið dulítið sérstakt í eina tíð. Vel upp sett góð byrjun með kindunum og hefði ekki viljað missa af þessari sýningu.
Tónlistin og hljóðfærin óvenjuleg og komu á óvart.
Er sannfærð um að á sumum bæjum til forna hefur þetta verið nálægt því sem þarna er sett upp.
Grænlendingurin var vel gerður og Brynhildur að vanda frábær.
Sem sagt kom á óvart og var skemmtilegt.
Sammála Dísu að taka með sér eitthvað að setja í munn vegna reyksins hann þola ekki allir þó haldið sé fram að hann eigi ekki að valda neinum óþægindum.
Sem sagt góð sýning og óvenjuleg.
Guðrún E.
Guðrún Esther Árnadóttir
(4 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
Fór með 5 barnabörn á aldrinum 4 -7-8-13 alveg dásamlegt sambland af ævintýrum og allir skemmtu sér konunglega þeim yngstu fannst skemmtilegt að fá að taka þátt,hjálpa til að allt fari vel!
mæli með þessu ævintýri fyrir alla.Bj.
Björg Jónsdóttir
(5 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Þessi sýning er bara frábær, maður fær í magann af hlátri
Brynhildur Guðmundsdóttir
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Þetta er frábær sýning sem enginn ætti að missa af. Við hjónin skemmtum okkur konunglega.
Brynhildur Guðmundsdóttir
(5 stjörnur)



Baðstofan
Sammála því að þetta sé mjög sérstök sýning og hljóðfærin voru snilldarlega sett inn og notuð í sviðsmyndinni.
Fannst "græni útlendingurinn" einn af flottustu persónunum.Hreyfingarnar hjá honum og tal mjög skemmtilegt. Flott tenging til að gera grín af viðhorfi Íslendinga til útlendinga! Og hvernig hægt er að dyljast með okkur mönnunum...

Mjög spes húmor sem að mér fannst pínu renna út í gamaldags tuggu á því hvað Ísland/Íslendingar voru ógeðslegir/hræðilegir/siðlausir og allt í allt ömurlegir hér fyrr á öldum.
MJÖG vel sett fram ef að maður er ekki búinn að fá leið á þeirri tuggu.

Alls ekki sýning fyrir viðkvæma né börn.

p.s. endilega að taka með sér ópal/tópas vegna reyksins til að missa ekki sýninguna útaf hósti.
Dísa
(3 stjörnur)



Ást
Frábær sýning. Einvalalið leikara sem ég tel ólíklegt að muni sjást aftur. Kærar þakkir.
bjarni ingolfsson
(4 stjörnur)



Fló á skinni
Fór með vinnufélögum þann 13. mars og verð bara að segja að annað eins verki í kjálka og vöðva í kinnum, ásamt auðvitað góða magavöðva hef ég aldrei fengið ;) bara snilldar leikrit. Skemmti mér frábærlega, væri til í að sjá sýninguna aftur :)Til lukku allir leikendur.
Helen Sif Sigurðardóttir
(5 stjörnur)



Kommúnan
Einstaklega vel heppnað og mikill gleðigjafi. Umgjörðin var nýstárleg og leikararnir hver öðrum betri. Ekkert mannanna verk er fullkomið því gef ég verkinu 4 stjörnur.
bjarni ingolfsson
(4 stjörnur)



Fló á skinni
Alveg frábær sýning. Skemmtileg og vel leikin.
Sigríður Arnfj. Guðmundsdóttir
(5 stjörnur)



Laddi 6-tugur
þessi sýning er bara tær snilld.....

þóra Arnar
(5 stjörnur)



Hetjur
Mér fannst sýningin ekki nógu góð, enda hæg og lítið sem gerist á sviðinu í einu. En hún hentar vel fyrir eldra fólk og amma mín skemmti sér vel.
Sigrún Gyða Sveinsdóttir
(1 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Góðan dag. Mig langaði bara að segja að sýningin er ágæt. Flestir leikararnir eru að skila sínu. Ég er kannski ekki rétta manneskjan til að tjá mig. Því ég hef séð ýmsar uppfærslur í gegnum árin. Með kærri kveðju og ósk um gott gengi hjá leikhúsunum.
Jókka
Jóhanna Pálsdóttir
(2 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Alveg mögnuð sýning
Dísa
(5 stjörnur)



Brák
Þetta er frábær sýning. Brynhildur fer algjörlega á kostum.
Fullt hús frá mér og fjölskyldu.
Poj, poj.
Kristín Árdal
(5 stjörnur)



Baðstofan
Þetta er sýning sem ALLIR sem vilja fylgjast með íslensku leikhúsi og leikritun ÆTTU EKKI að láta fara framhjá sér.

Óneytanlega spurði maður sig oft á meðan sýningin leið Vá hvað hversvegna!!!

En þetta er vísun í fortíð okkar, bókmenntirnar sem sögðu frá tröllum. forynjum, leiðinlegum bændum, fögrum heimasætum, kveðskap, aumingjum og skít og ekki síst siðlausum prestum (embættismönnum)

Tónlistin er skemmtilega og óvenjulega samfléttuð inn í sýninguna, sviðsmyndin skemmtilega notuð

Brynhildur stendur upp úr af öllum leikurunum EN samt er mikil heild í sýningunni

Ég sá líka Forðist okkur og Leg og þessi sýning er alls ekki síðri bara öðruvísi

Frábær húmor eins og alltaf hjá Hugleiki

Þetta er alls ekki barnasýning né fyrir viðkvæma
Regína
(4 stjörnur)



Laddi 6-tugur
Skemmtileg sýning með frábærum leikara sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Arndís Rós Egilsdóttir
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Fórum fjölskyldan saman á seinni sýningu laugardaginn 7mars. skemmtum okkur konunglega.
Yngsti meðlimurinn (11ára) hló svo mikið að hún var með verki í maganum.Gaman að sjá þessa Akureyrísku útgáfu og óskum við leikendum og öðrum aðstenendu til hamingju með frábæra sýningu
Gudfinna Gudmundsdóttir
(4 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Mjög góð sýning. Stóð undir öllum mínum væntingum. Tónlistin frábær og skemmtileg sviðsetning.
Halldóra Magnúsdóttir
(5 stjörnur)



Fló á skinni
Frábærlega góður leikur og ég skemmti mér konunglega að allri vitleysunni!!! Líka 8 ára barnabarn, sem skyldi meira en ég átti von á!
Áfram L.A.
Ólöf Lóa Jónsd.
(5 stjörnur)



Skilaboðaskjóðan
Frábært leikrit fyrir alla fjölskylduna, höfðar bæði til fullorðinna og barna. Skemmtilegur tvinningur á mörgum ævintýrum saman. Fór með dóttur minni á þetta og skemmtum við okkur konunglega saman. Mæli hiklaust með þessu leikriti fyrir fjölskylduna.
K Svava Einarsdóttir
(5 stjörnur)



Jesus Christ Superstar
Fannst sýningin mjög skemmtileg í heildina, mjög einföl sviðsmynd en alltaf er jafn gaman að fara á þessar sígildu sýningar.
En eina sem mér fannst vera að var að söngvarnari skildust ekki allir, s.s. oft mjög óskírt hvað verið var að syngja og var það kannski vegna rokkútfærslunnar. En mér fannst Jenni maður sýningarinnar.
Pró



Skilaboðaskjóðan
Þetta var virkilega skemmtileg sýning.
Kristbjörg L. Kristjánsdóttir
(5 stjörnur)



Gísli Súrsson
Þessi sýning var mjög skemmtileg. þetta er samt helst fyrir þá sem hafa lesið söguna því annars er leikritið dálítið torskilið.
Annars er þetta hið fínasta leikrit og ég mæli með því.
Hanna Mjöll Þórsdóttir
(4 stjörnur)



Baðstofan
Mjög sérstök sýning hér á ferðinni en það sem heillaði mig hvað mest voru þau hljóðfæri sem notuð voru í sýningunni.

Brynhildur er án efa stjarna sýningarinnar og raun svo góð að mér fannst hinir ekkert sérstakir í samanburði við hana. Eru reyndar einstaka skemmtilegar persónur í verkinu sem hægt er að hlægja að en ég skildi ekki alveg græna útlendinginn.

Sýning fyrir 25 ára og eldri.
Birgir Þór Halldórsson
(3 stjörnur)



Hetjur
Við fórum tveir ungir strákar saman á þessa sýningu (24 ára) og vorum sammála um að þessi sýning væri frábær fyrir eldra fólk.
Ætla án efa að mæla með sýningunni fyrir ömmu og afa en fyrir jafnaldra mína þá veit ég um margar aðrar sýningar sem þeir ættu frekar að fara á.

Ég sem 24 ára karlmaður gef sýningunni tvær stjörnur.
Birgir Þór Halldórsson
(2 stjörnur)



Brák
Þetta er frábær sýning sem allir aldurshópar geta skemmt sér á.
Brynhildur heldur manni við efnið allan tímann og skiptir skemmtilega á milli persóna.

Glæsileg sýning sem fellur alls ekki í skuggann á Mr. Skallagrímsson.

Ég gef henni 5 stjörnur af 5 mögulegum en hefði gefið fleiri ef það hefði verið hægt.
Birgir Þór Halldórsson
(5 stjörnur)


 
Leikhús.is er rekið af SGA ehf
©2004-2010 - Allur réttur áskilinn

leikhus@leikhus.is
Hafa samband

 
 
2fyrir1.is