Hún pabbi | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Hún pabbi

    hunpabbi-stor

    Borgarleikhúsið frumsýnir þann 6. janúar nýtt verk á Litla sviðinu – Hún pabbi. Í nútímasamfélagi eru fjölmörg tækifæri til þess að framleiða „hina fullkomnu“ útgáfu af sjálfum þér. Í veröld internets og samfélagsmiðla er auðvelt að stilla upp glansmynd af eigin sjálfi, laust við erfiðleika, skömm og – kannski sannleika. En það er líka til fólk sem þorir ekki að lifa eftir sannfæringu sinni og framleiðir ímynd sína alla ævi. Ástæður geta verið margar; skömm, ótti eða jafnvel einhvers konar „tillitssemi“ í garð sinna nánustu. Óttinn við að særa og verða öðrum til skammar. Hannes Óli Ágústsson, leikari, upplifði aldrei nánd við föður sinn. Í æsku öfundaði hann leikfélagana af sambandi þeirra við feður sína. Hannes vildi bara „venjulegan pabba“ en faðir hans var fjarlægur þrátt fyrir að vera til staðar. Innst inni vissi Hannes að eitthvað var ekki eins og það átti að vera. Dag einn breyttist allt. Pabbi hans lét sig einfaldlega hverfa og varð Anna Margrét Grétarsdóttir, þá 57 ára gömul. Hún tilkynnti eiginkonu sinni til 30 ára og börnum sínum tveimur að hún væri í raun ekki sá sem þau héldu öll þessi ár. Hún var ekki Ágúst Már, heldur Anna Margrét.
    Missir, sorg og söknuður blöstu við. Líf þeirra var lygi. Á sama tíma krefst samfélagið þess að aðstandendur styðji ástvini sína, styðji hann – styðji hana – og hjálpi henni að takast á við lífið á nýjan leik.

    Borgarleikhúsið í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!