Hamingjudagar | Leikhus.is

    Leikhúsleikurinn í boði Kol restaurant

    Nafn:

    Netfang:

    Fæðingarár:

    Símanúmer:

    Kyn:

    KarlKona

     
    Á hvaða tíma er leikhústilboð Kol? - Smellið hér til að finna svarið.

    Svar:

     
    Vinningurinn í leikhúsleiknum er:

    Gjafabréf í leikhús fyrir tvo og 20.000 kr. gjafabréf á Kol restaurant

    Drögum einn heppinn þann 22. apríl 2015. Þeir sem taka þátt í leikhúsleiknum eru sjálfkrafa skráðir sem vildarvinir leikhús.is og fá send fréttabréf með fréttum úr leikhúslífinu og ýmis tilboð.

     


    Hamingjudagar

    Hamingjudagar verður frumsýnt 2. september í Hofi.

    „Ó, þetta er hamingjudagur, þetta verður enn einn hamingjudagur!“ segir Vinní, frægasta kvenpersóna Samuels Becketts. Hún er ákveðin í því að finnast lífið hamingjuríkt og fallegt, þrátt fyrir að útlitið sé allt annað en bjart.

    Hamingjudagar er um takmarkalausan lífsvilja manneskjunnar og ódauðleika bjartsýninnar og er áreiðanlega lang skemmtilegasta leikrit nóbelshöfundarins sem lætur gamminn geisa með hrífandi húmor, visku og ólíkindi.

    Samuel Beckett er fæddur í Dublin á Írlandi föstudginn 13. apríl árið 1906. Hann settist að í París árið 1937. Hamingjudagar var frumflutt í Cherry Lane-leikhúsinu í New York 17. september 1961 og frumsýnt á Íslandi í Lindarbæ í Reykjavík árið 1965 á vegum leikhópsins Grímu í leikstjórn Eyvindar Erlendssonar. Beckett hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1969. Hann lést í París árið 1989.

    Höfundur Samuel Beckett
    Þýðing Árni Ibsen
    Leikarar Edda Björg Eyjólfsdóttir, Árni Pétur Guðjónsson
    Leikstjórn Harpa Arnardóttir
    Leikmynd og búningar Brynja Björnsdóttir
    Lýsing Ólafur Ágúst Stefánsson
    Tónlist Ísidór Jökull Bjarnason
    Þýðing yfirfarin Hafliði Arngrímsson

    ATH: ef miði er keyptur fyrir 20. ágúst fæst 20 prósent forsöluafsláttur.



    loading

    Takk fyrir að skrá þig!